23.04.1982
Neðri deild: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4127 í B-deild Alþingistíðinda. (3710)

153. mál, ríkisbókhald

Albert Guðmundsson:

Forseti. Í fjarveru frsm. hv. fjh.- og viðskn. leyfi ég mér að mæla fyrir nál á þskj. 685 um frv. til l. um breyt. á lögum um ríkisbókhald, gerð ríkisreikninga og fjárlaga, nr. 52 1966, frá fjh.- og viðskn.

Nefndin hefur rætt þetta frv. á nokkrum fundum sínum og fengið jákvæða umsögn frá ríkisbókhaldinu og leggur til að það verði samþykkt með þeim brtt. sem gerðar eru á þskj. 686. Hér er þarft frv. á ferðinni, og ég vona að samstaða náist um það í þessari hv. deild á sama hátt og í nefndinni sjálfri.