23.04.1982
Neðri deild: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4118 í B-deild Alþingistíðinda. (3698)

3. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Frsm. (Ingólfur Guðnason):

Herra forseti. Það er kannske ástæðulaust að vera að koma hér upp aftur eftir að samnefndarmenn mínir í menntmn. hafa talað hérna. En ég vil aðeins koma hingað til að staðfesta það sem hv. Jóhann Einvarðsson sagði, að nefndin hafði þessar brtt. til umfjöllunar, enda þótt ekki væri búið að vísa þeim til nefndarinnar, og tók þær vissulega til umr. Nefndin varð sammála um að standa að frv. eins og það kom frá Ed., en féllst ekki á brtt.