28.04.1982
Neðri deild: 73. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4325 í B-deild Alþingistíðinda. (4046)
178. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég vil óska eftir því, að formaður fjh.- og viðskn. sé viðstaddur þessa umr. Ég sé mér ekki fært að flytja ræðu mína að öðrum kosti. Óska ég eftir því, að umr. verði frestað ef formaður nefndarinnar getur ekki verið við. (Forseti: Þetta er 2. umr. málsins. Við eigum eftir 3. umr. Ég mun sjá svo um að formaður nefndarinnar verði viðstaddur þegar hún fer fram a.m.k., ef hann skyldi ekki rekast hingað inn hið bráðasta.) Vegna sérstakrar elsku, sem er milli mín og hæstv. forseta, skal ég verða við þessari beiðni, en ef annar hefði setið í þessum stól hefði ég trauðla gert það.