26.04.1982
Efri deild: 72. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4161 í B-deild Alþingistíðinda. (3798)

153. mál, ríkisbókhald

Frsm. (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Fjh.og viðskn. Ed. hefur tekið til athugunar frv. til l. um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga, nr. 52 frá 1966. Frv. þetta kemur frá Nd. Þar voru gerðar á því tvær breytingar. Nefndin hefur rætt frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Nd. Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru hv. nm. Gunnar Thoroddsen og Ólafur Ragnar Grímsson, en undir nál. skrifa Guðmundur Bjarnason, Kjartan Jóhannsson, Lárus Jónsson, Sigurlaug Bjarnadóttir og Davíð Aðalsteinsson.