05.11.1981
Sameinað þing: 14. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í B-deild Alþingistíðinda. (377)

67. mál, íþróttamannvirki á Laugarvatni

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Hér hafa fallið mörg stór orð í garð flm. og annarra sem ég ætla ekki að taka undir. Fram er komin brtt., skulum við segja, við þá till. sem hér er flutt af Baldri Óskarssyni á þskj. 70. Sú brtt. gerir ráð fyrir að sú upphæð, sem Framsfl., að mér skildist, hafði samþykki á sinum flokksfundi, 5.2 millj., skyldi verða á fjárlögum. Hæstv. menntmrh. lagði til að 5.2 mill j. yrðu á fjárlögum, en það var fellt af fjmrh. ef ég skildi rétt, við fjárlagagerðina í ríkisstj. Nú er komin fram till. um það hér aftur og þýðir að sú till., sem hér liggur fyrir á þskj. 70, hefur borið verulegan árangur. Hugmyndasmiðurinn að þeirri till. hefur boðið flm. þáltill. á þskj. 70 að vera 1. flm. Það þýðir að allir þeir, sem hafa talað hér, hafa lýst stuðningi við málið og vilja byggja upp íþróttaaðstöðu á Laugarvatni hið fyrsta. Hæstv. menntmrh. hefur lýst yfir að allur Framsfl. sé þessu sammála. Það þýðir að allir hinir í ríkisstj. eru líklega á móti. Með Framsóknarflokkinn, 1. flm. úr meiri hluta stjórnarliða og alla hina til viðbótar, sem hafa lýst fylgi við hana, hlýtur þetta mál að vera leyst. Það hlýtur að vera kominn hér meiri hl. á hv. Alþingi fyrir því framlagi sem menntmrh. taldi sig þurfa til þess að 1. áfangi framkvæmda gæti hafist þegar í stað. Og þá erum við komnir að till. Flm. er búinn að fá sína till. samþykkta ef Alþingi og þm. standa við þau orð sem þeir hafa látið falla hér.

Ég fór ekki á baráttufund fyrir austan, en ég fór á fund fyrir austan. Ég fór í fyrrasumar á fund skólastjóra, Árna Guðmundssonar, heimsótti hann að vísu ekki til þess að ræða þessi mál, heldur var ég þarna að heimsækja barnabörn mín sem voru þar á vegum íþróttafélags héðan úr Reykjavík í eins konar æfingabúðum. Ég verð að segja að allt það starf er til fyrirmyndar, en gæti að sjálfsögðu orðið miklu betra ef við byggðum upp íþróttaaðstöðuna eins og hún á að vera. Að sjálfsögðu á Íþróttakennaraskóli Íslands að vera fyrirmyndaríþróttamannvirki af fullkomnustu gerð fyrir allar íþróttagreinar. — Ég heimsótti sem sagt skólastjóra Íþróttakennaraskólans og hans myndarlega heimili og hann sýndi mér framtíðarhugmyndirnar um uppbyggingu Íþróttakennaraskólans. Ég verð að segja að mér leist afskaplega vel á það sem ég las af þeim blöðum. Þá skoðaði ég þau mannvirki sem eru á staðnum. Að sjálfsögðu sannfærðist ég um réttmæti þeirra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru á Laugarvatni. En það var eitt sem hreif mig mest og miklu meira en allar þessar framtíðardraumsýnir á blöðum. Það var sá hugsjónaeldur sem brann í æðum skólastjórans, sá áhugi sem hann hafði á því að ná árangri. Ná árangri hvar? Í glímunni víð okkur hér, við skilningsleysi þm. Þessi hugsjónaeldur brennur í æðum Árna Guðmundssonar, því að honum er annt um velferð staðarins, og í æðum annarra þeirra sem ég ekki hitti, en veit að eru forustumenn á staðnum. Við megum ekki láta hann brenna út. Við megum ekki láta þessa aðila lifa sitt æviskeið á sama hátt og marga góða forustumenn íþróttamanna, og ég þekki af eigin reynslu, vegna þess að ég var líka ungur einu sinni og líka íþróttamaður, að þeir áttu sér hugsjónir og drauma sem mér datt ekki í hug í þá daga að ég mundi sjá rætast. En sumt af þeim hefur ræst. Aðrir urðu að deyja án þess að hafa séð árangur ævistarfs síns:

En hvert er svo hlutverk Íþróttakennaraskólans? Hvað er Íþróttakennaraskóli Íslands? Hans hlutverk er að undirbúa þá sem gera það að ævistarfi að mennta æskufólk bæði andlega og líkamlega, undirbúa það til starfa í þjóðfélaginu. Þetta er menntastofnun sem á að undirbúa æsku þessarar þjóðar fyrir framtíðarverkefni hennar. Ég verð að segja alveg eins og er, að það má ekkert stöðva hina fyrirhuguðu uppbyggingu á íþróttamannvirkjum fyrir Íþróttakennaraskólann. Það má ekki tefja þau. Ég veit hvernig það var, ég veit hvernig það hefur þróast og ég veit hvernig það nú er að vera íþróttamaður og vera forustumaður íþróttahreyfingar.

Ég hef verið það. Ég hef bæði verið í íþróttakennarafélögum sem nemandi þessara uppbyggjenda, sem íþróttamaður og líka sem leiðtogi stærstu íþrótta- og æskulýðssamtaka landsins, en það er Knattspyrnusamband Íslands sem nýtur í verulegum mæli þess sem íþróttamannvirkin á Laugarvatni hafa að bjóða.

Framlög Alþingis til menntunar leiðbeinenda skóla og íþróttaæsku þjóðarinnar eru góð fjárfesting. Það er fjárfesting í íslensku þjóðinni sjálfri. Því vona ég að við hættum öllu tali fram og til baka á þeirri braut sem rætt hefur verið um þessa þáltill., hvort hún hafi verið lögð fram með formgalla eða ekki. Hún hefur gert sitt gagn. Hún hefur dregið athygli að vandamáli. Það er komin fram tillaga sem leiðréttir þá kannske eitthvað sem er óvenjulegt í framlagningu vegna þingskapa, og málið er þá komið í réttan farveg, hefur verið leiðrétt af öðrum þm. sama kjördæmis sem býður flm. þessarar þáltill. á þskj. 70 að flytja þá till. sem 1. flm. Ég tel það drengskaparbragð, og ég er ekki í nokkrum vafa um að hv. þm. Baldur Óskarsson tekur því boði vel. Þá er málið afgreitt og komið í höfn. Ég vil ekki láta hugsjónafólk á staðnum undir forustu Árna Guðmundssonar skólastjóra snúast í kringum okkur þm., kringum fjvn.-menn, okkur sem hver og einn getur með atkv. sínu greitt götu þessa máls. Ég lýsi yfir fullum stuðningi mínum við þá till. sem væntanlega kemur fram við lokagerð fjárlaga, eins og hér hefur verið kynnt af hv. 5. þm. Suðurl.

Mér þykir leitt að þurfa, áður en ég lýk máli mínu, að verða ósammála hv. 6. þm. Norðurl. e. Ég sé engin merki þess, að íþróttahreyfingin sé að verða gjaldþrota. Ég veit þó um gríðarlega mikla fjárhagsörðugleika einstakra sérsambanda og þá sérstaklega þeirra sem hafa þær kvaðir í sínu starfi að taka verulegan þátt í samskiptum við erlendar þjóðir fyrir Íslands hönd. Að sjálfsögðu þarf að hlaupa undir bagga með þeim að verulegu leyti. Þau hafa ekki aðeins skyldur gagnvart æskunni, sem tekur þátt í keppni, heldur líka gagnvart þjóðinni vegna þess fólks sem tekur þátt í samskiptum við aðrar þjóðir.

Þá vil ég líka benda á það, að eins og hv. þm. veit verður stundum að vinna rólega á bak við tjöldin. Það þýðir ekki að íþróttamál hafi ekki hljómgrunn hér á Alþingi, heldur starfa aðrir þm. þar hljóðlegar en hann. Einmitt á þann hátt tókst samt að hafa fjárveitingu til Íþróttasambands Íslands og annarra sérsambanda verulega hærri á s. l. ári en hún hefur verið nokkru sinni áður. Og ég vil, þrátt fyrir að ég er ekki flokksbróðir fjmrh., þakka honum alveg sérstaklega fyrir framlag hans og undirtektir við íþróttahreyfinguna á s. l. ári og þá auðvitað stjórnarliðinu því að ekki hefur hann einn komið því í gegn. Með því er ég að ítreka efni bréfs sem forseti Íþróttasambands Íslands skrifaði að lokinni fjárveitingu.

Ég ætla ekki að hafa mál mitt lengra. Ég tel að með því að draga athygli að þessu vandamáli hafi fundist lausn sem mér skilst að þingheimur geti sætt sig við. Og eftir þeim orðum, sem hér hafa fallið, bæði frá hæstv. ráðh. fyrir hönd flokks hans í heild og frá einstökum þm. úr hinum ýmsu stjórnmálaflokkum, kæmi mér á óvart ef þessar 5.2 millj. verða ekki samþykktar á komandi fjárlögum.