28.04.1982
Efri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4279 í B-deild Alþingistíðinda. (3925)
221. mál, búnaðarmálasjóður
Frsm. (Jón Helgason):
Herra forseti. Landbn: hefur fjallað um frv. til laga um búnaðarmálasjóð. Eins og í frv. til laga um breytingu á lögum um Stofnlánadeildina er hér um að ræða lagfæringar á atriðum sem eru orðin úrelt í núgildandi lögum vegna breytinga á verslunar- og framleiðsluháttum í landbúnaði og nýrra búgreina:
Landbn. er sammála um að mæla með samþykkt þessa frv. eins og hins.
Fjarverandi við afgreiðslu málsins var Þorv.: Garðar Kristjánsson.