30.04.1982
Efri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4417 í B-deild Alþingistíðinda. (4143)

168. mál, dýralæknar

Frsm. minni hl. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Það var fjallað nokkuð ítarlega um þetta frv. í landbn. þessarar deildar og þar var ekki samstaða, eins og fram hefur komið. Eitt vil ég þó segja gott um þá umfjötlun. Þar kom fram grg. um kostnaðarauka vegna þessara laga, vel unnin og nokkuð ítarleg. Hefur frsm. meiri hl. þegar gert grein fyrir henni hér. Þetta er auðvitað til fyrirmyndar og væri betur gert í fleiri tilvikum, svo sem lög raunar kveða á um.

En varðandi þetta frv. í heild er það þannig, að ég tel raunar að við hér, sem vinnum löggjafarstarf, verðum að gera meiri kröfur en svo, að við getum látið þetta frá okkur fara eins og það nú liggur fyrir. Ég bendi við 1. umr. málsins á nokkur atriði, sem ég taldi afgerandi um að þetta mál þyrfti meiri skoðunar við, og mun nú við 2. umr. málsins benda á nokkur fleiri. E.t.v. verður þar varðandi einstaka liði um nokkra upprifjun að ræða frá því sem sagt var hér við 1. umr.

Þá er þar fyrst til að taka, að okkur nm. barst í hendur — raunar samkv. beiðni minni — plagg sem er undirskrifað af fjórum starfsmönnum heilbr.- og trmrn., en þessir fjórir starfsmenn höfðu tekið saman athugasemdir við frv. til I. um dýralækna. Í upphafi þessara athugasemdar segir svo, með leyfi forseta

„Um s.l. áramót var okkur undirrituðum falið að gera athugasemdir við frv. til l. um dýralækna sem litið hafði dagsins ljós þá fyrir skömmu í formi nefndarálits á vegum landbrh. Nokkrum dögum eftir að okkur hafði verið falið að gera athugasemdir við frv. þetta var frv. lagt fram á Alþingi næstum óbreytt. Hljótum við að harma slík vinnubrögð þar sem frv. þetta er alfarið unnið á vegum þriggja manna nefndar, hvar í áttu sæti tveir dýralæknar. Engin samráð voru höfð við heilbrigðiseftirlit þó að frv. snerti veigamikla þætti heilbrigðismála. Má þar helst nefna lyfjamál og heilbrigðiseftirlit.“

„Síðan segir hér: .

„Það er skoðun okkar, að landbrh. hefði átt að senda heilbrmrn. frv, það sem hér er til umfjöllunar áður en það var sett í prentun. Slík vinnubrögð hljóta að teljast sjálfsögð. Áður en einstakar greinar verða teknar til efnismeðferðar viljum við benda á að það er skoðun okkar, að dýralæknalög eigi eingöngu að fjalla um réttindi og skyldur dýralækna sem slíkra, sbr. læknalög um lækna, en síðan eigi að vera sérlög um dýralæknahéruð og þá þjónustu sem hið opinbera á að veita, sbr. lög um heilbrigðisþjónustu um læknishéruð.“

Það er, hygg ég, næsta sjaldgæft að svona sé staðið að málum.

Eins og þegar hefur komið fram í umr. um þetta mál voru nokkrar breytingar gerðar á frv. í meðförum Nd. frá því sem var er það var lagt fram. Engu að síður stendur óhaggað margt af því sem þessi fjögurra manna starfshópur gerði athugasemdir við. Ég ætla þá í fyrsta lagi að minnast á 3. gr. frv. Þar segir, með leyfi forseta:

„Þeir einir geta hlotið leyfi til að stunda dýralækningar sjálfstætt sem eru íslenskir ríkisborgarar og lögráða.“ Nú er það svo, að íslenskir dýralæknar munu geta starfað hvar sem er á Norðurlöndunum. Þetta ákvæði er t.d. í hróplegu misræmi við þann samning um sameiginlegan vinnumarkað á Norðurlöndum sem nú er verið að fjalla um hér. Þetta er í beinni mótsögn við það, Það er, eins og ég sagði, ekkert því til fyrirstöðu, að íslenskir dýralæknar geti starfað hvar sem er á Norðurlöndunum, og auðvitað ætti þetta að vera gagnkvæmt, þannig að dýralæknar á Norðurlöndunum gætu einnig starfað hér.

Í 4. gr. frv. er yfirlit yfir dýralæknisumdæmi í landinu. Ég held að það sé alveg réttmæt athugasemd, að slíkt ætti betur heima í sérlögum.

Í 3. gr. frv. er einnig ákvæði sem ég hef áður bent á að væri afar óvenjulegt og óeðlilegt. Það er um að yfirdýralæknir skuli meta það, hvort erlendir dýralæknar, sem hér vilja starfa, hafi nægilega kunnáttu í töluðu og rituðu íslensku máli. Þarna er yfirdýralæknir gerður að prófdómara á sviði sem er ekki hans sérsvið. Þetta ákvæði er auðvitað óeðlilegt að öllu leyti. Það hlýtur að vera eðlilegt, ef á að prófa íslenskukunnáttu manna sem vilja starfa hér, að það geri þá þeir sem til þess hafa hlotið menntun. Um þetta ætla ég ekki að hafa fleiri orð. Ég hef áður gert það að umtalsefni.

Í 5. gr. frv. eru ákvæði um að að öðru jöfnu skuli sá umsækjandi sitja fyrir um veitingu embætta sem lengstan hefur starfsaldur, en einnig skal taka tillit til sérmenntunar svo og starfstíma í afskekktum og rýrum héruðum. Þetta finnst mér af og frá að eigi að vera löggjafaratriði.

Í þessari sömu grein eru ákvæði um Tilraunastöð háskólans í meinafræði að Keldum. Um þá tilraunastöð eru ákvæði í háskólalögum. Ákvæði um þessa stofnun Háskólans eiga ekkert erindi inn í lög um dýralækna, hvað þá að í dýralæknalögum skuli ákveðið hversu margir starfsmenn með tiltekna menntun skuli starfa við þessa stofnun Háskólans.

Sitthvað fleira mætti hér tiltaka. T.d. stendur í upphafi 7. gr. að héraðsdýralæknar skuli hver í sínu umdæmi vinna að bættu heilsufari búpenings og aukinni arðsemi hans. Þetta held ég að ætti tvímælalaust að gilda um alla dýralækna, ef á annað borð er verið að leggja þeim þessar skyldur á herðar, ekki aðeins héraðsdýralækna.

Í 7. gr. frv., eins og það liggur hér fyrir, eru mörg og ítarleg ákvæði um skyldur dýralækna, hvernig þeir skuli starfa: Þeir skuli forðast að baka dýraeigendum óþarfan kostnað, þeir skuli vanda allar skýrslur, þeir skuti gegna störfum og skyldum með árvekni og halda þekkingu sinni sem best við, gæta vandvirkni og samviskusemi og héraðsdýralæknar eru skyldir til að gegna aðkallandi sjúkravitjunum. Ég leyfi mér að láta í ljós efa um að þessi ákvæði eigi heima í löggjöf af þessu tagi. Þessi ákvæði eiga miklu fremur heima í erindisbréfum, ef dýratæknum eins og ýmsum embættismönnum eru sett slík erindisbréf. Þetta á ekki að vera í löggjöf um þessi mál að mínu mati. Og hér segir meira að segja í þessari grein: „Landbrh. setur dýralæknum erindisbréf samkv. tillögum yfirdýralæknis. Þar skal kveðið á um embættisfærslu og skyldur héraðsdýralækna.“

Þarna er verið að segja að það skuli gera sem búið er að telja upp í þessari grein.

Í 9. gr. segir: „Dýralæknar í þjónustu ríkisins taka laun samkv. hinu almenna launakerfi ríkisstarfsmanna.“ Til hvers er verið að setja það í lög? Þetta er atriði sem hlýtur að leiða af sjálfu.

Annað ákvæði er í þessari sömu 9. gr. sem hlýtur að orka tvímælis: „Þegar nauðsyn krefur er héraðsdýralækni skylt, eftir ákvörðun ráðh., að gegna dýralæknisstörfum í nágrannaumdæmi gegn hálfum byrjunarlaunum þessa umdæmis.“ Ég veit að vísu ekki hvað dýralæknar segja um þetta, en eitthvert hugboð hef ég um að þeir séu ekki sérlega ánægðir með þetta, vegna þess að hér er beinlínis eftir orðanna hljóðan um þvingunarvinnu að ræða. Mér er ekki kunnugt um að sams konar ákvæði gildi um lækna. Þetta held ég að hljóti að orka mjög tvímælis.

Þá er líka furðulegt og fáránlegt í senn að binda það í lög, að staðgengill héraðsdýralæknis skuli geta haft afnot af síma hans ef hann óskar þess. Mér finnst hér býsna langt og óþarflega langt gengið. En svo er aftur dæmi um hið gagnstæða í þessu frv. þar sem er kannske hvergi nærri nógu langt gengið. Í upphafi 13. gr. segir: „Héraðsdýralæknar skulu árlega annast eftirlit með heilbrigði og hirðingu nautgripa og þrifnaði í fjósum þar sem framleidd er sölumjólk.“ Það skyldi nú aldrei vera að aðstæður væru sums staðar þannig, að það væri ástæða til að hafa eftirlit miklu oftar en einu sinni á ári, einkanlega þar sem hefur komið í ljós að ekki er allt með felldu um heilbrigði, hirðingu og þrifnað, ef menn vilja hafa svona ákvæði í lögum? Ég efast aftur á móti um ágæti þess.

Seinna í þessari sömu grein eru ákvæði um það, að héraðsdýralæknar skuli hafa reglulegt eftirlit með hreinlæti og þrifnaði mjólkurstöðva í umdæmi sínu. Hvað um Hollustuvernd ríkisins? Er þetta ekki miklu frekar eðlilegur þáttur af starfi þeirrar stofnunar? Ég held að það hljóti að vera.

Í 14. gr. eru enn ákvæði sem ég tel að orki tvímælis. Ef dýralæknar senda ekki sínum yfirboðara fyrirskipaðar skýrslur á réttum tímum, án þess að lögmæt forföll, svo sem veikindi, banni að mati yfirdýralæknis, er heimilt, ef áminning ber ekki árangur, að ákveða í reglugerð lögtakskræfar dagsektir. Hvað skeður ef bréf með skýrslu misferst í pósti?

Mér finnst satt að segja ekki eitt, heldur næstum allt í þessu frv. vera með endemum. Á það hefur verið bent, að þetta sé svo sem ekki nýsmíði allt saman, þetta sé úr eldri lögum. En það er ekkert betra fyrir það. Og það er ekkert minni skömm að mínum dómi fyrir okkur að láta þetta svona frá okkur fara þó það hafi áður verið afgreitt með þeim hætti.

Ég ætla ekki að fara út í þá sálma hér, sem þeir félagar gera þó töluvert, að gera athugasemdir hversu starfssvið og vald yfirdýralæknis er mikið og hversu miklu meiri völd honum eru fengin með þessu frv. en t.d. landlækni. Á ýmsan hátt ættu þetta þó að vera stjórnunarlega séð hliðstæð embætti að breyttu breytanda.

Í 16. gr. er fjallað um auglýsingar og kveðið á um að dýralækni séu óheimilar hvers konar auglýsingar eða áróður um starf sitt. Þó er honum heimilt að auglýsa í blöðum viðtalstíma o.s.frv. sem og birta nafn dýralæknis á lyfseðlum og dyraspjöldum. Það er heimilt, það er sérstaklega tekið fram. Enn vaknar sú spurning, hversu langt á að ganga. Ég held að fyrst heimilað er að hafa þetta á dyraspjöldum, þá hafi líka verið nauðsynlegt að hafa ákvæði hér um leturstærð og leturgerð vegna þess að dyraspjald getur auðvitað verið auglýsing! Ég held að það mætti athuga.

Í næstu grein er ákvæði um að í afskekktum umdæmum, þar sem umsvif eru lítil og samgöngur erfiðar, sé heimilt að greiða staðaruppbót, hreint kjarasamningaákvæði sem á ekkert erindi í löggjöf.

Í 18. gr. eru ákvæði um að heimilt sé að veita dýralækni hagkvæmt lán til kaupa á bifreið við starf sitt, enda skuldbindi hann sig til að starfa sem héraðsdýralæknir næstu þrjú ár. Hvað er hagkvæmt lán í skilningi þessara laga? Mér hefur að vísu verið tjáð að slík lán hafi aldrei verið veitt og hafi aldrei verið veitt til þess fé á fjárlögum. En til hvers er að hafa þessi ákvæði í lögum hér?

Síðasta endemisákvæðið, sem ég ætlaði hér að gera athugasemd við, er í 19. gr. Það er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Þegar dýralæknir er kvaddur til vitjana á eigin farkosti á fleiri en einn stað í sömu akstursleið ber honum að aka sem beinasta og greiðasta leið til þeirra sem vitjana hafa óskað.“

Ég verð að að lýsa þeirri skoðun minni hér í þessari hv. deild, sem ég veit að er ákaflega vönd að sinni virðingu, að mér finnst það fyrir neðan okkar virðingu að láta frá okkur fara löggjöf sem samin er með þessum hætti.

Alþingi er oft gagnrýnt hart. Stundum með réttu, stundum með röngu. En samþykkjum við þessa löggjöf svona er sannarlega með réttu hægt að gagnrýna okkur. Ég tel tilgangslaust að flytja brtt. við þetta frv. vegna þess að ég tel að það þurfi að endursemja. Það eru nánast atriði í hverri einustu grein sem ástæða væri til að breyta. Ég legg því til að þessu máli verði vísað til ríkisstj.