28.04.1982
Efri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4281 í B-deild Alþingistíðinda. (3937)

107. mál, almannatryggingar

Frsm. meiri hl. (Davíð Aðatsteinsson):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um frv. til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum.

Það frv., sem hér er til umr. fjallar um fjármögnun á rekstri spítalanna. Eins og kunnugt er var með lögum nr. 117/1976 ákveðið að fjármagna rekstur ríkisspítalanna frá og með árinu 1977 með beinum framlögum úr ríkissjóði eins og þau yrðu ákveðin hverju sinni á fjárlögum.

Frv. það, sem hér er flutt, gerir ráð fyrir sömu breytingu á fyrirkomulagi á greiðslu rekstrarkostnaðar fleiri sjúkrahúsa án þess að þau séu talin upp nákvæmlega. Það yrði í raun og veru ákveðið samkvæmt ákvörðun Alþingis við afgreiðslu fjárlaga hverju sinni.

Meiri hl. heilbr.- og trn. leggur til að frv, verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Nd: Fram skal tekið að Karl Steinar Guðason ritar undir nál: með fyrirvara, en hv. alþm. Lárus Jónsson og Salome Þorkelsdóttir skila séráliti, og verður eflaust greint frá því hér síðar.