27.04.1982
Sameinað þing: 80. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4215 í B-deild Alþingistíðinda. (3886)

362. mál, heilsugæsla á Þingeyri

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Vegna þessarar fsp. hv. þm. Sighvats Björgvinssonar er rétt að það komi fram hér, að það hefur gengið betur og betur á síðustu árum að fá lækna til að gegna læknishéruðunum og heilsugæsluumdæmunum í landinu. En þó eru nokkur einmenningslæknishéruð, þ.e. læknishéruð þar sem á að vera heilsugæslustöð H 1, sem hefur reynst mjög erfitt að manna. Ég ætla að nefna þar þrjú sérstaklega. Það eru heilsugæslustöðin á Þingeyri, heilsugæslustöðin á Djúpavogi og heilsugæslustöðin á Kópaskeri.

Hvað Þingeyri snertir sérstaklega, sem spurt er um hér, hafa læknar yfirleitt fengist þar til skammtímadvalar á sumrin og haustin, en yfir vetrarmánuðina hefur reynst mjög erfitt og stundum ómögulegt að fá lækna til dvalar. Á Þingeyri var ekki læknir frá því í okt. 1981 og þar til í lok febr. eða byrjun mars samkv. þeim upplýsingum sem ég hef undir höndum. Gert var ráð fyrir að það fengjust læknanemar til að sinna störfum á Þingeyri frá því í marsmánuði, og var vonast til að framhald yrði á því þar til kæmi fram á sumar og kandídatar eða fullmenntaðir læknar fengjust til þessara starfa.

Hér er oft notað, eins og menn taka eftir, orðalagið „fást til þessara starfa,“ og það stafar af því, að það er mikið reynt satt að segja, bæði af landlæknisembættinu og heilbrmrn., en þó sérstaklega landlæknisembættinu, til að fá menn til að setjast að á þessum stöðum. En það virðist verða erfiðara og erfiðara að fá menn til að fara í einmenningshéruð. Mér finnst það í rauninni ýta undir að löggjafinn velti því fyrir sér, hvort það verður ekki að koma til móts við þetta með því að viðurkenna þá staðreynd, hvað þetta hefur verið erfitt, og þá með því að sameina einmenningshéruð og gera þau að H 2 umdæmum frekar til að auðvelda að fá menn til starfa. Hinir nýju ungu læknar, sem við höfum fengið út úr skólakerfinu á undanförnum árum með langt framhaldsnám, m.a. í heimilislækningum, eru síst fúsari en aðrir fyrr á árum til að fara í hin afskekktu héruð til erfiðra starfa, svo ekki sé fastar að orði kveðið, — síst fúsari en þeir sem áður gegndu störfum í þessum héruðum árum og áratugum saman.

En í þessu sambandi og varðandi Þingeyri er rétt að geta þess, að þar hefur starfað hjúkrunarfræðingur með sérmenntun í ljósmóðurfræðum. Það er mat heilbr.- og trmrn., og mér er mikil ánægja að láta það koma fram hér, að þessi hjúkrunarfræðingur hafi sýnt sérstakan dugnað og samviskusemi í starfi. Þá vil ég og geta þess, að þann tíma, sem ekki hefur verið læknir eða læknanemi á Þingeyri, hefur Flateyrarlæknir átt að hafa reglulega móttöku á Þingeyri og átti m.a. að hafa það á þessum vetri samkv. upplýsingum sem ég hef frá landlæknisembættinu.

Herra forseti. Ég hef ekki tök á að svara þessari spurningu með öðrum hætti og vænti þess, að fsp. sé svarað að svo miklu leyti sem það er mögulegt. Þetta svar vekur kannske miklu fleiri spurningar; þegar allt kemur til alls, um almenna stöðu okkar heilsugæsluumdæma í hinum dreifðu byggðum landsins, en ég vil leggja á það áherslu og það er mín skoðun, að það séu einkum tvö umdæmi sem þarna þurfi að athuga mjög vel tvö H 1 umdæmi, þ.e. Djúpivogur og Þingeyri, og ég vil nefna þann möguleika að Alþingi við afgreiðslu fjárlaga í haust fyrir árið 1983 taki beinlínis sérstakt tillit til vandamála af þessum toga við ákvörðun á fjárveitingum til heilsugæslunnar í landinu.