28.04.1982
Efri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4295 í B-deild Alþingistíðinda. (3956)

30. mál, lyfjadreifing

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Vegna síðustu orða formanns hv. heilbr.- og trn. Ed. vil ég nú bara leiðrétta þennan misskilning. Það hefur enginn sagt að hv. 3. þm. Vesturl. hafi verið leiðinlegur í þessum nefndarstörfum, síður en svo.

En eins og fram kom hjá formanni nefndarinnar, hv. 3. þm. Vesturl., í framsögu með nál., hafa ýmsir skrifað hér undir með fyrirvara. Þar á meðal er ég og hv. þm. Lárus Jónsson. Ástæðan fyrir okkar fyrirvara er fyrst og fremst sú, að það eru ýmis ákvæði í þessu frv. sem falla ekki að okkar sjónarmiðum. Okkur þykir vera um of mikil ríkisafskipti og miðstýringu að ræða. En í meðförum nefndarinnar hefur verið tekið tillit til sumra sjónarmiða okkar, og það kemur fram í brtt. sem eru fluttar á sérstöku þskj. Við munum greiða atkv. með þeim brtt., en væntanlega sitja hjá við lokaafgreiðslu málsins.