28.04.1982
Efri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4281 í B-deild Alþingistíðinda. (3938)
107. mál, almannatryggingar
Frsm. minni hl. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Við hv. þm. Salome: Þorkelsdóttir höfum skilað séráliti út af þessu máli: Það er vegna þess að við teljum það ekki nægjanlega undirbúið, það þurfti að athuga betur aðrar leiðir til að fjármagna þessar sjúkrastofnanir heldur en gert er ráð fyrir í frv. og yfirleitt sé málið ekki nægjanlega vel undirbúið.
Við leggjum til að því verði vísað til ríkisstj.