09.11.1981
Neðri deild: 10. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í B-deild Alþingistíðinda. (416)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég má til með að gera smáathugasemd við þær umr. sem hér hafa farið fram, þar sem svo vill til að ég á sæti í bankaráði þess banka sem hér er talað um. Ég held að það sé verið að rugla saman vissum atriðum sem er ekki heppilegt að séu fjölmiðlamatur á þessu stigi málsins. Það, sem bankaráð Útvegsbankans hefur tekið ákvörðun um, gerðist fyrr á þessu ári. Það var í sambandi við þau vandamál sem blöstu við bankanum. Þar sem ekki var búið að fá staðfestingu á þeirri fyrirgreiðslu, sem ætlast var til af ríkisstj. og Seðlabankanum í sambandi við samþykkt Alþingis, var samþykki að bankinn gæti ekki veitt viðbótarlán umfram venjuleg lán, ofan á útgerðarlán og ofan á afurðalán, neina gera grein fyrir því fyrst við Seðlabanka Íslands og ríkisstj. að bankinn hefði ekki yfir slíku fjármagni að ráða, neina því aðeins að hann fengi til þess sérstaka fyrirgreiðslu. Bankaráð taldi nauðsynlegt að gera yfirstjórn bankamála ljóst að bankinn hefði ekki þetta fjármagn og þess vegna mundi hann verða að fá viðbótaraðstoð ef ætti að veita þessi sérstöku viðbótarlán umfram það sem aðrir bankar gera.

Þetta tel ég rétt að komi hér fram til að fyrirbyggja misskilning. Um annað hefur ekki verið gerð samþykkt í bankaráði.