26.04.1982
Neðri deild: 71. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4172 í B-deild Alþingistíðinda. (3823)
259. mál, Iðnlánasjóður
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða nema einn þátt þessa frv. sem mér kemur á óvart, og það er, hygg ég, 1. gr. frv. þar sem Iðnlánasjóði er heimilað að lækka framlög til Iðnlánasjóðs úr 0.5% í 0.05%. Mætti kannske segja og spyrja til hvers yfirleitt sé verið að halda eftir þessum 0.05% með þeirri skriffinnsku og fyrirhöfn sem það hlýtur að vera að innheimta skattinn.
Nú er það að vísu rétt, að eftir því sem árin liða og Iðnlánasjóði vex fiskur um hrygg kann að vera að til þess dragi, að óhætt sé að létta af iðnaðinum þessum skyldusparnaði, sem ég kalla, og ég bið skyldusparnaðarmenn alveg sérstaklega að leggja við hlustir. Hvað hefði það þýtt í ár ef þetta gjald, þessi skyldusparnaður á iðnaðinum hefði ekki verið til? Það hefði þýtt, ef Iðnlánasjóður hefði átt að halda útlánagetu sinni, 16 millj. kr. meiri erlendan peningaslátt. Það gegndi ekki öðru máli. Iðnlánasjóður fær samkv. lánsfjáráætlun, ef ég man rétt, 80 millj. (Iðnrh.: Voru það ekki 85?) 85 millj., það leiðréttist hér með. Ég geri ráð fyrir að samsetning þess fjár verði að einhverjum meiri hluta til erlent fé. Ég minni enn á að nú um stundir hefur nokkur samdráttur átt sér stað í iðnaði og sér í lagi á síðasta ári. Vegna ástæðna hans hafa áform um fjárfestingu dregist saman, og það er rétt, það þarf að létta á rekstrarstöðu iðnaðarins. Að því leyti er hægt að taka undir þetta sjónarmið og eins með vísan til þess, sem ég áður sagði, að sjóðnum muni vaxa svo fiskur um hrygg að hann sé í færum um að missa af þessum eiginfjárstofni sem ég kalla, tekjustofni sem rennur til hans sem eigið fé. En þann veg er umhverfið ekki enn þá að þessu leyti. Og þegar það er haft í huga að við erum komnir fram af brúninni um söfnun erlendra skulda, þá er þetta á þessum tímum ekki rétt stefna. Ég hlýt að lýsa yfir fullkominni andstöðu minni við hana. Ég hygg að það muni fljótlega rakna úr fyrir iðnaðinum, og þá veitir honum ekkert af að eiga öflugan fjárfestingarlánasjóð. Eins ef raknar úr fyrir honum verður hann í þeim mun betri færum um að standa undir þessum skyldusparnaði sínum. En meðan svo er að hann þarf að leita lána til starfrækslu sinnar í svo stórum stíl sem raun ber vitni um nú, þá tekur það engu tali að fella niður þennan skatt til sjóðsins.
Ég vil upplýsa það sem mönnum er e.t.v. kunnugt um, að þetta fellur að stefnu Sjálfstfl. sem hann hefur mótað um að slíkt gjald skuli fellt niður. En það er ekki sama hvenær og undir hvaða kringumstæðum það er gert. Enn eru þessar ástæður ekki fyrir hendi. Það er áreiðanlegt að þeir hjá iðnaðinum þurfa að sýna fram á stórminnkaða þörf frá því sem nú er á erlendum lántökum áður en hægt sé að verða við óskum þeirra um að fella niður þessa söfnun eigin fjár Iðnlánasjóðs. Og ég endurtek það um skyldusparnaðarmenn, sem leggja stórt undir nú í skattlagningu, eins og sumir vilja kalla það, að mér kemur á óvart að þeir skuli samhliða skyldusparnaðartillögum sínum leggja til að þessi sjálfsagði skyldusparnaður, sem ég vil kalla, verði lagður niður. Og enn þyrfti að fá upplýsingar um hvernig stendur á því að á að hanga á þessum 0.05% með þeim örðugleikum sem hljóta að fylgja slíkri innheimtu, miðað við örlítið fjármagn.
Ég bið þá nefnd, sem þetta færi til meðferðar, alveg sérstaklega að athuga þetta mál. Og ég spyr enn: Er ekki kostur á að taka þetta mál til umr. á haustþingi, en ekki rubba því af á allra síðustu stundum á starfstíma hins háa Alþingis nú? Ég þarf að fá miklu haldbetri rök en ég hef til þessa heyrt fyrir því, að þessu megi hætta. Ef Iðnlánasjóður hefði átt að hafa sömu fyrirgreiðslugetu í ár og hann hefur, en þetta gjald hefði verið búið að fella niður, þá hefði þurft að auka erlendar lántökur um 16 millj. kr. Og það eru líka peningar, þegar menn eru sammála um, stjórnarliðið, að fulltroðið sé varðandi erlendar lántökur og stjórnarandstæðingar stórgagnrýnir á hinar hrikalegu erlendu lántökur og skuldasöfnun erlendis.