24.04.1982
Efri deild: 71. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4159 í B-deild Alþingistíðinda. (3790)

159. mál, iðnfræðingar

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég mæli í forföllum iðnrh. fyrir stjfrv. um rétt manna til að kalla sig iðnfræðinga.

Eins og fram kemur í aths. við lagafrv. er frv. lagt fram að ósk Iðnfræðingafélags Íslands og er farið fram á að starfsheitið iðnfræðingur verði lögverndað. Gert er ráð fyrir að vernd starfsheitisins geti gilt um þá sem lokið hafa námi frá Tækniskóla Íslands og sambærilegu námi erlendis. Iðnfræðingar frá Tækniskóla Íslands eru þeir sem auk sveinsprófs í löggiltri iðngrein hafa lokið tveggja og hálfs árs námi í raftækni, véltækni eða byggingartækni.

Í aths. með frv. er rakin forsaga þessa einfalda máls, og sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða hér frekar um það, en vísa til grg.

Ég vil leyfa mér að leggja til að að lokinni þessari umr. verði þessu máli vísað til hv. iðnn.