14.10.1981
Sameinað þing: 3. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í B-deild Alþingistíðinda. (42)

Umræður utan dagskrár

Guðmundur Karlsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir orð hæstv. félmrh., að það er algert forgangsatriði að halda fullri atvinnu í landinu. En mér er spurn hvort það hafi í raun og veru tekist á þessu líðandi ári. Ég er ekki sannfærður um það. Það er ekki hægt að hugsa sér ömurlegra ástand en það sem við höfum því miður átt við að búa í æðimörg ár í sjávarútvegi: að þurfa að búa við tímabundið atvinnuleysi. Ég get ekki hugsað mér sem stjórnandi fyrirtækis neitt ömurlegra en að standa frammi fyrir því að vera með kannske öflug atvinnutæki og fá ekki tækifæri til þess að reka þau. Ég get ekki hugsað mér neitt ömurlegra en að vita það fólk, sem hjá manni á að starfa, vinnufúsar hendur, hafa ekki verkefni. En því miður held ég að það hafi skeð æðivíða núna, einmitt á líðandi ári, að atvinna hefur ekki verið næg í sjávarplássunum í kringum landið, og ég er hræddur um að atvinna hafi æðivíða dregist saman og sé miklum mun minni en áður var og þess gæti svo mjög að tæplega sé unnið meira en dagvinna. Áður byggði verkafólkið, má segja: því miður, allt of mikið á yfirvinnu og næturvinnu. Þetta er ástand sem verður til þess að ég geri ráð fyrir að margur alþýðumaðurinn og margt alþýðuheimilið megi standa frammi fyrir því, að tekjur heimilisins dragist jafnvel saman um 20–30% frá s. l. ári.

Ég held að það geti varla verið mikil gleði á því heimili eða ánægja með frammistöðu ríkisstj.

Menn hafa lýst því hér yfir að það sé gott ástand í atvinnumálum Íslendinga. En ég held að það sé nú varla hægt að taka undir það um sjávarútveginn. Það verður sannarlega ekki ofsögum sagt af vanda íslensks sjávarútvegs. Hann hefur líklega aldrei verið meiri. Það er sama hvar borið er niður, alls staðar blasa dæmin við: Síldarflotinn er í höfn, loðnuflotinn að í búast til heimsiglingar, frystihúsin eru sum þegar stöðvuð og önnur um það bil að stöðvast vegna rekstrarerfiðleika. Útlit er fyrir, að síldarsöltun verði rekin með verulegu tapi, og spurning hve. síldarframleiðsla verður yfirleitt mikil hér í haust ef ekki verður á veruleg breyting. Það verður ekki heldur séð í dag hvenær verðákvörðun verður tekin.

Í frystingu er rekstrarafkoman mjög slæm, eins og komið hefur reyndar fram á fundi frystihúsamanna að undanförnu með ráðamönnum. Meðaltöl sýna 7–10% tap, sem hlýtur að þýða að einstök hús, sem erfiðast eiga, séu rekin með 20–30% halla. Það var gerð úttekt á sex frystihúsum 15. ágúst og þá, miðað við tímabilið frá 1. jan. til 15. ágúst, skila þau þessara húsa, sem eru alveg hrein frystihús, framlegð upp á 14%. Ég held að hver einasti maður hljóti að viðurkenna að við það ástand sem er — frystihúsin þurfa jafnvel að greiða um 70% gengismun og vexti af afurðalánum — veitir ekki af að framlegð sé 24–25%. Á sama tíma voru reiknuð út þrjú stór blönduð hús hér á Suðvesturlandi. Þetta eru hús sem framleiða bæði frystiafurðir, saltfisk og skreið. Þar var framlegðin 19.7% Hún þyrfti að vera 24–25%. Við getum viðurkennt að þarna er ákaflega mikill mismunur á milli þó það sé ekki óeðlilegt. Orsakir þessa mikla taps eru fyrst og fremst vaxandi verðbólga og fast gengi. Þó að flakaverð hafi hækkað á s. l. vori hafa aðrar framleiðsluvörur, sem vega þungt í afkomunni, ýmist staðið í stað eða lækkað í verði. Og þessi flakahækkun vegur ekkert upp á móti 40–50% verðbólguhækkun með þar af leiðandi kostnaðarhækkunum.

Menn vilja gjarnan blanda saman stöðu og afkomu frystingar, saltfisks og skreiðarverkunar og fá út með því meðalafkomu fiskvinnslu og nota sem viðmiðunartölu, og meðalafkoman á að vera á núlli. Ég held að slíkt sé ákaflega óraunhæft. Það er nú einu sinni svo, að mörgum þeim fyrirtækjum, sem þannig eru upp byggð, verður ekki breytt á stuttum tíma og til þess þarf gífurlegt fé og gífurlegar fjárfestingar. Við vitum t. d. að á Vestfjörðum og jafnvel víða á Norðurlandi hafa menn tekið þá stefnu að byggja húsin upp sem verksmiðjur og tengja þau og hafa verulega stefnt að því að samræma þar veiðar og vinnslu og að þessi fyrirtæki verði eingöngu frystihús. Þetta er lífæð byggðarlaganna sem þarna eru. Þessir menn geta ekki yfir vetrartímann stundað skreiðarverkun vegna þess að snjór og ófærð varna þeim þess algerlega. Þeir geta ekki byggt á slíkri verkun. Sama er um saltfisksverkun. Þessir menn hafa ekki búið sig til þess að geta verið í verulegum mæli í saltfisksverkuninni. Það má segja að fólkið í þessum byggðarlögum byggi afkomu sína og tilveru algerlega á þessum frystihúsum og ef þeir, sem stjórna þessu, sveifluðu framleiðslunni á milli framleiðslugreinanna yrði um algert atvinnuleysi að ræða í viðkomandi byggðarlögum.

Frystiiðnaðurinn hefur grundvallarþýðingu fyrir heildartekjur þjóðfélagsins, svo að ekki sé bent á gildi frystihúsanna fyrir byggðarlögin um land allt. Ef frystihúsið stöðvast hættir hjarta byggðarlagsins að slá. Tugir þúsunda manna eiga allt sitt undir því, að frystihúsin búi við sæmileg rekstrarskilyrði — ekki bara verkafólk eða sjómenn, heldur og þúsundir manna sem veita þessum atvinnurekstri þjónustu sína.

Þá er það alrangt að taka inn í tekjuviðmiðun frystingar þótt sæmilega ári hjá saltfiski og skreið. Það er vegna nauðsynjar þess, að frysting starfi alltaf á réttum grundvelli, og hins, að það er því miður staðreynd að miklar sveiflur hafa oft orðið og eiga vafalaust eftir að verða á saltfisks- og skreiðarmörkuðum. Það gæti orðið reiðarslag fyrir þjóðarbú okkar ef frysting væri rekin með verulegu tapi þegar veruleg áföll verða á mörkuðum hinna framleiðslugreinanna. Það er ekki víst að við stæðum undir slíkum áföllum. Það er því grundvallarkrafa að frystingin búi við viðunandi rekstrarskilyrði og að gengið sé jafnan rétt skráð.

Krafan um að gengið sé jafnan rétt skráð kemur ekki einungis frá þeim sem fást við fiskvinnslu og útgerð eða útflutning sjávarafurða, heldur einnig frá þeim sem byggja afkomu sína á útflutningsiðnaðinum. Nægir að benda á yfirlýsingar forráðamanna Félags ísl. iðnrekenda þar sem þeir láta fram koma að mikið vanti á að gengið sé rétt skráð á þessu ári. Staðreynd er að á síðustu þremur árum hefur mjög sigið á ógæfuhliðina hjá útflutningsatvinnuvegum þjóðarinnar. Öllum er ljóst hve erfitt hefur reynst að mæta stöðugum og reglulegum hækkunum hráefnis, vinnulauna og annarra rekstrarútgjalda sem hækka í takt við verðbólguna. En nokkurt gengissig hefur orðið á þessum árum, og við þær breytingar myndast álitlegur gengismunarsjóður hjá Seðlabanka Íslands. Vil ég leyfa mér að taka undir það sem komið hefur fram bæði hjá Matthíasi Bjarnasyni og félmrh., að þarna er um að ræða verulega og óeðlilega fjármunatilfærslu frá framleiðsluatvinnuvegunum yfir til bankakerfisins, til Seðlabanka Íslands, og við þurfum að gera kröfu til þess að hæstv. viðskrh. upplýsi hv. Alþingi um núverandi stöðu þessa sjóðs.

Ég hef reynt að kynna mér stöðu þessa sjóðs eftir föngum. Samkv. því sýnist það vera, að staða sjóðsins sé á milli 60 og 70 milljarða gkr. eða 670 og 700 millj. nýkr. Eftir því sem mér sýnist hefur þessi sjóðsmyndun fyrst og fremst átt sér stað í tíð vinstri stjórnanna frá árinu 1978 og einkum vaxið og blómgast á síðasta og þessu ári. Við verðum að viðurkenna að þessi tilfærsla fármuna er að verulegu leyti skýring á vanda útflutningsgreinanna og sérstaklega þá frystingarinnar. Mér virðist að athuguðu máli að vöxtur sjóðsins umfram verðbólguþróunina geti verið um 17–18 milljarðar gkr. Þetta fé hefur að óþörfu verið tekið af útflutningsatvinnuvegunum og ber því að skila aftur. Það er á engan hátt ósanngjörn eða óeðlileg krafa, að endurmatsreikningnum svokallaða eða gengismunarsjóðnum verði að verulegu leyti skilað aftur framleiðslunni. Mun láta nærri að miðað við framleiðsluverðmæti frystihúsanna í ár þýði þetta um 8–10%, sem er það tap sem um er að ræða miðað við meðaltal.

Gjarnan er okkur, sem stöndum að framleiðsluatvinnuvegunum, núið því um nasir, að gengissig og gengisfellingar séu í okkar þágu gerðar. En menn skulu minnast þess, að við ráðum ekki verðbólguþróun á Íslandi og við höfum lítil áhrif á þróun markaðsmála úti í hinum stóra heimi. Og það eru ekki okkar ákvarðanir að fjarmunir eru af okkur teknir í stórum stíl og fluttir yfir í opinbera geirann, svo sem að framan er greint.

Sýnt var fram á að ef opinberir aðilar skiluðu aftur því fé, sem af útflutningsframleiðslunni hefur verið tekið, mundi staða frystingar vera a. m. k. viðunandi og ekki þyrfti að koma til gengisfellingar þess vegna. Sú leiðrétting hefði engin verðbólguáhrif í íslensku efnahagslífi. En því miður mundi allur vandi ekki þann veg leystur því að eins og öllum er kunnugt ríkir fullkomin óvissa um fiskverðsákvörðun og þróun í launa- og kjaramálum á almennum vinnumarkaði. Þá eru ýmsar blikur á lofti víða á fiskmörkuðum okkar. En svo er alltaf, að eins dauði er annars brauð og þegar einn tapar hlýtur annar að græða að sama skapi því að fjarmagnið gufar ekki upp í efnahagslífinu.

Það er athyglisvert, að á sama tíma og útflutningsatvinnuvegirnir eiga í miklum og að því er virðist óviðráðanlegum erfiðleikum græða ríkisbankarnir á tá og fingri og afkoma ríkissjóðs er talin vera góð. Hæstv. fjmrh. Ragnar Arnalds heldur af því tilefni sérstakan blaðamannafund. Það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar, að samkvæmt gögnum, sem ég hef undir höndum, græddu ríkisbankarnir 30 milljarða gamla á árinu 1980 eða, eins og Matthías skýrði frá áðan, 17.9 milljarða umfram verðbólgustig.

Þá vil ég benda á það, að fullkomin ástæða sýnist til að athuga viðskipti Fiskveiðasjóðs við útgerðina. Það er torvelt að lesa úr reikningum sjóðsins. Í reikninga Fiskveiðasjóðs vantar að færa útistandandi vexti og dráttarvexti og vísitölulán upp á verðlag ársins 1980. Þá vantar að hluta að færa upp gengistryggð lán. Þarna gætu verið á floti tugir milljarða gamalla króna og er full ástæða til að hæstv. ráðh. upplýsi Alþingi um stöðu sjóðsins í árslok 1980 eins og hún raunverulega var. Ég yrði ekki hissa þó að margan útgerðarmanninn, sem greiðir nú háa dráttarvexti til sjóðsins, ræki í rogastans við að sjá og heyra útkomuna.

Ég bið almenning í landinu, sjómanninn, sem fær ekki fiskverðshækkun, verkamanninn og verkakonuna, sem fá ekki eðlilega launahækkun, útvegsmanninn, sem berst í bökkum, og aðra þá, sem bera ábyrgð í atvinnurekstri, að taka eftir því, að það er undir fjármálastjórn Alþb. manna og núv. ríkisstj. sem tugir milljarða króna eru fluttir frá framleiðsluatvinnuvegunum til opinbera geirans til að ráðskast með. Þessum vinnubrögðum hljótum við að mótmæla fyrir alla þá, sem eiga afkomu sína undir gengi og afkomu framleiðsluatvinnugreinanna, og krefjast þess, að þetta verði leiðrétt.