23.04.1982
Neðri deild: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4117 í B-deild Alþingistíðinda. (3696)
3. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. er ég einn af þeim sem mæla með því, að þetta frv. verði samþykkt eins og það kom frá hv. Ed.
Ég hefði að vísu viljað að ýmsar breytingar hefðu verið gerðar á þessu frv., en ég flyt hins vegar ekki neinar brtt. um það vegna þess að ég vil ekki stofna frv. í hættu á síðustu dögum þingsins. ég tel mikilvægara að Sinfóníuhljómsveitinni verði nú loks sett lög. Sjálfstæðismenn í Ed. fluttu ýmsar brtt. við þetta frv. Sumar voru samþykktar, en aðrar ekki. Ég tel að þar hafi verið hreyft ýmsum mikilvægum atriðum sem til bóta horfðu. Ég get nefnt sérstaklega nokkur atriði sem ég tel að betur mættu fara, eins og t.d. kostnaðarskiptingu milli rekstraraðila, aðild Ríkisútvarpsins, vinnuskyldu hljómsveitarmanna við Þjóðleikhúsið og fleira þess háttar. En úr þessu vil ég sem sagt ekki gera neitt mál á þessu stigi. Nánari ákvæði hefðu einnig mátt koma um starfsvið framkvæmdastjórans, um hljómsveitarstjórana sjálfa, um verkefnavalsnefnd og fleira. En þrátt fyrir þessar aðfinnslur mínar eða ábendingar vil ég ekki leggja annað til en frv. verði samþykkt.
Um brtt., sem hv. þm. Jóhann Einvarðsson mælti hér fyrir, þarf ég ekki að hafa mörg orð. Nefndin gat ekki fallist á þær og ég tel þær ekki til bóta og mæli þess vegna með að þær verði felldar.