05.11.1981
Sameinað þing: 14. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (382)

67. mál, íþróttamannvirki á Laugarvatni

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður og þaðan af síður skal ég vera mjög hávær þótt ég vissulega hefði haft áhuga á og ánægju að ræða hér um málefni Íþróttakennaraskóla Íslands að Laugarvatni og hlutverk hans.

Hann segir okkur út af fyrir sig nokkuð margt, sá stóri hópur æskufólks sem hér hefur verið í dag og vill með veru sinni hér sýna hug sinn til skólans og Laugarvatns. Ég vil taka það skýrt og greinilega fram, að sannarlega fagna ég komu þessa fólks hingað í dag.

Tilefni þessara umr. er sú þáltill. sem hér er flutt á þsk j. 70 um íþróttamannvirki á Laugarvatni og framtíð Laugarvatns sem menntaseturs. Í greinargerð segir flm. m. a.:

„Þess hefur einnig orðið vart, að ýmsir stjórnendur menntamála í landinu hafa látið uppi efasemdir um réttmæti þess, að Íþróttakennaraskóli Íslands verði áfram á Laugarvatni og framtíð staðarins sem skólaseturs sé óviss. Af þeirri ástæðu sé rétt að draga þetta mál og taka það allt til endurskoðunar.

Við svo búið má ekki standa. Alþingi verður nú þegar að lýsa yfir afdráttarlausum vilja sínum í þessu máli.“

Fyrstu fjárveitingar til byggingar nýs íþróttahúss og sundlaugar á Laugarvatni voru á fjárlögum 1979, síðan 1980 og 1981. Hér var mörkuð stefna af þeim er þá sátu á Alþingi. Mitt mat er að þeir hafi ekki breytt um skoðun hvað varðar Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni.

Ég sé ástæðu til þess vegna þeirra umr., sem hér hafa verið, að þakka alveg sérstaklega Vilhjálmi Hjálmarssyni, fyrrv. menntmrh., og Ingvari Gíslasyni, núv. menntmrh., fyrir skilning þeirra beggja á málefnum Íþróttakennaraskóla Íslands. Þeir hafa vissulega með aðstoð góðra manna rutt hindrun úr vegi.

Menn álitu að leiðin væri orðin sæmilega greið. En því miður — og ég segi aftur: því miður leyndist ljón á veginum með takmarkaðan áhuga á þessu sviði þjóðmála. Það ljón er þó ekki ósigrandi sem betur fer. Strax og þess varð vart, hvaða skaða það hafði hér valdið á góðu máli, urðu menn ákveðnari en áður að halda áfram að ryðja hindrunum úr vegi og tryggja sem best veg þessara skóla.

Það er meginmál, að stefnunni hvað varðar uppbyggingu Íþróttakennaraskólans á Laugarvatni hefur ekki verið breytt. Sem betur fer búum við við það þjóðfélagsskipulag, að hér ræður ekki einhver ein ákveðin persóna. Þetta mál og önnur slík á að afgreiða á Alþingi. Ég er viss um að það mun verða staðfest hér í lýðræðislegum atkvæðagreiðslum við afgreiðslu fjárlaga og stefnan í þessu máli, sem þegar er mörkuð, mun sigra. Þá eru ný íþróttamannvirki á Laugarvatni vissulega í sjónmáli.