28.04.1982
Neðri deild: 74. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4333 í B-deild Alþingistíðinda. (4062)

288. mál, Framleiðsluráð landbúnðaarins

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Eins og kom fram hjá hv. 1. flm. þessa frv. var frv. borið fram á síðasta þingi og hv. þm. var þá mikið í mun að frv. yrði sent út til umsagnar. Ég held að það hafi verið á síðustu dögum þingsins eða í síðustu viku þingsins sem frv. kom þá til umræðu. Tjáði ég honum, þegar hann ítrekaði það við mig í einkaviðtali, að það mundi ekki verða fundur um þetta mál í landbn., en hins vegar sendi ég frv. að beiðni hans til nokkurra aðila.

Eins og kom líka fram í máli hv. flm. barst landbn., á meðan frv. á þskj. 116 var á dagskrá, fyrsta umsögnin og fékk 1. flm. umsögnina í hendur. Viðbrögð hans urðu þau, að hann talaði aldrei fyrir þessu frv., heldur dró það til baka og tjáði mér að hann þyrfti að athuga þetta mál betur. Nú á síðustu dögum þingsins kemur þetta frv. og sömu hv. flm. að því og hinu. Breyting er að vísu nokkur á grg., en aðeins á einni greininni í sjálfu frv. og hún er raunar ekki veigamikil. Það er breyting á 36. gr. laganna, að framleiðsluráði sé skylt að viðurkenna Sölufélag garðyrkjumanna sem sölufélag ylræktarbænda svo og aðra heildsöluaðila, enda fullnægi þeir ákvæðum þessara greinar svo og ákvæðum 32. gr. Í lögunum, eins og þau eru, er heimilað að gera þetta. Þarna á það að vera skylt, og að vísu er þarna opnað fyrir heildsöluaðila. Eins og kom líka fram í máli hv. flm. liggur annað frv. fyrir landbn. um svipað efni. Að vísu eru þar róttækari breytingar á fleiri greinum framleiðsluráðslaganna en í því frv. sem hér er til umr.

Ég vil vekja athygli á því þegar, að allir aðilar, þ.e. Búnaðarþing, framleiðsluráð og félag framleiðendanna sjálfra, eru andvígir þessu frv. Mér fannst það nokkuð athyglisvert, að hv. þm. Steinþór Gestsson, sem er í stjórn Búnaðarfélags Íslands, skuli vera einn af flm. þessa frv., þegar það lá fyrir að allir þessir aðilar, sem ég ræddi um, voru því algerlega andvígir.

Hæstv. landbrh. skýrði það, að grg. og athugasemdir við einstakar greinar frv. væru ekki í samræmi við texta greinanna. Ég ætla ekki að fara að endurtaka það sem ráðh. sagði í þessu máli, en vekja samt athygli á þessu aftur og undirstrika þetta ósamræmi.

Það er náttúrlega dálítið óvenjulegt að það skuli liggja fyrir við 1. umr. umsagnir frá mörgum aðilum. Ég ætla ekki að tefja tímann með því að lesa þær, ég er með þær allar fyrir framan mig, en ef þetta mál kæmi út úr nefnd, hvort sem það verður nú eða síðar, mun ég náttúrlega skýra þinginu frá umsögnunum, vegna þess t.d. að þó að ég sé alls ekki sammála öllu sem kemur fram, sérstaklega í umsögninni frá félagi garðyrkjubænda, eru þeir að ræða um mál sem þeir þekkja mjög vel.

Auðvitað mætti ætla það, að ef Grænmetisverslunin stæði í sínu hlutverki á réttan hátt, — ég veit ekki, það hefur ekki komið fram hér, hvort hún gerir það ekki, en ef hún gerði það ættu þessi mál að vera betur þar komin en hjá öðrum. Eitt er víst, að með þessum frv., og þó sérstaklega með frv. hv. þm. Alþfl., ef það væri samþykkt, er gerð tilraun til að brjóta niður sölufélög bændanna.

Ég sé að hv. þm. Árni Gunnarsson, sem er með mér í landbn., er að biðja um orðið, en þá vil ég sérstaklega biðja hann að athuga breytinguna í 5. gr. og 7. gr. í þeirra frv. þar sem jöfnun flutningskostnaðar milli sölusvæða er felld niður. Það er auðvitað eitt af stærstu atriðum til að jafna lífsaðstöðuna alls staðar í landinu að jafna þetta, og landbúnaðurinn hefur gengið lengra í því en aðrir að reyna að jafna þannig að verðið sé sem líkast á öllum stöðunum. Þannig er það með mjólkurvörurnar, þannig er það með kjötið og þannig er það með grænmetið að mestu leyti. Ef t.d. þessi ákvæði þessara frv. færu lögfest blasir við að þarna er verið að stíga skref langt aftur á bak.

Það er með þessar vörur, eins og t.d. kartöflurnar, að það er ákaflega erfitt að geyma þær, það þarf sérstakar geymslur. Það er ekki fyrr en nú á síðustu árum að þessar geymslur eru komnar upp í landinu. Ef þessi innflutningur væri á margra manna höndum efast ég a.m.k. um það fyrir mitt leyti, að þeir kæmu attir upp slíkri aðstöðu að þessi geymsla væri forsvaranleg. Auðvitað mundi það koma niður á þeim sjálfum. — En bændurnir hafa svolitla reynslu af því að láta aðra dreifa fyrir sig vörum. Áður en Osta- og smjörsalan var stofnuð hafði t.d. Kaupfélag Eyfirðinga ekki annað ráð en að fá heildverslun í Reykjavík til að dreifa sínum vörum, en eftir að Osta- og smjörsalan tók við þessari dreifingu lækkaði dreifingarkostnaðurinn ekki um 100%, heldur um 300%. Það er sú reynsla sem við höfum af þessu félagslega starfi. (Gripið fram í.) Nei, það var heildverslun sem gerði það á þeim tíma.

Ég ætla að láta þetta nægja vegna þess að fundartíminn er að verða liðinn og það eru, eins og kom fram hjá hæstv. landbrh., engar líkur til að þetta mál fái afgreiðslu á þessu þingi, enda sjálfsagt ekki ætlast til þess af hv. flm. Þeir hefðu verið búnir að flytja þetta mál fyrr ef þeir hefðu ætlast til þess. Það gefst því tími og tækifæri til að ræða þessi mál á næsta þingi, ef þau verða endurflutt.