28.04.1982
Neðri deild: 73. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4310 í B-deild Alþingistíðinda. (4028)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Það er ofureðlilegt að hv. 6. landsk, þm., Karvel Pálmason, geri þetta mikla vandamál að umtalsefni, svo mikla örðugleika sem fólk í ýmsum landshlutum á við að etja vegna hitunarkostnaðar. Ég vil taka það fyrst fram, að í stjórnarsáttmála ríkisstj. segir að unnið verði að verðjöfnun á orku, ekki síst á sviði húshitunar. Að þessu hefur verið unnið á síðustu misserum og mánuðum. M.a. var ákveðið í desember s.l. að hækka olíustyrk mjög verulega. Hver styrkur varð þannig 75% hærri í lok síðasta árs en verið hafði árið á undan. Enn fremur voru greiddar uppbætur fyrir allt árið og hækkunin þannig gerð afturvirk. Í lok síðasta árs var kostnaður við upphitun með olíu fyrir notendur um 65% til jafnaðar af raunverulegum kostnaði við olíuhitun. Þegar borið er saman við hitaveitur kemur það auðvitað í ljós, að hitunarkostnaður frá hitaveitum er mjög mismunandi. Hjá þeim, sem nýjastar eru og dýrastar, er hitunarkostnaðurinn ekki langt frá því sem ég lýsti, en að sjálfsögðu er kostnaður við upphitun frá hitaveitum sem betur fer víðast hvar talsvert lægri og langlægstur í Reykjavík.
Ríkisstj. hefur lagt áherslu á að vinna að jöfnun á orkuverði án þess að það valdi aukinni verðbólgu í landinu, og í efnahagsyfirlýsingu ríkisstj. frá því í janúar s.l. var sérstakt ákvæði um þetta að finna. Viðræður hafa átt sér stað að undanförnu við aðila vinnumarkaðarins um nýtt viðmiðunarkerfi í stað þess vísitölukerfis sem nú er búið við, og er þar m.a. lögð á það áhersla af hálfu viðræðunefndar ríkisstj., að ráðstafanir til jöfnunar á orkukostnaði hafi ekki áhrif til þess að auka verðbólgu í landinu.
Á s.l. ári, það mun hafa verið í júlímánuði, skipaði hæstv. viðskrh. nefnd til þess að endurskoða lög frá 1980 um jöfnun og lækkun hitakostnaðar. Þessi nefnd hefur nú skilað áliti og var skýrt frá því á ríkisstjórnarfundi í gær. Álit nefndarinnar verður rætt ítarlega í ríkisstj. og verður sent hv. þm. þessa dagana. Nefndina skipuðu þessir menn: Guðmundur Bjarnason alþm., formaður, Eggert Haukdal alþm., Gunnar R. Pétursson rafvirki, Kjartan Ólafsson ritstjóri og Þorv. Garðar Kristjánsson alþm. Í grg. nefndarinnar er mikinn fróðleik að finna. Þar er gerð úttekt á þessum málum og bent á ýmsar leiðir til að ná því marki að jafna hitunarkostnað. Í nefndarálitinu segir m.a. að nefndin telji brýnt að ná nú þegar þeim áfanga að munurinn milli ódýrustu og dýrustu upphitunar verði ekki meiri en þrefaldur. Að þessari stefnumörkun virðast nefndarmenn allir standa. Ég skal ekki rekja hér þetta nefndarálit, það kemur í hendur hv. alþm. nú alveg á næstunni.
Annar þáttur þessa máls er jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar með orkusparnaði. Hæstv. iðnrh. skipaði sérstaka orkusparnaðarnefnd sem unnið hefur mikið starf á þessu sviði að undanförnu. Með fræðslu og leiðbeiningum um bættan frágang húsa hefur reynst unnt að lækka svo um munar hitunarkostnað hjá mörgum notendum. Nokkurt fé hefur verið veitt í þessu skyni og áhugi er á aukinni starfsemi af þessu tagi. Á síðasta ári var tekinn upp sérstakur lánaflokkur samkv. nýjum lögum um Húsnæðisstofnun, lánaflokkur til orkusparandi endurbóta á húsnæði. Öllum lánshæfum umsóknum hefur verið sinnt og voru veitt 190 lán í þessu skyni á s.l. ári. Ljóst er að jöfnun á hinum raunverulega kostnaði manna við upphitun húsa næst ekki nema með miklu átaki, bæði á sviði orkusparnaðar og með öðrum aðgerðum.
Það var í febrúarmánuði s.l. sem ríkissáttasemjari ræddi við mig um þessi vandamál. Það er auðvitað ljóst, að ekki síst á Vestfjörðum verða menn fyrir þungum og alvarlegum búsifjum af þessum ástæðum. Ég sendi svo ríkissáttasemjara, sem þá var staddur á Ísafirði við lausn vinnudeilu, skeyti vegna fyrirspurnar hans sem hljóðaði svo: „Ríkisstj. vinnur að verðjöfnun á orku, ekki síst á sviði húshitunar. Til þess að greiða fyrir því máli verður í viðræðum, sem nú eru hafnar við aðila vinnumarkaðarins um nýtt viðmiðunarkerfi, reynt að finna leiðir til þess, að ráðstafanir til að jafna orkukostnað landsmanna valdi ekki aukinni verðbólgu.“ Fyrir nokkru var olíustyrkur hækkaður að mun. Þá verður það mál skoðað hvernig unnt er að jafna aðstæður fólks vegna búsetu, m.a. með jöfnun flutningskostnaðar. Á næstunni verða þessi mál svo áfram, eins og verið hefur undanfarna mánuði og misseri tekin til umfjöllunar í ríkisstj., ekki síst á grundvelli þess nefndarálits sem komið er fram frá þeirri nefnd er ég gat um. Hvort unnt verður að leggja fram tillögur þá fáu daga, sem væntanlega eru eftir af þessu þingi, get ég ekki um sagt, en tel það ekki líklegt.