26.04.1982
Efri deild: 72. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4167 í B-deild Alþingistíðinda. (3811)
155. mál, námslán og námsstyrkir
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir stjfrv. um námslán og námsstyrki. Þetta frv. var lagt fram í hv. Nd. og hefur hlotið þar mjög ítarlega meðferð í almennum umr. og nefndarstarfi, og held ég að mér sé óhætt að segja að gott samkomulag hafi verið um afgreiðslu frv. Menntmn. Nd. skilaði samhljóða áliti og lagði aðeins til að gerðar yrðu fáar breytingar á frv. eins og það var lagt fram í fyrstu. Engar grundvallarbreytingar voru gerðar á frv. E.t.v. er veigamesta breytingin sú í meðförum hv. Nd., að lok endurgreiðslutímabils skv. 4. mgr. 8. gr. lengist úr 30 árum í 40 ár, sem þýðir það nánast að skuldir við sjóðinn fyrnast almennt ekki á skemmri tíma en 40 árum. Þetta er liður í því að tryggja sem best endurgreiðslu lána og styrkja þannig eiginfjárstöðu sjóðsins sem telja verður annan aðaltilgang þessa frv. Á þetta atriði er vert að benda sérstaklega.
Þá vil ég geta þess í sambandi við 3. gr. frv., þar sem opnaður er viss möguleiki fyrir námsmenn að kaupa sér lífeyrisréttindi á námstímanum, að hv. Nd. setti skýrari reglur um það efni heldur en voru í frv. eins og það var lagt fram af minni hálfu. Segir nú í frv., eftir breytingarnar í Nd., að þeir, sem rétt eiga á láni úr Lánasjóði ísl. námsmanna, skuli eiga þess kost að fá aðild að Söfnunarsjóði Lífeyrisréttinda. Þetta ákvæði, um að opna möguleika fyrir námsmenn til að kaupa sér lífeyrisrétt á námsárum, hefur að vísu sætt athugasemdum ýmissa sem annars styðja þetta frv. Og rétt er það, að hér er um nýmæli að ræða í sambandi við réttindi námsmanna. Hins vegar fullyrði ég að efasemdir margra um réttmæti þessa ákvæðis hafa farið dvínandi.
Í umr. í Nd. varð ekki vart andstöðu gegn þessari hugmynd þegar til kastanna kom, eins og sést af meðferð hv. menntmn. þeirrar deildar á málinu og þessu atriði sérstaklega. Nd. gerði dálitlar breytingar á 7. gr., sem varða ábyrgð á lánum námsmanna, þ.e. að ávallt sé dyggilega gengið frá ábyrgðum með ábyrgðarmönnum meðan á námi stendur og þar til fyrsta afborgun fellur í gjalddaga, en síðan komi til annað öruggt ábyrgðarform og gert ráð fyrir því að ábyrgðarmenn losni undan ábyrgð sinni þegar námstímanum er lokið og búið er að greiða fyrstu afborgun.
Þetta eru þær breytingar sem gerðar hafa verið á frv. síðan það var lagt fram og engar þannig að þær breyti megnefni frv., heldur eru því til styrktar og fyllingar. Ég bendi því enn á það, að frv. fékk mjög góða umfjöllun og góðar viðtökur í hv. Nd. Þar var enginn ágreiningur um málið. Ég vænti þess, að hv. Ed. taki frv. vel og treysti sér til að afgreiða málið sem lög áður en þingi lýkur.
Um frv. er það annars að segja, að það var samið af fjölskipaðri nefnd sem í áttu sæti fulltrúar allra þingflokka og hagsmunasamtaka námsmanna og fulltrúar frá stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna. Nefnd sú, sem hér um ræðir, varð sammála um frv.-gerðina og mæltist til þess, að frv. yrði lagt fyrir Alþingi og gert að lögum. Því er óhætt að segja að víðtæk samvinna hefur verið um undirbúning þessa máls og ólíklegt að betri samvinna geti náðst í sambandi við undirbúning þingmáls en reyndin hefur orðið í sambandi við þetta frv.
Engum blandast lengur hugur um að Lánasjóður ísl. námsmanna er nauðsynjastofnun í íslensku þjóðfélagi og hann á sér hliðstæður í nágrannalöndum okkar. Námslánakerfi er síður en svo séríslenskt fyrirbrigði. Þetta sérstaka lánakerfi hefur verið að þróast úr litlu síðustu 30 ár í umfangsmikla starfsemi á síðustu árum, en fyrstu lög um Lánasjóð voru sett 1952. Allir, sem af alúð kynna sér þessi mál, gera sér grein fyrir að umfang þessarar starfsemi getur naumast minnkað frá því sem er. Hins vegar verður að tryggja að námslánakerfið sé vel skipulagt og sé ekki fjárhagsbyrði á ríkissjóði umfram það sem eðlilegt getur talist. Vel mætti orða það svo, að æskilegt væri að námslánakerfið stæði undir sér sjálft eins og hver annar sjálfstæður rekstur. Og ég tek það fram að þetta frv. er einmitt spor í þá átt að námslánakerfið þróist þannig með árunum að bein fjárhagsbyrði ríkissjóðs fari minnkandi þótt varla geti hún horfið með öllu. Annars er fróðlegt að reyna að átta sig á því, hver fjárhagsbyrði ríkissjóðs hefur verið síðustu 10 ár vegna Lánasjóðs ísl. námsmanna. Sá samanburður leiðir í ljós að fjárhagsbyrði ríkissjóðs hefur ekki vaxið sé miðað við ríkisframlög til sjóðsins sem hlutfall af heildarútgjöldum fjárlaga. Þetta hlutfall hefur lengst af legið á bilinu 1.2% –1.5%. Ef það endurgreiðslukerfi, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., fær að njóta sín í framkvæmd munu eigin tekjur sjóðsins fara vaxandi og hlutfall beinna ríkisframlaga minnka að sama skapi.
Það, sem ég var að segja um vöxt sjóðsins síðustu 30 ár og stöðugleika hans sem útgjaldaliðar á fjárlögum í a.m.k. 10 ár, sýnir augljóslega að námslánakerfið hefur unnið sér fastan sess í opinberum rekstri og á þar heima sem félagslegt réttindamál. Og á það legg ég áherslu, að námslánakerfið er fyrst og fremst félagslegt réttindamál sem er óhjákvæmilegt í nútímaþjóðfélagi. Það er hluti af þeirri stefnu að jafna lífskjörin í landinu. Námslánakerfið eyðir forréttindaaðstöðu í langskólanámi sem fullyrða má að hefði orðið lífseigt ef þessi starfsemi hefði ekki verið tekin upp.
Þegar ég mælti fyrir þessu frv. í hv. Nd. fyrr á þessu þingi flutti ég alllanga og ítarlega ræðu um málið í heild. Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka allt sem ég sagði þá, enda fylgir frv. skýr greinargerð með ýmsum fylgiskjölum. Ég vil þó í örfáum setningum benda á hver eru kjarnaatriði þessa máls.
Í umr. um Lánasjóð ísl. námsmanna á undanförnum árum hefur tvö atriði löngum borið hæst. Annars vegar það áhugamál námsmanna að eiga kost á svokölluðu 100% láni, sem lengi hefur verið í reynd 85–90%, eins og nú er, en hins vegar það vandamál, sem snýr að fjárveitingavaldinu, að efla eigin tekjur sjóðsins. Aðalbreytingar, sem felast í þessu frv., beinast að þessum atriðum. Þannig gerir frv. ráð fyrir að tekið verði upp svokallað 100% lán, en að reglum um endurgreiðslu námslána verði breytt til þess að örva heildarendurgreiðslur til Lánasjóðsins og styrkja þannig fjárhag hans. Þetta er í raun og veru kjarni málsins. Breytingarnar, sem felast í frv., hafa þann tilgang að tryggja þessi kjarnaatriði, þ.e. 100% lán og tryggingu fyrir sem mestri endurgreiðslu lána. Eins og kerfið er nú vantar mikið á að lán endurgreiðist í heild. Háir það eðlilegri þróun og starfsemi sjóðsins og gerir það að verkum, að fjárhagsbyrði ríkissjóðs gæti hvenær sem er vaxið meira en góðu hófi gegnir eða fram yfir það sem ríkissjóður getur risið undir. Úr þessu er frv. m.a. ætlað að bæta og er áætlað að úrbætur á starfsemi sjóðsins hvað þetta snertir komi smám saman fram á næstu árum.
Herra forseti. Ég hef reynt að stytta mál mitt, en vona eigi að síður að hér hafi mikilvægustu atriði málsins komið fram. Ég vænti þess mjög fastlega, að frv. geti orðið að lögum á þessu þingi, enda bendir undirbúningur málsins og viðtökur þær, sem það fékk í hv. Nd., til þess að svo ætti að geta orðið. Í undirbúningi málsins hefur af minni hálfu verið leitast við að fá um það sem víðtækast samstarf ólíkra aðila. Þetta frv. er ekki eins manns verk, heldur árangur af viðtæku samstarfi hinna ólíkustu aðila, enda sýnir þingsagan í 30 ár að lánasjóðsmál námsmanna hafa átt stuðningi og skilningi að fagna í öllum þingflokkum.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, herra forseti, en vænti þess, að málinu verði vísað til 2. umr., þegar þessari er lokið, og til hv. menntmn.