30.04.1982
Neðri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4451 í B-deild Alþingistíðinda. (4188)
253. mál, ríkisreikningurinn 1978
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Meðan umr. er ekki lokið er óhætt fyrir hv. þm. held ég að biðja um orðið. En ástæðan fyrir því að ég kvaddi mér hér hljóðs eru þau ummæli hæstv. menntmrh. sem hann viðhafði áðan í sinni ræðu, sem mér finnast talsvert alvarleg, ekki síst þegar þau koma frá hæstv. ráðh. og varaformanni Kröflunefndar á sínum tíma, en hann fullyrti að það, sem miður hefði farið í framkvæmdum við Kröflu á sýnum tíma, væri starfsmönnum Orkustofnunar að kenna, þeir hefðu ekki verið starfi sínu vaxnir. Mér finnst þetta nokkuð djúpt í árinni tekið, vægast sagt, og ástæða til að vekja á því athygli. Og ekki bara það: það er ástæða til að spyrja t.d. hæstv. fjmrh, ef hann væri nú hér inni, og hæstv, forsrh., væri hann hér inni líka, sem hvorugur er, álits þeirra á þessum fullyrðingum hæstv. menntmrh. Það vill svo til að núv. hæstv. forsrh., eins og hér hefur komið fram, var iðnrh. á þeim tíma sem þetta gerðist. Það væri ástæða til að fá við því svör frá þessum tveimur hæstv. ráðh., hvort þeir séu sammála menntmrh. í þeim ásökkunum, að það sem meiður hafi farið í framkvæmdum við Kröflu, sé starfsmönnum Orkustofnunar einum að kenna, þeir hafi ekki verið starfi sínu vaxnir.
Ef þetta er rétt hlýtur að vakna sú spurning, hvort Orkustofnun sé í raun og veru treystandi fyrir framkvæmdum í þessum efnum. Slík spurning hlýtur að vakna þegar svona fullyrðingar koma, ekki síst þegar þær koma frá hæstv. ráðh. og einstaklingum sem ættu að vera málum kunnugir vegna þess að þeir voru í Kröflunefnd á sínum tíma.
Ég hefði gjarnan viljað óska eftir því, að bæði hæstv. fjmrh. og hæstv. forsrh. svöruðu því hér, hvort þeir séu sammála hæstv.menntmrh. um að allt það, sem miður fór við Kröflu í framkvæmdum, sé einvörðungu starfsmönnum Orkustofnunar að kenna vegna þess að þeir hafi ekki verið starfi sínu vaxnir. Þetta eru svo stór orð og svo mikill áburður á viðkomandi einstaklinga og stofnun að ég held að nauðsynlegt sé að fá um það yfirlýsingar hvort aðrir sem þarna áttu hlut að máli á svipaðan hátt og hæstv. menntmrh. séu sömu skoðunar.