05.11.1981
Sameinað þing: 14. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (366)
332. mál, fjárfestingar- og lánsfjáráætlun 1982
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. var hneykslaður á sjónhverfingum sem menn hefðu í frammi í þessari umr., og auðvitað eiga þær ekki rétt á sér. En ekki er það sjónhverfing hvernig mál eru að skipast með erlenda skuldasöfnun okkar. Það eru blákaldar staðreyndir sem við stöndum frammi fyrir, og ef ekki verður brugðið á annað ráð í þeim efnum fer í verra. En þó var honum enn meir ofhasað á lyginni úr stjórnarandstöðunni, að það væru einhverjir ráðh. sem lýst hefðu yfir að engin gengisbreyting yrði. Þetta hefur verið bæði og. Það gekk staflaust um landið fyrir örskömmu, að á fundum við ákvörðun um síldarverð hefði hæstv. sjútvrh. lýst yfir að það yrði gengisbreyting hið allra fyrsta, og það voru nefnd 9%. Ég vona að þessi saga sé ekki sönn, því auðvitað eiga ráðh. ekki að lýsa neinu slíku og þvílíku yfir. En ég var þar sem hæstv. forsrh. kvað afar fast að orði um stöðugt gengi nú og um einhverja hríð fram á við. Þar var ég og þar voru 949 til viðbótar, því 950 höfðu verið þar alls, án þess að ég ætli að fara að rifja það orðrétt upp.
Ég ætla að hafa uppi skammar signingar yfir fjárfestingar- og lánsfjáráætluninni nú, ég hef aðeins haft nasasjón af henni, en það eru tvö atriði í því sambandi sem ég vil aðeins gera að umtalsefni.
Ég minnist þess um langt árabil, að allhörð umræða fór fram á hinu háa Alþingi vegna þess sem kallað hefur verið kaupskylda lífeyrissjóða, kaupskylda á skuldabréfum Byggingarsjóðs og Framkvæmdasjóðs. Auðvitað of í lagt að kalla þetta kaupskyldu, því þetta hefur aldrei verið fest í lög. Þá minnist ég þess, að fyrirsvarsmenn eins og Eðvarð Sigurðsson úr verkalýðshreyfingunni, úr Alþb., og forráðamenn lífeyrissjóða verkalýðsins mótmæltu þessari aðferð harkalega.
Nú vil ég taka það fram, að ég er eindreginn fylgismaður þessarar aðferðar, að lífeyrissjóðirnir láti verulegt fé af hendi rakna til fjárfestingar hjá hinu opinbera. Um það má auðvitað deila hversu hátt hlutfall þetta á að vera. Menn hafa nú um hríð miðað við 40% af ráðstöfunarfé sjóðanna og þykir ýmsum ærið. Þó veit ég til þess, og ég hygg að ég fari með rétt mál, að í Svíþjóð t. a. m. eru lögbundin 45% af ráðstöfunarfé sjóðanna. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar, að það eigi að lögbinda þetta og til er ég að ljá atkv. mitt við lögbindingu eins og 40%. En nú bregður hæstv. ríkisstj. á það ráð að hækka þetta hlutfall upp í 45%, félagar Eðvarðs Sigurðssonar, t. a. m. hæstv. fjmrh. Ef þann veg hefi nú árað að gengið hefði vel með sölu skuldabréfa þessara sjóða, Byggingarsjóðs ríkisins og Framkvæmdasjóðs, í ár samkv. þeirri lánsfjáráætlun sem nú er í framkvæmd, þá hefði svo sem út af fyrir sig mátt skilja þetta vegna þess óseðjandi hungurs sem hið opinbera stöðugt þjáist af og ríkissjóðshítin. En þann veg er nú málum ekki háttað, öðru nær.
Það hefur aldrei gengið erfiðlegar að selja þessi bréf til lífeyrissjóðanna og stefnir í það og það þarf ekki að vera neitt leyndarmál, að á mun skorta í aðallánasjóð atvinnuvegasjóðanna, Framkvæmdasjóð, 70–80 millj. kr. Þetta hét fyrir myntbreytingu 7–8 milljarðar, ef menn skilja það betur. Útlitið er afar dökkt, að það náist að selja skuldabréf sem þessari fjárhæð nemur til lífeyrissjóðanna. Þeir hafa nú nýja og miklu betri möguleika en áður á ávöxtun síns fjár, og þeir vilja af skiljanlegum ástæðum hafa tök á að geta gripið til þess til lánveitinga, til félaga sinna, t. a. m., til húsbygginga eða til annarra þarfa. Ef þessu heldur fram sem horfir er ekkert ráð annað til en að lögbinda þessa skyldu.
Þó að standi aðeins betur um skuldabréfakaup af Byggingarsjóði ríkisins er það langt frá því að vera með þeim hætti sem boðlegt er. Ég vil nú spyrja hæstv. forsrh. — eða ég ætti kannske öllu heldur að beina fsp. mínum til fjmrh. og það er best að ég geri það: Hvaða ráðstafanir hyggst hann gera til þess að fullnægt verði því sem kalla verður lagaskyldu samkv. lánsfjárlögum sem nú gilda, fullnægt verði kaupskyldu lífeyrissjóðanna á skuldabréfum Byggingarsjóðs ríkisins og Framkvæmdasjóðs Íslands? Þetta er alveg nauðsynlegt að menn upplýsi, til hvaða ráðstafana eigi að grípa. Ef svo reynist, að þetta næst ekki fram samkv. þeim lánsfjárlögum sem við búum við, er til lítils að ætla sér enn stærri hlut á nýju ári eftir þessari leið.
Þetta var fyrra efni máls míns. Hið síðara er að hér var einn harðsnúinn stuðningsmaður hæstv. ríkisstj. í ræðustól í gær sem hélt því fram að vanda atvinnuveganna, vanda fiskiðnaðar og sjávarútvegs, ætti að leysa með erlendri lántöku. Hann hélt því mjög ákveðið fram og nefndi t. a. m. að það hefði átt að leysa vanda Jökuls á Raufarhöfn með erlendri lántöku fyrirtækisins. Nú nefndi hæstv. sjútvrh. það í gær í umr. utan dagskrár, að hann hygði að vandi þessa atvinnuvegar, fiskiðnaðar svo og sjávarútvegs, mundi kannske nema 200 mill j. kr., auk fjár úr Byggðasjóði, eins og hann nefndi. Hv. 2. þm. Norðurl. e. kunni það ráð til handa fyrirtæki sem skortir 5 millj., að það fengi að taka þetta fé rakleiðis að láni erlendis. Ég nefndi þetta baneitraða leið og ég nefni það baneitraða leið ef hæstv. ríkisstj. ætlar að vísa Framkvæmdasjóði á erlendar lántökur til þess að sjóðurinn geti gegnt skyldum sínum við atvinnuvegasjóðina. Ég kalla það baneitraða leið af því sem svo stendur sem raun ber vitni um erlenda skuldasöfnun okkar.
Hæstv. sjútvrh. hefur nefnt töluna 200 millj. — sem fyrir tæpu ári hétu 20 milljarðar, að sá væri fjárhagsvandinn sem fljótlega þyrfti að leysa hjá fiskiðnaði og sjávarútvegi. Hvar hyggst hæstv. ríkisstj. leita þess fjár? Ég benti á í gær að ég sæi engin sköpuð ráð önnur en að skera niður hjá hinu opinbera. En stjórnarþingmaður vísar til erlendrar lántöku. Fjárhæðin er geysimikil og vandinn er brýnn, og það er einmitt í sambandi við setningu lánsfjárlaga og umr. um fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir 1982 sem þetta mál hlýtur mjög að komast í brennidepil.
Ég endurtek varnaðarorð mín við því að stefna að úrlausn þessara vandamála með erlendri lántöku. Þar höfum við þegar seilst um of og allt of langt.