05.11.1981
Sameinað þing: 14. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (363)
332. mál, fjárfestingar- og lánsfjáráætlun 1982
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir það með hæstv. forsrh., að mikilvægt er að hv. Alþingi hafi þjóðhagsáætlun og fjárfestingar- og lánsfjáráætlun til hliðsjónar þegar rætt er um frv. til fjárlaga og þegar undirbúin er fjárlagagerð á Alþingi og lánsfjárlaga. Að þessu leyti hefur verið bætt um vinnubrögð frá því sem áður hefur verið nú um sinn, vegna þess að í fyrra voru fjárfestingar- og lánsfjárlög á ferðinni löngu eftir áramót, eins og menn muna, og voru þau vinnubrögð, sem viðhöfð voru þá, mjög gagnrýnd.
En það er heldur andkannalegt að hæstv. forsrh. sé að mæla fyrir þessu máli í Sþ. þar sem við vitum að fjárfestingar- og lánsfjáráætlun er í raun fskj. með frv. til lánsfjárlaga sem rætt er í deildum. Ég hef áður bent á það, að þarna sé mjög mikið ósamræmi. Vil ég beina því til hæstv. forseta þingsins og deildarforseta, hvort ekki sé rétt að endurskoða þessi vinnubrögð í þingi og þá helst að hafa lánsfjárlagagerðina í Sþ., eins og tíðkast um fjárlagagerð, þannig að fjárfestingar- og lánsfjáráætlun sé formlega afgreidd í Sþ. á sama hátt og fjárlög.
Fyrir nokkru fór fram 1. umr. fjárlaga fyrir árið 1982. Þá lýsti hæstv. viðskrh. því hér, að þm. Framsfl. og ráðh. hefðu haft ákveðna fyrirvara í sambandi við frv. til fjárlaga þegar það var afgreitt í ríkisstj. Orðrétt sagði hæstv. ráðh., með leyfi forseta:
„Þegar fjárlagafrv. var til meðferðar í ríkisstj. gerði ég grein fyrir því, að Framsfl. vildi athuga nokkru nánar skattamál atvinnuveganna. sérstaklega nefndi ég þar til skatta eins og launaskatt, aðstöðugjald og e. t. v. fleiri skatta og alveg sérstaklega skattstofn söluskatts á vörur, en það mál er sérstaklegt byggðamál og varðar hreinlega jafnrétti á þá leið, að menn greiði ekki hærri söluskatt af vörum þótt þeir búi úti á landi.“ — Enn fremur sagði hæstv. viðskrh.: „Vísa ég til ræðu minnar við fjárlagaumr. á s. l. vetri varðandi skatt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði.“
Nú vil ég, af því að tækifæri gefst, spyrja hæstv. forsrh. — hann var ekki viðstaddir fjárlagaumr. — hvort fleiri ráðh. hafi haft slíkan fyrirvara um afgreiðslu fjárlagafrv. en hæstv. ráðh. Framsfl. og hvort slíkir fyrirvarar séu líka um afgreiðslu hæstv. ríkisstj. á frv. til lánsfjárlaga sem tengist því máli sem hér er til umr.
Í þessari áætlun er gert ráð fyrir 33% verðlagsbreytingu milli áranna 1981 og 1982. É vil nú mælast til þess, að hæstv. ráðh. yrði viðstaddur. Ég ætlaði að beina til hans nokkrum spurningum öðrum. — Í þessari skýrslu kemur fram að það er byggt á þeirri forsendu í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun, að verðlagsbreyting milli ára 1981 og 1982 verði 33%, verðlag hækki milli þessara ára um 33%. Hæstv. fjmrh. sagði um þessa forsendu í fjárlagaræðu sinni að gert væri ráð fyrir þessu í fjárlagafrv. og um hreina reiknitölu væri hér að ræða.
Hæstv. viðskrh. héli ræðu við sömu umr. og varði löngu máli í að undirstrika og rökstyðja að hæstv. ríkisstj. teldi þarna um stefnumark að ræða, það væri stefna hæstv. ríkisstj. að verðlag á milli áranna 1981 og 1982 hækkaði ekki meira en um 33%. Um þetta sagði hæstv. ráðh. orðrétt í sinni ræðu: „Í fjárlagafrv. er miðað við 33% hækkun verðlags og launa milli áranna 1981 og 1982.“ Í athugasemdum segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1982 verða settar fram horfur um verðbólgu á komandi ári.“ En í þjóðhagsáætlun ríkisstj. fyrir árið 1982 segir hins vegar svo orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Á komandi ári mun ríkisstj. leggja höfuðáherslu á að þrýsta verðbólgunni enn verulega niður í samræmi við það meginmarkmið að koma henni svo fljótt sem kostur er niður í svipað stig og er í helstu viðskiptalöndum okkar. Ríkisstj. telur æskilegt að ná hlutfallslega svipuðum árangri á árinu 1982 og á þessu ári, en tölulegt markmið verður ákveðið þegar betri upplýsingar liggja fyrir um þróun ýmissa þátta efnahagsmála, sem enn eru óljósir. Það er t. d. ekki alveg ljóst enn þá, hver verðbólgan verður á þessu ári,“ sagði hæstv. viðskrh. „Ég ætla að hún verði í kringum 40% frá upphafi til loka árs. Ég skal ekki slá neinu föstu um verðbólgustigið í lok ársins, úr því sker auðvitað reynslan.“ En síðan segir hæstv. ráðh.: „Í stefnuræðu forsrh. kom fram nákvæmlega sama efnisatriði, að á komandi ári mun ríkisstj. leggja höfuðáherslu á að þrýsta verðbólgunni niður og ná hlutfallslega svipuðum árangri og í ár.“ Þetta er í raun og veru sú stefna sem ríkisstj. hefur látið frá sér fara og lagt fram hér á hinu háa Alþingi í verðbólgumálum.
Annar hæstv. ráðh., sem talaði við þessar umr., sagði að þessi forsenda væri hrein reiknitala, hinn hélt því fram, að stefna ríkisstj. væri í raun þessi. Og ég vil spyrja hæstv. forsrh., hvorn þennan ráðh. sé að marka, hvor þeirra tali fyrir hönd hæstv. ríkisstj. að þessu leyti. Það er mjög mikilvægt fyrir þingheim að vita hvort menn eru að tala hér um hreina reiknitölu, sem í rauninni sé sáralítið mark á takandi, eða hvort hér sé um það að ræða að ríkisstj. líti svo á að hún geti með einhverjum hætti náð verðbólgunni niður í þetta mark. Þetta mark þýðir það, að verðbólgustigið yrði frá ársbyrjun til ársloka 25% á næsta ári.
Nú vita menn að verðbólgustigið hefur verið nokkurn veginn 9–10% á þriggja mánaða fresti undanfarið, en þetta mundi þýða að það færi niður í 5% verðbólgustig á þriggja mánaða fresti seinni hluta árs.
Nú vita menn að það er ekki búið að ákveða fiskverð um áramót. Það er ekki búið að aðlaga gengi þörfum atvinnuveganna. Það er ósamið á vinnumarkaðinum og kröfur þar eru allt upp í nokkurn tug prósenta. Þess vegna er ekki óeðlilegt að hæstv. ríkisstj. gerði hreinna fyrir sinum dyrum um það, hvernig hún hugsar sér að ná þessu marki, ef það er rétt skilið hjá mér, sem hæstv. viðskrh. tók glöggt fram frá hans bæjardyrum séð, að stefna ríkisstj. væri að ná verðbólgunni niður í þetta mark á næsta ári. En aðalatriðið er nú fyrir þingheim að fá upplýsingar um hvort beri að líta á þessar forsendur, eins og hæstv. fjmrh. sagði, sem hreina reiknitölu eða hér sé um gott og göfugt stefnumið ríkisstj. að ræða.
Í þessari skýrslu um fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir árið 1982 er haldið áfram á þeirri braut sem hefur verið mörkuð undanfarin ár, þ. e. að ýta sífellt fleiri viðfangsefnum í ríkisfjármálum út fyrir fjárlög inn í lánsfjáráætlun. Hér er stigið mjög stórt skref í þessa átt, því að þetta plagg hér inniheldur skuldbindingar fyrir ríkissjóð, lántökur fyrir ríkissjóð, sem eru 13.5% af því sem ríkissjóður hefur til ráðstöfunar á árinu 1982. Ef lánsfjárlög verða afgreidd í hátt við þessa skýrslu verður lántaka ríkissjóðs til A- og B-hluta 13.5% af heildarráðstöfunarfé ríkissjóðs. Þetta hlutfall var 6.9% 1978 og 1979, þannig að í raun hafa lántökur ríkissjóðs tvöfaldast miðað við heildarráðstöfunarfé ríkisgeirans á þessu tímabili ef þetta verður að lögum. Og í þessu plaggi er gert ráð fyrir gífurlega mikilli erlendri lántöku, 146% hækkun á erlendum lánum til A- og B-hluta ríkissjóðs.
En þar með er ekki öll sagan sögð. Í þessu plaggi kemur fram að það er stefnt að því, að ríkissjóður sellist æ dýpra í lífeyrissjóði landsmanna og gefi út miklu meiri ríkisskuldabréf, þ. e. spariskírteini, heldur en gert hefur verið áður. Spariskírteinaútgáfa ríkissjóðs er áætluð aukast um 66% í þessu plaggi og verðbréfakaup ríkissjóðs úr lífeyrissjóðunum um 60.8%, á sama tíma sem verðforsendur þessarar áætlunar eru 33%, eins og ég gat um áðan og erlend lán, — þar kastar tólfunum, — erlend lán til A- og B-hluta ríkissjóðs eiga að aukast samkv. þessu plaggi um 146%.
Það gefst nánara tækifæri til að ræða þessi alvarlegu mál, og þau eru í raun alvarlegri þegar við höfum það í huga, að á þessu ári er gert ráð fyrir að stóriðju- og stórvirkjanaframkvæmdir dragist saman um 43% og hitaveituframkvæmdir dragist saman um 31%, á sama tíma sem erlendar lántökur til ráðstöfunar til A- og B-hluta eru hækkaðar svo mjög sem raun ber vitni.
Það gefst síðar tækifæri til að ræða þessi mál. Að sjálfsögðu veldur þetta stóraukinni greiðslubyrði þjóðarbúsins í erlendum lánum. Talið er að greiðslubyrði af útflutningstekjum þegar þessi lán hafa verið tekin, sem hér er gert ráð fyrir, fari upp í 17–18% en þetta hlutfall var 13% 1978.
Að lokum vil ég í viðbót við þessar tvær spurningar, sem ég hef lagt fyrir hæstv. forsrh., þ. e. hvor hafi rétt fyrir sér, hæstv. fjmrh., að 33% forsenda þessarar skýrslu sé hrein reiknitala, eða stefna ríkisstj. eins og hæstv. viðskrh. gerði ráð fyrir, og eins hvort hæstv. ráðh. hafa fyrirvara um þessa skýrslu, eins og hæstv. ráðh. Framsfl. um afgreiðslu fjárlagafrv. Fram kemur í þessu frv., að gert sé ráð fyrir 40 millj. kr. nýju gjaldi á raforkunotendur í landinu. Hér segir: „Þá er þess að geta, að fyrirhugað er að leggja sérstakt gjald á raforkusölu eftir stofnlínum, alls 40 millj. kr.“ Ég vil því spyrja hæstv. ráðh., hvort samstaða sé um að leggja þetta gjald á, hvernig á því standi að ekki er gert ráð fyrir þessu gjaldi í tekjuáætlun fjárlaga þar sem það á heima. Það á að sjálfsögðu ekki heima í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun, heldur í fjárlögum, þegar um nýja skattheimtu er að ræða. Er samstaða í hæstv. ríkisstj. um að leggja á þennan nýja skatt sem nemur 4 gömlum milljörðum?