28.04.1982
Neðri deild: 73. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4312 í B-deild Alþingistíðinda. (4029)
Umræður utan dagskrár
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. 6. landsk. þm. Hér er um mál að ræða sem varðar stóra hópa í okkar þjóðfélagi sem búa við það mikla óréttlæti sem ég þarf ekki að tíunda hér hvað er. Það er búið að tala um þetta svo oft að það vita allir. Ég vil aðeins minna á það að í umr. hér á s.l. hausti og raunar oftar í vetur, þegar þessi mál hefur borið á góma, hefur mjög verið vitnað til starfa þeirrar nefndar sem skipuð var til að gera úttekt á þessu máli og kanna leiðir til úrbóta. Það var eðlilegt að okkar hálfu, sem styðjum þessa ríkisstj., að bíða eftir þessari úttekt og þeim hugmyndum eða tillögum sem frá nefndinni kynnu að koma.
Mér finnst alveg nauðsynlegt að undirstrika það hér og nú, að ég tel að það sé sjálfsögð krafa, eftir að þessi úttekt hefur farið fram, eftir að staðreyndir málsins eru komnar á borðið og eftir að ljóst er hvað það muni kosta að jafna að nokkru þennan mikla mismun, þá sé það eðlileg krafa að ætlast til þess, að við fáum ákveðnar hugmyndir um það, hvernig ríkisstj. hyggst draga að nokkru úr þeim mikla mismun sem þarna er á búsetuskilyrðum fólks. Það hefur verið talað um það oftar en einu sinni og liggja fyrir skjallegar staðreyndir um það, að þessi munur getur verið allt að sexfaldur og er það. Þess vegna er hér ekki um neitt smámál að ræða. Mér finnst þess vegna að það sé alger lágmarkskrafa nú að ættast til þess, að ríkisstj. geri grein fyrir því, á hvern hátt hún ætlar að leysa úr þessu vandamáli. Ég tel að það séu möguleikar til að gera það án þess að þurfi að koma til lagafrv. á þessu þingi. Eins og allir hv. alþm. vita er í fjárlögum sérstakur liður sem er merktur til orkujöfnunar í landinu. Hvort sem það eru mistök eða ekki, þá er þessi liður til, þannig að miðað við allar aðstæður tel ég tök á að ná því markmiði sem hér hefur verið bent á að er í tillögum nefndarinnar, að þessi munur verði ekki meira en þrefaldur. Hér mun vera um að ræða upphæð sem er ekki stærri en svo að það ættu að vera möguleikar fyrir ríkissjóð að leysa þegar að hluta til sem áfanga þennan vanda og nota þá þinghlé til þess að gera raunhæfar tillögur til frekari jöfnunar á þessu sviði.
Ég vildi sem sagt taka undir það, sem hér hefur komið fram, og þakka um leið fyrir þær upplýsingar sem hæstv. forsrh. gaf hér. Við, sem erum fulltrúar þess fólks sem treystir á að eitthvað verði gert raunhæft í þessum málum, getum ekki lengur beðið án þess að hafa einhverja vissu fyrir því, að í alvöru verði tekið á þessum málum. Og ég endurtek: Það eru möguleikar til að gera það. Það þarf ekki mjög mikið fjármagn til að ná því marki, að þetta sé þreföldun. Ég er viss um að það er hægt. Og ég vil láta það koma fram hér að ég mun ekki og ég veit að svo er um fleiri hv. þm., við munum ekki liggja undir því þessa daga að ekkert komi fram frá hæstv. ríkisstj. til lausnar þessu máli, hvort sem það yrði í formi yfirlýsingar eða raunhæfra tillagna, áður en þinglok verða. Ég lýsi því hér yfir.