23.04.1982
Efri deild: 69. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4080 í B-deild Alþingistíðinda. (3656)

244. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 2 1. febr. 1980, um breyt. á lögum nr. 5 13. febr. 1976, um útflutningsgjald af sjávarafurðum, sbr. lög nr. 7/1982, og breytingu á lögum nr. 84 21. des. 1981.

Nefndin hefur rætt frv. á fundi sínum og orðið sammála um að leggja til að það verði samþykkt óbreytt. Undir nál. rita Stefán Guðmundsson, Egill Jónsson, Guðmundur Bjarnason, Kjartan Jóhannsson, Gunnar Thoroddsen, Geir Gunnarsson og Guðmundur Karlsson.