29.04.1982
Sameinað þing: 83. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4367 í B-deild Alþingistíðinda. (4099)
124. mál, sjálfsforræði sveitarfélaga
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Ég er þeirrar skoðunar, að það mál, sem hér er til umr., sé eitt stærsta og merkasta umbótamál, sem flutt hefur verið á Alþingi að þessu sinni, og varði grundvallaratriði stjórnkerfis landsins. Ég verð þess vegna satt að segja að lýsa furðu minni á því, að mál af þessu tagi skuli ekki fá betri undirtektir í afgreiðslu þingsins en mér virðist hér raunin vera á. Sérstaklega furðar mig að fjölmargir þm., sem sjálfir eru sveitarstjórnarmenn og hafa mikla reynslu að baki í þeim efnum, skuli ekki hafa meira til málanna að leggja, þegar vönduð þáltill. af þessu tagi er lögð fram, en fram kemur í nál. minni hl. allshn.
Það er vitnað til þess, að opinberar nefndir hafi starfað að þessum málum, og vitnað til þess, að þær hafi skilað áliti til ríkisstj., þar sem er álitsgerð nefndar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, þar með talið um tekjustofna. Á undanförnum árum hafa þessi grundvallarvandamál, um verkaskiptingu, tekjuskiptingu og valdaskiptingu milli ríkisvalds og sveitarfélaga, verið eitt helsta dagskrármál sveitarstjórnarmanna. Í grg. hv. þm. Magnúsar H. Magnússonar er sú umræða dregin saman og bent á helstu umkvörtunarefnin. Ég nefni aðeins nokkur.
Athygli er vakin á því, að ef færa á vald og fjármuni til sveitarstjórna er auðvitað mjög æskilegt að framfylgja þeirri stefnu að fækka sveitarfélögum, en stækka þau og efla um leið þannig að þau verði aðsópsmeiri framkvæmdaaðilar en verið hefur. Í annan stað er vakin athygli á þeim geysilega aðstöðumun sem er milli hinna ýmsu sveitarfélaga, bæði að því er varðar tekjuöflunar möguleika og fjárhagslegt bolmagn til að standa straum af framkvæmdum og þjónustu, sem fer bæði eftir t.d. nálægð þeirra sumra hverra við höfuðborg landsins og svo þeim þungu byrðum sem hin minni byggðarlög á landsbyggðinni hafa af mjög alhliða þjónustu, svo að ekki sé nefnt annað en t.d. hafnargerð, heilsugæsla o.s.frv. sem önnur sveitarfélög fá með mun minni tilkostnaði.
Meginatriðið er kannske það, að sveitarfélögin eru hálfgerðir niðursetningar í stjórnkerfinu. Þau eru fjárhagslega ósjálfstæð gagnvart ríkisvaldinu. Þau hafa ekki nægilega skýrt markaða tekjustofna. Þau eru of háð ríkisvaldinu og stofnunum þess um mótframlög af hverju tagi og jafnvel háð þeim um leyfi til nauðsynlegustu framkvæmda. Þau hafa ekki nægilegt ákvörðunarvald um álagningu skatta og þau fá ekki ráðið eigin gjaldskrám, eins og nefnt hefur verið í þessum umr. og er auðvitað eitt meginvandamál í sambandi við stjórnsýslu ýmissa fyrirtækja í eigu eða þjónustu sveitarstjórna, og er frægast dæmið af Hitaveitu Reykjavíkur.
Þær mjög svo flóknu og óskýru markalínur, sem dregnar eru milli ríkis og sveitarfélaga varðandi umsjón framkvæmda og fjármögnun framkvæmda, eru í heild sinni ákaflega þunglamalegt kerfi þar sem framkvæmdir tefjast oft og einatt og detta upp fyrir eða verða úti einfaldlega af nærri því óútskýrðum kerfisástæðum.
Meginniðurstöður þessara umr. eru auðvitað þær, að til þurfi að koma meiri háttar tilfærsla, bæði fjármuna, valds og framkvæmdagetu, frá ríkisvaldinu til sveitarstjórnanna. Það þarf að einfalda ákvarðanatöku í öllum þessum ferli. Það getur stuðlað að árangursríkari vinnubrögðum, það getur rétt af hvers kyns skriffinnsku og m.a. orðið til þess að létta störfum af ráðuneytum hér í Reykjavík sem eru með umsýslu um mál sem þau hafa takmarkaða staðarþekkingu á, og væri auðvitað nær að ákvörðunarvaldið væri í höndum þeirra sem sjálfir eiga að bera ábyrgð á framkvæmdunum. Ekki skortir því á rök fyrir breytingum. Ekki skortir á umræður um þær. Þær hafa staðið nógu lengi.
Það þarf ekki að segja yfirleitt miklu meira til að árétta þá skoðun, að hér er um að ræða eitthvert merkasta mál sem varðar stjórnkerfið í landinu, og þess hefði mátt vænta fyrir fram, að þetta mál fengi meiri undirtektir, betri undirtektir og um það yrðu ítarlegri og árangursríkari umr. hér á Alþingi en mér skilst að hafi orðið. Það er einmitt rökstuðningur með samþykkt þessarar þáltill. að í henni er að finna samandregnar niðurstöður af því mikla nefndarstarfi sem þegar hefur farið fram og er þegar orðið nægilegt til þess að Alþingi dragi af því ályktanir og samþykki þáltill. í anda þeirra niðurstaðna, nema því aðeins að sýnt sé fram á að mikill ágreiningur sé milli þm. eða stjórnmálaflokka um að hér sé stefnt í rétta átt. Ég hef ekki heyrt að svo sé.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð miklu fleiri. Meginmálið er það, að með því að samþykkja þessa till. væri Alþingi að lýsa þeim vilja sínum, að umræðunni um þessi mál eigi að fara að ljúka og það sé kominn tími til að eitthvað verði aðhafst til að létta hinni dauðu hönd skrifræðismiðstjórnarvaldsins af sveitarfélögunum. Það á að færa völdin frá fjarlægum pótintátum embættismannavaldsins til þeirra sem hafa staðarþekkinguna og eru í meiri nálægð við umbjóðendur sína. Þetta er auðvitað sá málflutningur sem á að heyrast frá hv. Alþingi á ári sveitarstjórnarkosninga. Mig furðar satt að segja að mál af þessu tagi skuli ekki fá betri undirtektir en raun hefur orðið á.