09.11.1981
Neðri deild: 10. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (418)

Umræður utan dagskrár

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar, að miklar umr. utan dagskrár væru ekki heppilegar, en ég tel þó það mál, sem ég vil nú impra á hér á fjölum Alþingis, svo mikilvægt að ekki sé hægt að þegja yfir því. Ég hef raunar reynt að komast að utan dagskrár frá því á mánudag í s. l. viku, en það hefur orðið að samkomulagi, vegna þess hvernig stóð á dagskrá í síðustu viku, að það yrði látið bíða þar til í dag.

Ástæða þess, að ég kveð mér hljóðs utan dagskrár, er vopnaflutningar með flugvélum skrásettum á Íslandi svo og hvers konar flutningar til Líbýu og innan Líbýu með íslenskum flugvélum. Fyrir nokkru var frá því skýrt, að tvær flugvélar í eigu Flugleiða, vélar af gerðinni DC-8, sem leigðar voru Overseas National Airlines, sem síðan mun hafa endurleigt þær, hafa um nokkurt skeið flutt vopn til Saudi-Arabíu. Samkvæmt íslenskum loftferðalögum er íslenskum flugvélum óheimilt að flytja hergögn neina með sérstöku leyfi samgrh. Ég hef fengið staðfest, að fyrir hverja einustu ferð til Saudi-Arabíu hafi verið sótt um leyfi og það veitt. Fyrir skömmu fóru íslenskar flugvélar í eigu Arnarflugs sjö ferðir frá Frakklandi til Líbýu. Þær fluttu m. a. mikið magn af varningi sem merktur var „explosives“. Í einni ferð var alíslensk áhöfn, en ella yfirleitt erlendir menn. Áhafnir hafa fengið bónus eða áhættuþóknun, 300 dollara hver maður á klukkustund. Í farmskjölum kemur fram að flutt voru skotfæri, sem merkt voru æfingaskot, og efni, sem sprengihætta stafaði af.

Fulltrúar íslenska loftferðaeftirlitsins hafa kannað þetta mál, rætt við flugmenn og flugvélstjóra og fengið farmskjöl, þótt talsvert af þeim sé enn þá ókomið. Þeirra niðurstaða mun vera sú, að íslensk lög hafi ekki verið brotin og varningurinn hafi fallið innan ramma reglugerðar Alþjóðasambands flugfélaga, IATA. Þeir geta hins vegar ekki staðfest að vopn hafi ekki verið flutt þar eð þeim gafst ekki kostur á að skoða innihald þeirra kassa sem fluttir voru. Þeir geta aðeins stuðst við farmskjöl.

Það er orðið mjög tímabært að íslenska samgrn. ákveði hvað flokkast undir hergögn og hvað ekki samkv. 92. gr. loftferðalaganna. Flugvélar frá Arnarflugi flytja um þessar mundir kjöt frá Írlandi til Líbýu og íslenskar flugvélar eru staðsettar í Líbýu til flutninga þar innanlands.

Á það skal minnt, að fyrir nokkru urðu mikil blaðaskrif vegna flutninga Cargolux-flugfélagsins í Lúxemborg, sem Íslendingar eiga hlut í, á varningi til Írans. M. a. var fullyrt að vélar félagsins hefðu flutt hjólbarða á orrustuflugvélar. Mál þessi hafa borist á borð íslenska utanrrn. og fulltrúar frá íslenskum flugfélögum kallaðir þangað til fundar. Erlend stjórnvöld hafa sent frá sér orðsendingu þar sem þau gera grein fyrir áhyggjum sínum vegna hvers konar stuðnings við stjórn Líbýu. Þessum áhyggjum hefur verið komið á framfæri við íslenska utanrrn. Fleiri þjóðir hafa vaxandi áhyggjur af umsvifum Líbýumanna.

Herra forseti. Ég vek athygli á þessu máli vegna þess að ég tel ekki við hæfi að íslenskar flugvélar skuli notaðar til þessara verkefna sem flugfélög margra annarra þjóða líta ekki við. Það er svo mál út af fyrir sig, að Íslendingar skuli beint og óbeint veita Líbýustjórn aðstoð og þar með einni helstu uppeldisstöð hryðjuverkamanna í heiminum.

Ég vænti þess, að hæstv. samgrh. geti gefið einhverjar nánari skýringar á þessum málum sem geta haft alvarleg áhrif á íslensk flugmál og rýrt álit íslenskra flugfélaga á erlendum vettvangi.