27.04.1982
Sameinað þing: 80. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4210 í B-deild Alþingistíðinda. (3877)
119. mál, afgreiðsla ríkisstjórnarinnar á frumvarpi um söluskatt
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Víst er málið ekki einfalt. Það er flókið. En eru ekki söluskattslögin öll og framkvæmd þeirra býsna flókin? Þetta er aðeins eitt atriði sem ekki er svo miklu flóknara en önnur að það þurfi að standa hér í veginum.
Það var talað um að erfitt væri að skilja flutningskostnaðinn frá verðinu. Auðvitað yrði það gert með því móti, og það hafa kaupmenn bent á sjálfir, að haldið yrði saman nótum og reikningum yfir flutningskostnað og hann dreginn frá áður en söluskattur er lagður á vöruna. Þetta er m.ö.o. bókhaldsatriði, sem er ekki flóknara en hvað annað sem kaupmenn verða við að búa í versluninni. Auðvitað er hér um að ræða fyrst og fremst að það er um örlitinn tekjumissi ríkissjóðs að ræða. Í fyrra, þegar við reyndum að reikna út hverju þetta mundi nema, var talað um 10 millj. árlega sem það mundi kosta ríkissjóð. Það er talið að jafnvel geti flutningskostnaður numið um 4–5% af söluverði. Þetta er þó nokkur ábót á fólk úti á landi. Við skulum gá að því, að þetta er í flestum tilfellum fólkið sem greiðir fimmfaldan hitunarkostnað á við fólk hér syðra. Þannig má lengi bæta á, ég veit ekki hvað lengi, án þess að bent sé á ranglætið og þess farið á leit svo að ekki verði um villst, að gerð verði tilraun til að lagfæra þetta. Þó að þessu frv. yrði e.t.v. ekki fylgt til hlítar hljóta að vera aðrar leiðir. Hér mun það vera sem fyrr, að það er viljinn sem þarf.