30.04.1982
Efri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4413 í B-deild Alþingistíðinda. (4125)

273. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Mönnum virðist vera mikið niðri fyrir í þessari atkvgr. og kenna nú um, eins og hv. 4. þm. Norðurl. e., hve langt aðsogið er, eins og hann orðar það. Menn ræða líka í þessu sambandi um stóriðju og um erfiðleika þess fyrirtækis, járnblendiverksmiðjunnar, sem þetta mál varðar. Ég ætla ekki að gera það. Þetta mál sýnir hversu varlega við þurfum að fara þegar við ákveðum þátttöku okkar í stóriðju. En ég vil segja það, að það verður aldrei hægt að reka stóriðju á Íslandi með þátttöku Íslendinga án einhverrar áhættu frekar en aðra atvinnuvegi í þessu landi. Með tilliti til þessa var það stefna Sjálfstfl. að hafa þá eignaraðild Íslendinga að þessu fyrirtæki sem nú er. Hins vegar ef við ætluðum núna að draga saman seglin, þar sem erfiðleikar eru hjá íslenskum fyrirtækjum, þá hygg ég að það verði víða sem það þarf að gera, svo ég tali ekki um það, sem fram kom hjá formanni þingflokks Alþb. áðan, þar sem hann taldi að þetta mál væri tilefni til þess að hætta við allar stóriðjuhugmyndir hér á landi, a.m.k, fyrst um sinn. Þá hlýtur Alþb. með þessari skoðun að viðurkenna það, að till. um virkjunarframkvæmdir, sem nú liggur fyrir Alþingi, í Sþ., er alger sýndartillaga og loddaramennska. Ég mun ekki taka tillit til neins slíks og segi þess vegna já.