23.04.1982
Efri deild: 69. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4082 í B-deild Alþingistíðinda. (3663)

217. mál, jarðalög

Egill Jónsson:

Herra forseti. Það kom fram hjá hæstv. landbrh. ósk um að þessi hv. deild, og þá væntanlega sérstaklega landbn. hennar, hraðaði störfum í sambandi við afgreiðslu þeirra tveggja mála sem hann hefur nú mælt fyrir. Að því marki sem það stendur í mínu valdi verður að sjálfsögðu orðið við þeim tilmælum. Mér finnst hins vegar hæstv. landbrh. vera nokkuð tilætlunarsamur í okkar garð þar sem við höfum færri vikur til umfjöllunar í þessari hv. deild um þetta mál, höfum kannske ekki miklu fleiri daga til þeirrar umfjöllunar en landbn. Nd. er búin að hafa mánuði. Út af fyrir sig gætu þessi vinnubrögð hjá landbn. Nd. og þær tafir, sem þar hafa orðið, verið fullt tilefni til þess að málum sem þessum væri stefnt í tvísýnu.