28.04.1982
Neðri deild: 73. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4319 í B-deild Alþingistíðinda. (4035)

Umræður utan dagskrár

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég tek undir það sem hæstv. iðnrh. sagði áðan, að auðvitað er hér um verulegt átak að ræða í þeim efnum að auðvelda mönnum viðhald húsa sinna, að bæta einangrun þeirra o.s.frv. til þess að hitunarkostnaður verði minni. Ég hef einmitt flutt slíkt mál hér á Alþingi, þar sem ég lagði til að viðgerðir og viðhald af því tagi yrði frádráttarbært við álagningu tekjuskatts eins og var hér fyrrum, en það frv. hefur ekki notið skilnings hjá hæstv. ríkisstj. Það er þó miklu ódýrari leið en sú sem hæstv. ráðh. vill fara. Ég vil mjög hvetja hann til að íhuga hvort ekki mætti hafa hliðsjón af því við álagningu tekjuskatts ef menn vildu endurbæta hús sín og laga til þess að minnka hitunarkostnaðinn. En vegna þess að þau fyrirheit, sem hæstv. ráðh. og hans rn. gaf um fyrirgreiðslu til þess arna, hafa verið mjög ófullnægjandi og stundum ekki við þau staðið, þannig að menn hafa lent í erfiðleikum af þeim sökum, vil ég á hinn bóginn aðeins segja það, að ríkisstj. hefur ekki staðið við þær skuldbindingar sem hún tók á sig þegar orkujöfnunargjaldið var lagt á. Í reynd hefur það gjald verið notað til þess að jafna greiðsluhalla ríkissjóðs um áramót í staðinn fyrir að greiða það út fyrir áramótin. Þessi skattur sem margur annar hefur snúist svo í höndum skattgreiðenda að ríkisstj. hefur notað þessa peninga sem eyðslufé til þess að draga á langinn greiðslur en auka fjárhagslegt svigrúm sitt að öðru leyti.

Ég skal svo ekki lengja þessar umr., en aðeins lýsa þeirri skoðun minni að eitthvert mesta óréttlæti, sem viðgengst í þessu þjóðfétagi, er einmitt mismunandi hitunarkostnaður. Sum byggðarlög eiga sér varla viðreisnar von ef svo heldur fram sem horfir, að hið opinbera brýtur ekki í blað og tekur myndarlega á þessu máli. Fyrir því er þingvilji. Ekki stendur á stjórnarandstöðunni. Spurningin er einungis hvenær ríkisstj. og þeir kumpánar vakna.