29.04.1982
Sameinað þing: 82. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4354 í B-deild Alþingistíðinda. (4076)

376. mál, varnir gegn sjúkdómum á plöntum

Landbrh. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Eins og fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda hefur hann lagt fram fsp. á þskj. 594 í tvennu lagi. Varðandi fyrri lið fsp. er það að segja, að tæpt ár er liðið síðan lögin um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum voru samþykkt. Stöðugt er unnið að eftirliti við innflutning á plöntum. Þetta eftirlit annast sérfræðingur á sviði jurtasjúkdóma er starfar hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Reglugerð er verið að semja við hin nýju lög sem samþykkt voru á síðasta Alþingi, en þar til sú reglugerð hefur verið staðfest er starfað samkv. reglugerðum er settar voru við hin eldri lög frá 1948.

Um 2. tölul. í fsp. hv. þm. Steinþórs Gestssonar vil ég segja það, að varnaðarráðstafanir samkv. lögum um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum lúta ekki að þeim atriðum sem þar er spurt um, heldur eru það önnur lög sem fjalla um varnir gegn gin- og klaufaveiki, lög frá 1928. Samkv. þeim lögum hefur verið ákveðið og var þegar ákveðið, eftir að klaufaveikifaraldurinn kom upp í Danmörku, að taka fyrir allan innflutning á plöntum frá Danmörku svo og fóður- og sáðvörum og verða Íslendingar nú að afla sér slíkra vara frá öðrum löndum. Þetta bann mun verða í gildi svo lengi sem þurfa þykir með tilliti til öryggis varðandi þennan hættulega sjúkdóm sem hefur geisað á Fjóni.

Ég met mikils þann áhuga sem hv. þm. hefur sýnt í þessu máli, sem ekki er að ófyrirsynju. Ég tel að það sé fullkomið tilefni til að huga að frekari öryggisráðstöfunum varðandi innflutning plantna, sem oft og tíðum fylgir þá innflutningur á mold og öðrum efnum, og á því mun verða tekið svo sem föng eru á í þeirri reglugerð sem verið er að setja við hin nýju lög um þetta efni. Jafnframt vil ég greina frá því, að í athugun eru ýmsar aðgerðir varðandi öryggisþætti er snerta búfjársjúkdóma, og þegar var gripið til öryggisráðstafana varðandi þann gin- og klaufaveikifaraldur, sem hv. þm. hefur hér minnst á. Sé ég ekki ástæðu til að rekja það frekar undir þessum dagskrárlið.