09.11.1981
Neðri deild: 10. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í B-deild Alþingistíðinda. (422)

Umræður utan dagskrár

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég hef ekki miklu að bæta við það sem ég sagði áðan. Ég vildi gjarnan geta stöðvað alla vopnaflutninga. Vel má vera að þeir séu verstir til Líbýu, en þeir eru ekki heldur góðir til Saudi-Arabíu — eða er það? Það er nefnilega dálítið erfitt að setjast í dómarasætið stundum. Okkur er að vísu sagt að Líbýustjórn þjálfi hryðjuverkamenn. Hér kom fram hjá hv. 4. þm. Reykv. að við héldum uppi viðskiptum t. d. við Suður-Afríku, sem þó ætti ekki að vera samkv. samþykkt Sameinuðu þjóðanna.

Ég skal gjarnan athuga þessi mál og ræða þau við flugfélögin. Er þá ekki einnig æskilegt að afturkalla leyfi til leigu á F-27 vélum sem eru notaðar í Líbýu? Framferði Líbýumanna er mjög fordæmt, t. d. af Bandaríkjamönnum. Eftir því sem ég veit best þiggja þeir þó olíu þaðan, kaupa hana í stórum stíl. Þetta er nokkur tvískinnungsháttur, því miður. Það væri ákaflega æskilegt að við gætum haldið okkur hreinum. Við verðum að reyna það. En ég vil taka undir það sem hv. 4. þm. Reykv. sagði: Það er stundum dálítið erfitt að ganga þá braut þó æskileg sé.