21.04.1982
Neðri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4067 í B-deild Alþingistíðinda. (3621)
58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Frsm. 2. minni hl. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta. Ég ætla ekki að fara að blanda mér í þessar umr., en eins og öllum er kunnugt er ákaflega lítill vandi að fá hagstæða útkomu hjá ríkissjóði með því að taka markaða tekjustofna, sem eiga að fara til annarra þarfa, í ríkissjóð til að bæta stöðu ríkissjóðs við Seðlabanka, en láta þá sjóði og stofnanir, sem eiga að fá þessa mörkuðu tekjustofna til ráðstöfunar, taka lán erlendis eða innanlands. Það er þetta sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur gert. Hún hefur t.a.m. tekið rúmlega 86 millj. kr. á þessu ári, sem ættu samkv. lögum að hafa farið inn í húsnæðislánakerfið. Þetta fjármagn hefur hæstv. ríkisstj. tekið í ríkissjóð og skert fjárreiður húsnæðislánakerfisins að sama skapi. Niðurstaðan er svo sú, að það er ekki ríkissjóður, sem þarf að taka lán í Seðlabankanum, heldur Byggingarsjóður ríkisins og húsnæðislánakerfið með þeim afleiðingum að nú segist ríkissjóður vera skuldlitill og hafa lækkað skuldir sínar við Seðlabankann, en Byggingarsjóður ríkisins skuldar þar 40 millj. kr. í umsömdu láni frá því í haust og 24–30 millj. kr. í yfirdráttarláni til viðbótar.