30.04.1982
Efri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4427 í B-deild Alþingistíðinda. (4150)

220. mál, fóðurverksmiðjur

Frsm. 2. minni hl. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Hæstv. landbrh. heiðraði þessa deild með nærveru sinni hér við umr. Ég var satt að segja að vona að ráðh. mundi tolla hér inni meðan ég talaði. (Forseti: Já, ég tel sjálfsagt að verða við því. Ég sá ekki betur en hæstv. ráðh. gengi hér inn, en einhvern veginn hvarf hann sjónum mínum.) Hann gekk út aftur. (Forseti: Ég mun reyna að gera ráðstafanir til að hæstv. ráðh. hlýði á mál ræðumanns.)

Mér þykir ástæða til að segja hér örfá orð af því tilefni, að hæstv. landbrh. hafði nokkuð við afstöðu okkar hér að athuga og þá sérstaklega þeirra sem skrifuðu undir nál. 2. minni hl. Það er út af fyrir sig kannske ekki ástæða til að vera að elta ólar við það sem ráðh. tilfærði hér um stofnun fyrstu graskögglaverksmiðjanna, þar sem hann sagði að þær hefðu verið byggðar upp af fjármunum ríkisins. Út af fyrir sig skiptir það ekki miklu máli. Hins vegar er þetta ekki rétt. Fyrsta graskögglaverksmiðjan, sem var byggð hér, graskögglaverksmiðjan í Gunnarsholti, var að verulegu leyti byggð fyrir fjármagn sem landbúnaðurinn átti og bændur í landinu og kom inn á sérstakan reikning, gengismunarreikning, sem þáv. landbrh. hafði leyfi til að ráðstafa fjármagni af. Og í fyrstu var verksmiðjan á Hvolsvelli byggð upp af Sambandi ísl. samvinnufélaga. Þetta skiptir þó ekki út af fyrir sig verulegu máli.

Annað, sem kom líka fram í máli ráðh. og þá sem mikil rök af hans hálfu, var að tekin hefði verið ákvörðun um það árið 1972 að reisa þessar verksmiðjur tvær, í Skagafirði og Suður-Þingeyjarsýslu. Einmitt það hvað þessi ákvörðun er gömul, ef um ákvörðun er eitthvað að tala í þessum efnum, er ein af ástæðunum fyrir því, að við teljum þörf á að athuga þetta mál betur. Það er alveg augljóst að menn eru ekki á sama máli og ráðherrann í þessum efnum. Vil ég í því sambandi minna á það frv. sem hann lagði hér fram, en var síðan sent Búnaðarþingi til umsagnar og afgreitt þar með þeim hætti, að á það væri ekki hægt að fallast.

Af því að hæstv. landbrh. var að lesa okkur flokksbræðrum sínum pistilinn áðan er best að segja það alveg með nákvæmlega réttu orðalagi, að frá hendi hæstv. landbrh. var þetta mál ekki þinghæft. Þar voru m.a. teknar ákvarðanir um stjórn á þessum fóðuriðnaði, svo að ég nefni bara dæmi. Málið var svo ómerkilegt og illa undirbúið, að það er ekki til þess fallið að vera að fara ofan í það nákvæmlega. Þar var m.a. kveðið á um með hvaða hætti ætti að fá stjórn yfir þessum fóðuriðnaðarverksmiðjum og þar var ekki minnst á neitt annað en ríkisverksmiðjurnar. Það var ekki minnst á þær tvær fóðuriðnaðarverksmiðjur sem eru hér í bændaeign. Hæstv. landbrh. talaði bara um eina, en þær eru þó tvær. Þær áttu að vera alveg utan við alla stjórnsýslu og það kerfi sem átti að taka ákvarðanir í þessum málum. Þetta hafði verið hripað upp án þess að fjalla um það með nokkrum hætti t.d. við fulltrúa landbúnaðarins sem hafa þó fjallað mikið um þessi mál. Svo er hæstv. ráðh. að tala hér í umvöndunartón þó að verið sé að taka vel á hans málum og færa þau inn á réttar brautir. Það væri nær fyrir hæstv. landbrh. að setja mál sín þannig fram að þau væru ekki gallaðri en svo að það væri hægt á þau að fallast.

Hæstv. ráðh. hafði mikið að athuga við vinnubrögð landbn. Ed. í sambandi við þetta mál. Hann gat þess, að ég hefði farið þess á leit við ráðuneytisstjóra landbrn. að leggja drög að frv. sem væri í þá veru, að ríkisstj. fengi heimild til stofnunar þessara verksmiðja. Í þessu fólst á engan hátt mín afstaða. Það var ákveðið á nefndarfundi í landbn. Ed. að málinu yrði flýtt með þessum hætti, að þetta verk yrði unnið þannig að það gæti flýtt fyrir afgreiðslu málsins að þetta lægi fyrir. Ástæða fyrir þessu var m.a. sú, að bréfið, sem ég ritaði fjárlaga- og hagsýslustofnun, var ritað 15. mars og þegar að páskaleyfi alþm. kom höfðu svör ekki borist — og reyndar fengum við vitneskju um að þau mundu ekki berast fyrr en alþm. kæmu úr páskaleyfi aftur. Þá töldum við nm. eðlilegt að fyrir lægi uppkast að lagafrv. til þess að grundvöllur væri fyrir því að fjalla um málið með eðlilegum hætti. Auk þess var að sjálfsögðu aldrei ætlun mín að tefja þetta mál um nokkurn einasta dag frá því sem eðlilegt væri. Það er best að hæstv. landbrh. fái að vita það líka, að mjög fljótlega eftir að við byrjuðum störf eftir páska afhenti ég nm. í landbn. uppkast að þeim texta sem ég hef lagt til að yrði hér á hafður. Það er svo annað mál, að ef til þess kemur að ég hafi forustu fyrir nefndarstörfum í landbn. Ed. og ef hæstv. landbrh. skyldi hafa embættið með höndum eitthvað lengur, þá er afskaplega gott að minnast þess þakklætis sem landbn. fær fyrir að vinna að þessu máli og reyna að hraða því.

En það er ýmislegt fleira sem kannske væri ástæða til að tala um við hæstv. landbrh. í sambandi við þetta mál af því að ég held að hann hafi ekki verið hér viðstaddur við fyrri umr. málsins. T.d. væri gaman að heyra hæstv. ráðh. greina ofurlítið frá því, hvernig hann ætlar að tryggja sölu á þessari framleiðslu. Það liggur fyrir, m.a. kemur það fram í áliti fjárlaga- og hagsýslustofnunar, að graskögglaframleiðslan hefur alls ekki selst upp öll ár. Það liggur líka fyrir, eins og ég hef áður sagt, að sú ákvörðun ráðh. að verðjafna flutninga hefur orðið til þess að draga úr sölu grasköggla í nánd við graskögglaverksmiðjurnar. Ég er ekki með því að segja að sú ákvörðun sé röng. Það hefði að vísu verið nær fyrir hann að stíga skrefið til fulls, eins og Búnaðarþing fór fram á, og verðjafna flutninga á öllum fóðurvörum, en það var ekki gengið lengra í þeim efnum en þetta. En þessi smávægilega breyting á verði varð til að draga úr sölu framleiðslunnar.

Þá er vert að spyrja ráðh. hvort hann hafi engar áhyggjur af því sem kemur fram í þessari umsögn, að innlent fóður er um það bil 9% dýrara en innflutt fóður. Það fer að sjálfsögðu ekki á milli mála, að það er ekki hægt að horfa fram hjá þessu. Það verður að taka ákvörðun um með hvaða hætti hægt er að selja þessa framleiðslu á samkeppnisverði miðað við innflutning. Það er útilokað annað en að sú ákvörðun verði tekin. Hvergi í þessum frv.- flutningi, hvergi nokkurs staðar er minnst á þessa þörf. Og það er reyndar ýmislegt fleira sem er þess eðlis, að mikil þörf er að benda hæstv. landbrh. á, m.a. það sem kemur fram í umsögn fjárlaga- og hagsýslustofnunar, þar sem segir: „Ekki er hægt að svara spurningu 4, um stofnkostnað eða aðra kostnaðarþætti við verksmiðju í Saltvík eða Hólminum, án þess að fyrir liggi forsendur um stærð verksmiðjanna, orkugjafa og fleira.“ Það er ekki búið að taka ákvörðun um stærð, ekki um orkugjafa og ekki um ýmislegt annað, þannig að hagsýslustofnunin getur ekki svarað þessari spurningu. Samt sem áður tók þó fjárlaga- og hagsýslustofnunin sér allgóðan tíma til að svara þessum spurningum.

Nú er að sjálfsögðu orðinn mikill munur frá því sem var árið 1972, þegar tekin var ákvörðun um þessar verksmiðjur, og frá því 1974, þegar byrjað var að byggja síðustu verksmiðjuna, í Flatey, hve fjármagn allt er orðið miklu dýrara en þá var. Það væri út af fyrir sig lærdómsríkt að fara ofan í það mál hér, ekki síst fyrir þá sem eru ekki kunnugir þessum rekstri. Ef ég man rétt er fjármagnskostnaður við þessa framleiðslu, meira að segja hjá þeim verksmiðjum sem voru byggðar fyrir eða um 1974, eins mikill og allur orkukostnaður, bæði olía og rafmagn. Það var þess vegna ekki að ófyrirsynju að menn vildu fá svar við þeirri spurningu, hvaða áhrif mundi hafa á framleiðslukostnaðinn það dýra fjármagn sem nú væri eitt á boðstólum. Hvernig svarar fjárlaga- og hagsýslustofnun því? Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Til þess að fá rétta mynd af fjármagnskostnaði eldri verksmiðja og hvernig hann kemur fram í verði framleiðslunnar þyrfti að kanna reikninga verksmiðjunnar frá upphafi og draga inn í þá athugun framlög ríkissjóðs og annarra opinberra aðila. Án þess verður samkeppnishæfni nýrra verksmiðja samanborið við framleiðslu eldri verksmiðja ekki metin raunsætt.“

Þetta hefur ekki verið gert. Fjármagnskostnaðurinn hefur ekki verið metinn inn í þetta dæmi. Hann hefur ekki verið metinn. Það er náttúrlega eitt út af fyrir sig, hvort hæstv. landbrh. treystir sér til að hafa forgöngu um stofnun slíkrar verksmiðju í hlutafélagsformi, kalla inn til þess fjármagn frá bændunum í þessum byggðarlögum, án þess að geta svarað svona spurningum. Það er einmitt á þessum grundvelli sem nál. 2. minni hl. byggist.

Það er mjög erfitt að skilja hinn mikla baráttuvilja hæstv. landbrh. í sambandi við þetta mál. Ég veit ekki betur en öll mál í landbrn., sem snerta íslenskan landbúnað, séu nú í argasta kuðli. Það hefur ekki gerst fyrr að vantað hafi jafnmikið fé t.d. til þess að hægt væri að framkvæma búfjárræktarlögin, svo að dæmi sé nefnt. Það er nú búið að ganga svo um hagræðingarféð að það er ekkert orðið til, það er 1 millj. í hagræðingarfé. Það er innan við 10% af því sem lög gera ráð fyrir. Hæstv. landbrh. hefur verið að hamast við að skera þetta niður í allan vetur. Það verða kannske tök á því hér undir öðrum kringumstæðum að gera því nokkru nákvæmari skil og draga þá tíka fram um leið öll mjúku orðin sem lipru tungurnar hafa flutt af munni fram í þessari ríkisstj. um að það eigi að bæta fyrir bændunum í landinu og landbúnaðinum með því að byggja upp nýjar búgreinar og auka hagræðingu í landbúnaði. Eitt allra gleggsta dæmið í því er það sem gerðist á miðstjórnarfundi Framsfl., þar sem menn voru kallaðir saman og kveinkuðu sér undan þessum óförum og þar sem var ályktað í stjórnmálaályktun flokksins að þessari óhæfu yrði hætt. Það eru komin svör við því. Það er búið að ljúka við að skera hagræðingarféð af síðan þessi ályktun var gerð. Hæstv. landbrh. á svo sem góða bandamenn í þessu liði.

En annað er það, að það hefur ekki verið okkar meining að koma í veg fyrir uppbyggingu fóðuriðnaðar í landinu. Við leggjum til í raun að það verði gert með sama hætti og Búnaðarþing hefur samþykkt og er að vinna að að gert verði. Það verði skýrt tekið fram og skýrt metið hvað þessari framleiðslu er ætlaður stór hluti af þessum markaði og gerðar verði ráðstafanir til að tryggja þessari framleiðslu aðgang að þeim markaði sem til er í landinu. Það er hvergi að finna í þessu frv. og að sjálfsögðu ekki í því mjög svo mislukkaða frv. sem ráðh. var búinn að útbýta hér á Alþingi og senda Búnaðarþingi til umsagnar. Við tökum það alveg skýrt fram í okkar nál., í 3. lið, að það þurfi að endurskoða núverandi eignarform graskögglaverksmiðja með það fyrir augum, að bændum verði gert kleift að eignast þær, í stað þess að ríkið eigi þær, eins og nú er algengast. Það er alveg skýrt tekið fram. Og út af fyrir sig er ég ekki að ljóstra upp neinum leyndarmálum þó að ég fullyrði hér — ég hef góðar heimildir fyrir því — að það liggur ekkert fyrir um hvernig gengur að afla hlutafjár í þessar verksmiðjur, a.m.k. örugglega ekki verksmiðjuna í Saltvík. Og ég vil minna hæstv. landbrh. á að það er með mörgum öðrum hætti mögulegt fyrir bændurna og fyrir félagasamtök bænda að ganga inn í þessi verkefni en í gegnum hlutafjárstofnun. Ég minni á að t.d. þegar graskögglaverksmiðjan var byggð í Flatey tóku bændur í Austur-Skaftafellssýslu að sér að inna ræktunina af hendi.

Ég þarf ekki að elta ólar frekar við hæstv. landbrh. í þessu máli. Í raun hefði ég ekki þurft við hann annað að tala en um vinnubrögð í landbn. Ed. Alþingis og þá einungis í þá veru — eins og ég reyndar vænti að aðrir nm. geti borið um — að það, sem í raun er ámælisvert í þeim efnum, er að málinu var hraðað. Málið var nefnilega alls ekki þannig úr garði gert að það væri hægt að afgreiða það svo forsvaranlegt væri. Þess vegna leggur 2. minni hl. til að málinu verði vísað aftur til ríkisstj., það verði þá unnt að njóta þeirra starfa sem verið er að vinna hjá Búnaðarfélaginu — eða milliþinganefnd Búnaðarþings svo að nákvæmlega rétt sé nú tilgreint — og þannig verði með eðlilegum hætti hægt að leggja góðan grundvöll að uppbyggingu þessa fóðuriðnaðar hér á landi.