28.04.1982
Neðri deild: 73. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4322 í B-deild Alþingistíðinda. (4039)

131. mál, útflutningsgjald af grásleppuafurðum

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég sé á þskj. 738 að þar hefur fallið niður smáleiðrétting. Um það varð samkomulag í nefndinni, að 4. liður 3. gr., Til samtaka grásleppuhrognaframleiðenda, yrði almennur þannig að opin leið væri til þess, ef þessi samtök klofnuðu, að útflutningsgjaldið skiptist í réttum hlutföllum. Því varð samkomulag um það í nefndinni, að þar yrði lítið s, þar kæmi: Til samtaka grásleppuhrognaframleiðenda, og vil ég leggja fram brtt. í samræmi við það til leiðréttingar frá mér og formanni sjútvn., Garðari Sigurðssyni, hv. 4. þm. Suðurl.

Ég vil almennt segja um þetta mál, að það hefur verið lengi á leiðinni í gegnum þingið, sem er eðlilegt vegna þess að mjög skiptar skoðanir eru um það meðal grásleppuveiðimanna, hver nytsemi hefur orðið af þessum félagsskap, og eins um þá hugmynd, sem kom fram á sínum tíma, að sérstök skemma yrði reist í Reykjavík, hrognageymsla, sem kostaði verulegt fé, en grásleppuhrognaframleiðendur víða úti um land sáu ekki á hinn bóginn að væri sér til hagsmuna á nokkurn hátt og höfðu meira að segja grun um að slík skemmubygging gæti orðið þeim til trafala og reynst þeim dýrari en ella. Skoðun þeirra hefur í stuttu máli verið sú, að þeir vilja njóta þeirrar veiði, sem þeir draga í land, og hafa bent á að tilgangurinn með grásleppusókninni sé að afla sér tekna, en ekki að skipta fénu á ólíkar hendur, skattleggja sjálfa sig, eins og þeir tala um. Ég hef hér fyrir framan mig undirskriftir 70 manna sem hafa stundað grásleppuveiðar, þar sem þessu frv. var mótmælt og þá sérstaklega ákvæðinu um skemmubáknið í Reykjavík. Nú hefur það bákn verið fellt út úr frv. á þessu þingi þannig að ekki er lengur um það að ræða.

Það liggur jafnframt fyrir að ýmsir grásleppuveiðimenn hafa sagt sig úr Samtökum grásleppuframleiðenda eða eru í þann veginn að segja sig úr þeim á stórum landssvæðum, eftir því sem ég kemst næst, og með því að breyta 3. og 4. gr. á þá lund sem hér er gert ráð fyrir, setja lítinn staf í stað stórs, sé ég ekki betur en komið sé til móts við óskir þeirra. En á hinn bóginn er það jafnopið, ef samkomulag tekst innan þessa félagsskapar og þeir ná aftur saman, að þá njóti þessi samtök þess og taki þá til sín það gjald sem hér er gert ráð fyrir.

Ég vil segja það sérstaklega í sambandi við 1. tölul. 3. gr., að auðvitað er ég þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé að koma við slysa- og örorkutryggingum hjá sjómönnum almennt, bæði á opnum bátum og öðrum. Nú hefur misbrestur orðið á þessu hjá opnum bátum, ekki aðeins á grásleppuveiðum, heldur einnig á þorskveiðum, og tel ég raunar að þetta frv. sé aðeins skref í þá átt að koma þeim málum í rétt horf. Ég hefði viljað fara hér aðrar leiðir, sem ég tel að séu fullnægjandi til að ná þessu sama markmiði, en hef til samkomutags fallist á að standa ekki gegn frv. þar sem um það hefur tekist samkomulag að þeir útgerðaraðilar, sem sjálfir vilja sjá um sínar tryggingar, eigi rétt á endurgreiðslu útflutningsgjaldsins.

Í grg. með þessu frv. er um það rætt, að sjútvrn. muni setja reglugerð um framkvæmd og meðferð vátryggingasjóðsins, þær reglur sem farið skuli eftir, varðveislu hans, ávöxtun, skil o.s.frv. Þegar málið var til umr. í sjútvn. Nd. fyrir skömmu lá þessi reglugerð ekki fyrir og nm. gátu ekki fengið upplýsingar um hvernig hún yrði í einstökum atriðum. Þetta er auðvitað afskaplega bagalegt, en því miður ekki einsdæmi um meðferð þingmála. Það kemur fyrir æ ofan í æ að einstakir ráðh. leggja fram frv. hér á Alþingi þar sem gert er ráð fyrir að reglugerðir eigi að fylla upp í lagaákvæði, en eru á hinn bóginn ekki reiðubúnir að skýra hugmyndir sínar um hvernig reglugerðirnar eigi að vera í einstökum atriðum. Þetta er náttúrlega mikill galli á stjórnarfari okkar og ekki kynlegt að tillögur skuli hafa komið fram um það hér á þessu þingi að sú regla verði sett, að ráðh. sé gert að skyldu að sýna þingnefndum reglugerðir áður en þær taki gildi. Hvort það er rétt leið eða hvort öðruvísi skuli að því staðið skal ég ekki segja, en það er augljóst mál, að það er með öllu óviðunandi, hvernig einstakir ráðh. hafa hagað sér í sambandi við setningu reglugerða og það mikla vald sem slíkri setningu fylgir.

Ég hafði velt því fyrir mér, hvort rétt væri að því yrði slegið föstu í lagafrv. sjálfu, að einstökum grásleppuveiðimönnum yrði gerð grein fyrir hversu mikið gjald rynni af afla þeirra í vátryggingasjóðinn og hversu hárri upphæð iðgjald af slysatryggingu þeirra næmi. Ég hef fallist á að láta það bíða, en gera á hinn bóginn ráð fyrir því, að í reglugerð um meðferð sjóðsins verði kveðið á um að reikningsskil verði með mjög glöggum hætti þannig að einstakir menn, aðilar að sjóðnum, geti á hverjum tíma fengið um það upplýsingar hvernig staða þeirra sé í sjóðnum. Auðvitað una menn því ekki til lengdar að þeir séu skattlagðir verulega til að standa undir miklu minni þörfum, en afraksturinn sé annaðhvort látinn „fúna í ríkra sjóði“, eins og segir í gamalli ferskeytlu, eða þá renna til annarra, sem hafa grásleppuveiði sem aukagetu, en ekki að aðalstarfi.

Ég vænti þess, að þær umr., sem orðið hafa um þessi mál, og þá er ég að tala um slysa- og örorkutryggingu sjómanna á opnum bátum, verði til þess, að hæstv. sjútvrh. ígrundi hvort nægilegt aðhald sé í þeim efnum nú atmennt hjá sjómönnum og hvort ekki sé nauðsynlegt að setja fyllri reglur þar um til að tryggja að þeir menn séu sæmilega tryggðir við veiðar sínar.

Svo vil ég að síðustu aðeins geta þess í sambandi við 3. lið 3. gr., eins og fram kom í nefndinni, að það skýtur nokkuð skökku við að grásleppuveiðimenn skuli nú óska sérstaklega eftir því að vera skattlagðir í Fiskveiðasjóð á sama tíma og sú þróun er orðin að atvinnuvegirnir beiðast undan slíkri skattlagningu. En ég geri ráð fyrir að grásleppuveiðimenn muni fylgja öðrum varðandi þetta framlag þannig að ég sé ekki ástæðu til að hreyfa því máli hér.

Herra forseti. Með þeim breytingum, sem nefndin leggur til og þeirri leiðréttingu, sem ég og formaður nefndarinnar, hv. 4. þm. Suðurl., flytjum við þetta frv., tel ég eftir atvikum rétt að það verði samþykkt.