09.11.1981
Neðri deild: 10. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 573 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Að því gefna tilefni, sem hér er orðið þar sem hæstv. fjmrh. fylgir úr hlaði frv. til þess að framlengja gjöld á tiltekinn atvinnurekstur, á sama tíma og við lesum í blöðum að ríkisstj. sé að ráðgera m. a. einhverjar skattalagfæringar fyrir þessa sömu atvinnuvegi, tel ég ástæðu til að spyrja hæstv. fjmrh. hvort einhverjar slíkar ráðagerðir séu í aðsigi hjá hæstv. ríkisstj. og hvort þá væri ekki ráð fyrir hæstv. ráðh. að óska eftir því við fjh.- og viðskn. hv. deildar, að hún fari sér hægt í afgreiðslu þessa máls þangað til fyrir liggi hvaða skattabreytingar hæstv. ríkisstj. er að ráðgera, ef þá nokkrar.

Í annan stað hef ég sérstaka ástæðu til að beina fsp. til eins þm. sem hér ætti að vera, hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar, og vildi gjarnan fara þess á leit við forseta, þó að það sé ekki vanalegt að beina fsp. til þm., að hann gerði ráðstafanir til að kanna hvort hv. þm. væri í húsinu. (Forseti: Gerið svo vel að athuga hvort hv. 3. þm. Austurl. er staddur í húsinu.) — (Gripið fram í.) Já, fyrst svo er get ég því miður ekki komið fyrirspurninni á framfæri, en e. t. v. getur þá hæstv. fjmrh. svarað því eða hæstv. viðskrh., ef hann er í húsinu, sem ég vænti að hann sé. Hann var hér fyrir stundu. Ef hæstv. forseti vildi athuga hvort viðskrh. væri einhvers staðar nærstaddur.

Hæstv. viðskrh. gengur í salinn og þá ætla ég að beina til hans fsp. sem ég hafði hugsað mér að beina til flokksbróður hæstv. ráðh., sem auk þess að vera alþm. er formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Hæstv. bankamálaráðh. getur væntanlega komið í stað flokksbróður síns og svarað þeirri fsp. Fsp. er svohljóðandi:

Nú nýverið skýrði hv. þm. Albert Guðmundsson, sem jafnframt er formaður bankaráðs Útvegsbanka Íslands, frá því, að bankaráðið mundi gera samþykkt þar sem það tæki þá ákvörðun að hætta því sem hv. þm. kallaði „sjálfvirka afgreiðslu afurðalána“, hætta m. ö. o. að veita atvinnuvegum rekstrarlán sem bankinn þyrfti að taka að láni hjá Seðlabanka Íslands og borga fyrir refsivexti sem væru verulega hærri en þeir vextir sem bankinn fengi hjá þeim viðskiptavinum sínum sem slíkrar lánafyrirgreiðslu nytu. Formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands tilkynnti tveimur dögum síðar í dagblöðunum að bankaráðið mundi þá gripa til viðeigandi ráðstafana. Ég óska eftir að fá upplýst undir þessari umr. frá hæstv. viðskrh., hvort honum sé kunnugt um afstöðu annarra viðskiptabanka í þessu máli í fyrsta lagi og í öðru lagi hvaða viðbrögð það eru sem formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands var þarna að boða.