27.04.1982
Sameinað þing: 81. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4233 í B-deild Alþingistíðinda. (3899)

364. mál, utanríkismál 1982

Forseti (Jón Helgason):

Um hádegið óskaði formaður þingflokks Sjálfstfl. eftir því, að gefið yrði hlé til þingflokksfunda í dag. Samkomulag varð milli okkar um að það yrði kl. 5. Fundi yrði þá frestað til kl. hálfníu. Þar sem næsti maður á mælendaskrá um utanríkismál, hv. 5. þm. Vesturl., tjáði mér að hann mundi ekki verða búinn að ljúka sinni ræðu kl. 5, taldi ég að það væri æskilegra að fresta umr., áður en hann byrjaði, heldur en fara að slíta í sundur ræðu. Þess vegna tel ég þetta óeðlileg mótmæli. Hins vegar ætlaði ég að nota tímann nú til þess að renna í gegn umræðulitlum málum fram til kl. 5.