26.04.1982
Neðri deild: 72. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4189 í B-deild Alþingistíðinda. (3847)
215. mál, skattskylda innlánsstofnana
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Fyrir nokkrum árum, áður en Alþb. tók þátt í að bjarga virðingu Alþingis undir forustu Gunnars Thoroddsens, var formaður þáv. þingflokks Alþb., Lúðvík Jósepsson, tíður gestur í þessum ræðustól. Hann hafði þá jafnan við orð, að það væru ekki vandræði að finna peninga í íslensku þjóðfélagi, það væri til nóg af peningum, spurningin væri bara um viljann til að sækja þessa peninga. Nú hefur komið í ljós að gengið hefur ákaflega erfiðlega fyrir Alþb. að finna þessa peninga sem nóg átti að vera til af, og hafa ýmsar tillögur um það komið fram, sumar hverjar broslegar, svo sem þegar þeim datt í hug að sækja sér stórauknar tekjur í uppfærslu af gjaldeyriseign Seðlabankans sem óx í réttu hlutfalli við lækkun íslensku krónunnar á almennum gjaldeyrismörkuðum.
Þá er einnig nokkuð lærdómsríkt í sambandi við þetta sérstaka mál, sem hér er til umr., að á sama tíma og ríkisstj. hyggst sækja gull í greipar bankavaldsins, sem hefur jafnan verið vinsælt umræðuefni hjá þeim Alþb.mönnum, er haldinn aðalfundur yfirbanka okkar Íslendinga, Seðlabankans, þar sem kemur í ljós að sá ágæti banki var rekinn með allverulegum halla á s.l. ári, þannig að ekki vænti ég að þar sé mikið gull að finna.
Ég ætla, herra forseti, ekki að hafa langt mál um þetta frv., enda á ég kost á að skoða það í þeirri nefnd sem frv. fer til, en aðeins vekja athygli á því, sem hér hefur raunar komið fram, að eignir bankanna skapast að sjálfsögðu af viðskiptum þeirra. Það eru sparifjáreigendur sem fyrst og fremst eiga að njóta góðs af því ef bankarnir eru reknir með góðum rekstrarárangri. Þeir eiga að njóta þess í verðtryggingu þess fjármagns sem þeir leggja inn í þessa banka til afnota fyrir atvinnulífið og einstaklinga sem á slíkri lánafyrirgreiðslu þurfa að halda. Þegar ákveðið er að skattleggja þessa milliaðila, sem bankarnir eru í viðskiptum lánþega og lánveitenda, er auðvitað alveg ljóst að möguleiki bankastofnananna til að veita annaðhvort fyrirgreiðslu eða verðtryggja innlánsfé minnka að sama skapi. Sá skattur, sem hér er um að ræða og hæstv. ríkisstj. leggur til að samþykkt verði lög um hér á Alþingi, er því alls ekki skattur á bankana sem einhvern sjálfstæðan og óháðan aðila í „fjármálastrúktúr“ þjóðfélags okkar, heldur er um að ræða skattlagningu á viðskiptamenn bankanna, sem annaðhvort mun verða til þess, að bankarnir geta ekki verðtryggt innlán fólksins í landinu í þeim mæli, sem fólkið væntir af þessum bönkum, ellegar þá hitt, að bankastofnanirnar verða að hætta við að sinna nauðsynlegum fyrirgreiðslum sem þessar stofnanir þurfa að veita bæði einstaklingum og atvinnufyrirtækjum. Út af fyrir sig er ekkert óeðlilegt, ef um er að ræða hagnað hjá bankastofnunum landsins sem fólki finnst óeðlilega mikill, að reynt sé að ráðstafa einhverju af slíkum hagnaði þannig að almenningur fái notið hans. Það væri t.d. hægt að gera með þeim hætti sem við Alþfl.-menn höfum lagt til, að bankarnir taki að sér að veita húsbyggjendum tiltekna fyrirgreiðslu. En að fara að skattleggja þessar stofnanir í ríkissjóð til þess aðeins, að ríkissjóður geti fundið enn eina matarholuna til að ganga í, er að sjálfsögðu ekkert annað en það, að leitað er að enn einni aðferð — ekki til þess að skattleggja þessar tilteknu stofnanir, heldur þá aðila, einstaklinga og atvinnufyrirtæki, sem njóta þjónustu þessara stofnana.