29.04.1982
Sameinað þing: 82. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4351 í B-deild Alþingistíðinda. (4073)
240. mál, löggjöf um atvinnulýðræði
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það gefst ekki mikið tóm fyrir mig að deila við hæstv, ráðh. sem hefur fimm sinnum lengri tíma en ég í þessu máli.
Ég vil aðeins ítreka það, að Sjálfstfl. hefur staðið að samráðsnefndum og öryggisnefndum. Löggjöfin um vinnueftirlitið var samkomulagsmál á milli Vinnuveitendasambands Íslands og Alþýðusambandsins og fór hér í gegnum þingið, og fyrir það á hann að vera þakklátur.
Í öðru lagi er sjálfsagt að þróa þessar samráðsnefndir með ákvörðunarrétt.
Í þriðja lagi eru hugmyndir Alþb. af allt öðrum toga en það sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson var að tala um, og það veit hæstv. félmrh.
Auðvitað er það rétt, og ég fagna því, að það þurfi að breyta hlutafélagalögunum með þeim hætti, að starfsmenn, sem eru hluthafar, fái aðild að stjórn með öðrum hætti. Sá maður, sem mest hefur skrifað um þessi mál og þróað hugmyndir um þau, er Eyjólfur Konráð Jónsson, þm. Sjálfstfl.
Ég læt síðan, herra forseti, öðrum eftir að gagnrýna áróðursræðu hæstv. ráðh. Hann er að fara á taugum, eins og sést á blaðsíðum Þjóðviljans um þessar mundir, þar sem hann segir að atkv. greidd Sjálfstfl. séu atkv. greidd Vinnuveitendasambandi Íslands. Þetta kemur til af því, að hæstv. félmrh. er hræddur við skoðanakannanir dagblaðanna. Hann veit sem er, að kosningar eru fram undan. Hann veit líka að kosningar eru kjarabarátta, eins og hann sjálfur sagði forðum, en hefur þagað yfir að undanförnu. Það er kannske mesta kjarabarátta íslensku þjóðarinnar að losa sig við hæstv. félmrh. og þá menn sem hafa gagngert með stefnu sinni og rangri stefnu í efnahagsmálum orðið til þess að rýra lífskjörin nú og um nokkur ár í viðbót, eins og greinilega kom fram í sjónvarpinu í gær.