30.04.1982
Neðri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4444 í B-deild Alþingistíðinda. (4182)

253. mál, ríkisreikningurinn 1978

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég vil taka það skýrt fram, að með orðum mínum áðan var ég ekki á nokkurn hátt að gera aths. við hóflegar ábendingar og aths. yfirskoðunarmanna. Ég var hins vegar að vekja athygli á því, að ef menn vildu fræðast um þetta mál væru gefnar fullkomlega eðlilegar og greinargóðar skýringar á því, sem hv. þm. vakti hér máls á, í reikningnum sjálfum og í þeim svörum sem fram koma.

Hv. þm. hefur orðið tíðrætt um nokkuð sem hann hefur kallað Kröfluhneyksli. Ég er reiðubúinn að ræða við hann um Kröflumálið hvar og hvenær sem er, nú eða síðar. Ég álít að það veiti ekkert af að ræða það mál betur en gert hefur verið, eins miklu moldviðri og hefur verið þyrlað upp í kringum það mál. Ég álít sjálfur að ef eitthvað á að kalla Kröfluhneyksli, þá sé það hneyksli, hvernig hv. þm. Vilmundur Gylfason notfærði sér jarðelda norður í landi til að þyrla upp óvenjulega miklum æsingum og ýkjum og ósannindum í kringum þær framkvæmdir sem þarna voru á ferðinni með þeim afleiðingum að orkuöflun á staðnum var frestað um margra ára skeið, engin tilraun eða svo til engin tilraun gerð til að afla orku á árunum 1977, 1978 og 1979, með þeim afleiðingum að orkuöflunin er orðin langt á eftir áætlun og mannvirki nýtast ekki eins og eðlilegt er. Það var orðið ljóst tæknilega séð á árinu 1977 hvaða aðferðir væru bestar til orkuöflunar við Kröflu, en vegna þeirra æsingaskrifa, sem hv. þm. Vilmundur Gylfason stóð fyrst og fremst fyrir á sínum tíma, varð ofan á að framkvæmdum við orkuöflun var frestað og þessi framkvæmd hefur því ekki nýst sem skyldi í þágu þjóðarinnar. Það er að vísu rangt að virkjunin skili engum arði, vegna þess að hún hefur auðvitað verið rekin allan tímann, en við ónóga orkuöflun og þar af leiðandi hefur hún ekki getað staðið undir fjármagnskostnaði virkjunarinnar. — Þetta er stóra hneykslið í málinu, hvernig hv. þm. Vilmundur Gylfason notfærði sér eldsumbrot norður í landi í pólitískum tilgangi að styrkja stöðu Alþfl. í kosningunum 1978. Það er Kröfluhneykslið í eiginlegri merkingu.