28.04.1982
Efri deild: 76. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4304 í B-deild Alþingistíðinda. (4000)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Frsm. 3. minni hl. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Á sínum tíma áttu þm. Alþfl. þátt í að leggja sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði og var sá skattur hugsaður sem tímabundið úrræði, nánar tiltekið til eins árs. Þm. Alþfl. hafa síðar fallist á tilmæli um tímabundna framlengingu þessa skatts, a.m.k. tvívegis, en það er skoðun þingflokks Alþfl. að gjalda beri varhug við að festa slíka skammtímafjáröflun í sessi, enda löngu kunn staðreynd og mikill sannleikur í því, að skattar, sem einu sinni eru álagðir hér á landi, hafa tilhneigingu til að lifa um aldur og ævi, virðist vera.

Það er skoðun okkar Alþfl.-manna að það sé nú kominn tími til að stöðva þessa þróun. Þegar fjárlög voru afgreidd fyrir þetta ár lagði þingflokkur Alþfl. til að þessi skattur yrði felldur niður í tveimur áföngum, þ.e. lækkaður um helming á þessu ári og felldur alveg niður á næsta ári. Þá kom fram að þetta sjónarmið virtist eiga nokkrum skilningi að mæta m.a. hjá hv. þm. Framsfl., sem báru því við að nægur tími væri til að taka afstöðu til þessa máls nú á vordögum. Nú er einmitt að því komið, og þess vegna þykir okkur þm. Alþfl. rétt að láta reyna á hvort hugur fylgdi máli hjá hv. þm. Framsfl. þegar þessi skoðun þeirra kom fram.

Ég hef leyft mér að flytja á sérstöku þingskjali brtt. um að þessi skattur verði lækkaður um helming. Verði sú tillaga samþykkt munum við Alþfl.-menn greiða atkvæði með framlengingu skattsins í þessu formi í eitt ár til viðbótar, en verði sú tillaga hins vegar felld, sem ég á ákaflega erfitt með að trúa, munum við greiða atkv. gegn frekari framlengingu þessa skatts, sem ef til vill ætti að vera búið að afnema fyrir löngu. — Og ég tek undir það, sem hv. þm. Lárus Jónsson sagði áðan, að því verður veitt sérstök athygli, hvernig tveir hæstv. ráðh. greiða nú atkvæði, og raunar verður því ekki veitt athygli bara hér í þessum þingsal, heldur miklu víðar.