23.04.1982
Neðri deild: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4125 í B-deild Alþingistíðinda. (3706)
3. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Jóhann Einvarðsson:
Herra forseti. Ég skal ekki bæta mörgum orðum við þessa umr. frekar en hefur þegar orðið.
Mönnum hefur orðið tíðrætt um hvað mætti ráða marga menn í Sinfóníuhljómsveitina, og ekki skal ég draga úr þörfinni á að hafa fjölmennt lið til að flytja góð verk hér á landi. Ég vil ekki taka undir þau orð hv. þm. Alberts Guðmundssonar, þó að ég taki undir margt af því sem hann sagði, að við færum að flytja e.t.v. Sinfóníuhljómsveit Lundúnaborgar hingað heim. (Gripið fram í: Ég var ekki að mæla með því). Það er rétt. Ég dreg það til baka.
Í grg. með frv. segir: „Hér er einnig heimilað að ráða 65 fasta hljóðfæraleikara til hljómsveitarinnar. Þetta er lögbundið lágmark og er eitt meginatriði frv.“ — Það segir mér ekki annað en að það er stefnt að því að þeir verði fleiri. Ég sé í sjálfu sér ekki annað en brýna nauðsyn beri til þess, að sett sé eitthvert þak á þetta. Ég skal út af fyrir sig taka þátt í umræðu um hvort það eigi að vera talan 65 eða einhver önnur tala. En mér finnst ekki að þakið eigi að vera lágmarkstala, heldur á að setja þak um hámarksfjölda sem heimilt sé að ráða til hljómsveitarinnar. Ég tel brýna nauðsyn að svo sé gert. Mér finnst dálítið einkennileg röksemdarfærsla að vitna þá til þess, að við hefðum kannske haft aðra skoðun hefðum við fyrr á þessu 32 ára tímabili sett lög um Sinfóníuhljómsveitina, um fjölda hljóðfæraleikara. Það finnst mér einkennileg túlkun. Það má út af fyrir sig deila um hvort það eigi að vera talan 65, en hún er notuð í tillöguflutningi okkar flm. vegna þess að hún er í frv. Það þarf að setja hámark í lögin því að heimildir eru einnig til að ráða fleiri ef ákveðin tónverk krefjast þess.
Svo ætla ég að lokum að lesa hér smákafla úr grg., sem mér finnst skýra svolítið sjónarmið okkar í sambandi við þessi 12% og er reyndar samin af hæstv. menntmrh. eða starfsmönnum hans í ráðuneytinu:
„Þá er hér gert ráð fyrir því, að hljómsveitin kappkosti að afla sjálfstæðra tekna af tónleikahaldi og stefnt skuli að því að eigi minna en 12% af útgjöldum hljómsveitarinnar fáist greidd af slíkum tekjum hennar. Ætíð er vafasamt að setja fjárhagsmarkmið eins og þetta í lög, en rétt þykir að gera það hér til áherslu og leiðbeiningar fyrir stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Með þessu ákvæði er henni uppálagt að stefna að því, að eigin tekjur hljómsveitarinnar verði sem mestar, og keppa að 12% markinu. Þegar fjárhagsáætlun hljómsveitarinnar 1956 var gerð var reiknað með 5.8% tekjum af tónleikahaldi hennar og hafa eigin tekjur hljómsveitarinnar verið lengst af síðan kringum þetta prósentustig. Núverandi stjórn hljómsveitarinnar hefur reynt að auka þessar tekjur sem mest má verða og hefur árangurinn orðið sá, að árið 1978 námu eigin tekjur 6.24% af útgjöldum, árið 1979 námu eigin tekjur 7.21% af útgjöldum og árið 1980 námu eigin tekjur 8.88% af útgjöldum.“
Ég held að við þurfum að reyna að halda áfram að stefna að þessu og það þurfi að vera einhver hvetjandi ákvæði í þessum lögum því að ég get ekki fallist á að þetta sé til að draga úr áhuga stjórnenda hljómsveitarinnar.
Ég vil einnig taka það fram, að í samræmi við það, sem hv. þm. Albert Guðmundsson tók hér fram áðan, er þetta einnig til þess að létta nokkuð á hlut sveitarfélaganna, sem er orðinn allnokkur í heildarrekstrarkostnaði hljómsveitarinnar.
Að lokum skora ég á þm. að skoða hug sinn betur en þeir virðast hafa gert í sambandi við þessar brtt. og vænti þess, að þetta verði ekki heldur til að tefja endanlega afgreiðslu frv. um Sinfóníuhljómsveit Íslands.