03.05.1982
Efri deild: 80. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4483 í B-deild Alþingistíðinda. (4236)

307. mál, neyðarbirgðir olíu o.fl.

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Hv. þm. Eiður Guðnason vék að því í sinni ræðu, að þegar tillaga hans og annarra þm. Alþfl. um aðild að Alþjóðaorkustofnuninni var til umræðu í Sþ. hefðum við þm. Alþb. barist hart gegn þeirri tillögu. Og hann hældi hæstv. ráðh. fyrir að honum hefði tekist að berja niður andstöðu okkar og fleira í þessum dúr.

Það er satt að segja merkileg árátta hv. þm. Eiðs Guðnasonar — og er nú orðið nánast stíll af hans hálfnað sjá baráttu við Alþb. alls staðar, nánast í hverju einasta máli sem hann skiptir sér af hér á Alþingi. Oftast nær er það þannig að hann býr sér sjálfur til þau árásartilefni sem eru síðan notuð til að gefa út mjög karlmannlegar hetjuyfirlýsingar um baráttuna gegn Alþb.

Frásögn hans af umræðum í Sþ. var í sama dúr. Í þessum umræðum talaði formaður Alþb., ef ég man rétt. Ég talaði þar einnig og fleiri þm. Alþb. Ég lagði áherslu á í þessum umræðum að það væri höfuðnauðsyn, ef Íslendingar ætluðu að gerast aðilar að Alþjóðaorkustofnuninni, að við settum ákveðna fyrirvara af okkar hálfu, því að það væri ljóst, að eins og samþykktir og samningar Alþjóðaorkustofnunarinnar lægju fyrir væri Íslendingum ógerlegt að ganga að þeim samningum nema framselja verulegan hluta af forræði okkar yfir orkuauðlindum landsins og láta af hendi önnur margvísleg réttindi og framtíðarmöguleika sem nauðsynlegt er að varðveita í höndum þjóðarinnar sjálfrar. En það var hins vegar eftir öðru í málflutningi og tillöguflutningi þessara hv. þm. Alþfl., að þeir höfðu ekki hugleitt að Íslendingar þyrftu að setja slík skilyrði, því að bæði í tillögu þeirra og eins í framsöguræðu var ekki vikið sérstaklega að þeim þætti málsins, hvað þá að þeir gerðu Alþingi grein fyrir því hver slík skilyrði ættu að vera. Það var þess vegna skiljanlegt að hv. þm. Eiður Guðnason skyldi ekki í ræðu sinni áðan, eftir því sem ég best tók eftir, víkja einu orði að því, sem tekið er fram í athugasemdum frv., við 1. gr., þar sem ítarlega eru rakin þau fimm skilyrði sem Íslendingar verða að setja ef þeir eiga að geta gerst aðilar að Alþjóðaorkustofnuninni. Staðreyndin er sú, að Atþjóðaorkustofnunin er fyrst og fremst sniðin að þörfum stóru iðnríkjanna á meginlandi Evrópu og Bandaríkjanna, sem hafa byggt meginorkumarkað sinn á innfluttum olíuvörum. Það eru nokkur ríki — þar e.t.v. fremst í flokki Frakkland — sem töldu sér ekki kleift, þegar stofnunin var sett á laggirnar, að gerast aðilar að þessum samningi. Það eru sennilega líka þeir, sem hv. þm. Eiður Guðnason væntanlega kallar kommúnista í Frakklandi, sem hafa ráðið því — eða hvað? Það skyldi þó ekki vera, að það hafi verið hin hægri sinnaða ríkisstjórn Pompidous Frakklandsforseta (EG: Kallar hv. þm. þá kommúnista?) Nei, ég sagði: sem hv, þm. Eiður Guðnason væntanlega katlar kommúnista. Það var ríkisstjórn Pompidous eða Gaulie-istanna í Frakklandi sem tók þá ákvörðun, að það samrýmdist ekki hagsmunum Frakklands að gerast aðili að Alþjóðaorkustofnuninni. Það er stefna sem aðrar ríkisstjórnir í Frakklandi hafa fylgt síðan.

Einnig væri rétt að hv. þm. Eiður Guðnason kynnti sér þær umræður sem fóru fram í Noregi þegar Noregur tók ákvörðun um að gerast aðili að Alþjóðaorkustofnuninni. Í þeim umræðum kom skýrt og greinilega fram að Noregur treysti sér ekki til að gerast aðili að Alþjóðaorkustofnuninni nema með skilyrðum, og fór fram ítarleg umræða í Noregi um það, hver þessi skilyrði ættu að vera. Það sýnir best að mínum dómi annaðhvort þekkingarleysi hv. þm. Alþfl. og Sjálfstfl. í þessari umræðu- eða þá að þeir vitja ekki gæta hagsmuna Íslands í þessu sambandi, að hvorki í umræðunum í Sþ. á sínum tíma né í umræðunum í dag hafa þeir gert þessi skilyrði að umræðuefni, sem eru þó höfuðkjarni málsins. Ég vil óska eftir að fá því svarað hér eða þá síðar þegar þetta mál verður til umræðu, hvort þessir hv. þm. séu þeirrar skoðunar, að Íslendingar geti gerst aðilar að Alþjóðaorkustofnuninni án þess að setja slík skilyrði og hvort tillaga Alþfl. á sínum tíma var um skilyrðislausa aðild að Alþjóðaorkustofnuninni eða ekki.

Deilan um aðildina að Alþjóðaorkustofnuninni hefur ekki staðið um aðildina sem slíka, heldur hefur hún fyrst og fremst staðið um það, hvers konar skilyrði væri nauðsynlegt að Íslendingar settu, til þess að vernda hagsmuni okkar í bráð og lengd, ef við gerðumst aðilar að þessari stofnun. Þessi skilyrði snerta bæði grundvallarsamþykktir og samninga Atþjóðaorkustofnunarinnar sjálfrar og eins þær samþykktir sem stjórnarnefnd stofnunarinnar hefur gert.

Það er rétt að vekja athygli hv. dm. á því, að innan Alþjóðaorkustofnunarinnar er ágreiningur um það, hvort tiltekin ákvæði um stefnu í orkumálum, sem Alþjóðaorkustofnunin hefur sett, séu lagalega bindandi fyrir aðildarríkin eða ekki. Ýmsir forsvarsmenn og lögfræðingar Alþjóðaorkustofnunarinnar halda því fram, að þessi ákvæði séu lagalega bindandi. En það er einmitt eitt af þeim skilyrðum, sem ríkisstjórn Noregs setti á sínum tíma og eru tekin upp í grg. þessa frv., að taka af öll tvímæti um það, að hvorki Noregur á sínum tíma né Ísland, ef Ísland gerist aðili að Alþjóðaorkustofnuninni, er samþykk þeim skilningi að þessi stefnuákvæði séu lagalega bindandi.

Í öðru lagi er rétt að vekja athygli á því, að það hefur verið ágreiningur um það meðal þeirra ríkja, sem mynduðu Alþjóðaorkustofnunina á sínum tíma, og einnig þeirra ríkja, sem gengu í stofnunina, hvaða áhrif aðild að Alþjóðaorkustofnuninni hefði á möguleika einstakra ríkja til að semja hvert um sig við olíusöluríkin. Ýmsir héldu því fram, og það var ein af meginröksemdunum sem Frakkar notuðu á sínum tíma fyrir að hafna aðild að Alþjóðaorkustofnuninni, að með því að mynda þennan hagsmunaklúbb olíukauparíkjanna væru möguleikar annarra ríkja til að geta gert sjálfstæða samninga við olíusöluríkin, sérstaklega Arabaríkin, verulega minni en elta. Ég tel það fyllilega eðlilegt umræðuefni fyrir hv. Alþingi og nánast ósæmandi að ganga fram hjá því að taka afstöðu til þess eða ræða það hér á Alþingi, hvort hagsmunum Íslands sé betur þjónað með því, að Ísland bindi síg formlega við samtök olíukauparíkjanna, sérstaklega stóru iðnríkjanna á meginlandi Evrópu og Bandaríkjanna, eða að Ísland reyni eitt og sér í framtíðinni að ná samningum við olíusöluríkin, t.d. Arabaríkin eða Nígeríu sem við eigum mikil samskipti við. Væri mikil þörf á því, að kannaðir væru rækilega möguleikar á olíukaupum okkar frá því ríki til þess að tryggja skreiðarmarkaði okkar í Nígeríu. Höfum við betri möguleika til þess að gera slíka sjálfstæða samninga við olíusöluríkin, við sem lítil þjóð, heldur en með því að vera búnir að tengja okkur formlega við slíkan klúbb? Þetta tel ég vera umræðuefni sem sé nauðsynlegt að menn athugi í nefndum þingsins eða við meðferð slíkrar tillögu sem hér liggur fyrir.

Hins vegar er rétt að geta þess, að ýmsir, sem kynnt hafa sér starfsemi Alþjóðaorkustofnunarinnar, telja að þeir spádómar, sem ýmsir settu fram við upphaf hennar, að tilvist hennar kynni að hafa neikvæð áhrif á samskipti einstakra aðildarríkja við olíusöluríkin, hafi ekki reynst réttir og þess vegna muni aðild að Alþjóðaorkustofnuninni ekki hafa veruleg áhrif á það, hvort einstök aðildarríki hafi möguleika til slíkra samninga. En ég vil segja það alveg hreint út hér, að ef það væri niðurstaðan af athugunum á starfsemi Alþjóðaorkustofnunarinnar, og starfsemi þeirra ríkja, sem henni tilheyra, að aðild að henni rýrði möguleika Íslands til þess að gera eitt og sér hagstæða olíukaupasamninga við olíusöluríkin í Asíu eða Afríku eða Suður-Ameríku, þá teldi ég mjög til efs að það þjónaði hagsmunum Íslands að gerast aðili að slíkri stofnun, að binda trúss við stóru olíukauparíkin, Vestur-Þýskaland, Ítalíu, Bandaríkin eða önnur þau ríki sem myndað hafa klúbb, vegna þess að allir vita að Alþjóðaorkustofnunin var í upphafi mynduð sem varnarklúbbur olíukauparíkjanna gagnvart hækkunum á olíuverði olíusöluríkjanna.

Við getum tekið Nígeríu sem dæmi. Þar er einn verðmætasti fisksölumarkaður okkar. Við höfum kynnst margvíslegum erfiðleikum á þeim markaði. Við kaupum mjög lítið frá Nígeríu, og það hefur komið fram í samningaviðræðum fiskseljenda okkar í Nígeríu hvað eftir annað, einnig nú nýlega, að það mundi auðvelda mjög samningagerð okkar við Nígeríu ef við hugleiddum t.d. olíukaup frá því ríki, sérstaklega nú þegar það á í erfiðleikum með að selja sínar olíuvörur. Ef aðild að Alþjóðaorkustofnuninni gerði slíka sjálfstæða samninga erfiðari teldi ég tvímælalaust að við ættum að athuga vel okkar gang áður en við tækjum slíkt skref.

Það er því miður þannig með þessa ágætu stofnun, Atþjóðaorkustofnunina, að svo takmörkuð reynsla hefur fengist af starfsemi hennar enn sem komið er að mjög mörgum spurningum um eðli hennar og þær reglur, sem innan hennar eiga að gilda, hefur ekki verið svarað til fullnustu. Það er rétt að við íhugum við meðferð málsins hvaða röksemdum Frakkar hafa beitt til þess að gerast ekki aðilar að þessari stofnun. — Það eru hægri öflin í Frakklandi sem mótuðu þá stefnu. Það skýtur því dálítið skökku við að fara að blanda þessu tali hér inn í umræður um það sem hv. þm. Eiður Guðnason kallaði vestræna samvinnu og ég veit ekki hvað og hvað.

Þriðja atriðið, sem ég vil nefna hér og ég tel nauðsynlegt að hv. Alþingi geri sér grein fyrir, snertir skyldur okkar, þegar við gerumst aðilar að Alþjóðaorkustofnuninni, til þess að framselja til annarra ákveðinn hluta af þeim olíubirgðum sem hér eru í landinu. Vissulega er það rétt, að við fáum á móti ákveðinn rétt til þess að fá frá öðrum olíubirgðir ef við þurfum á að halda, ef lýst er neyðarástandi í aðildarlöndum Alþjóðaorkustofnunarinnar. Það er hins vegar nokkuð ljóst, að lýsing á slíku neyðarástandi mundi miðast fyrst og fremst við ástandið í stóru iðnríkjunum á meginlandi Evrópu og í Vesturheimi, en ekki við þjóðfélagsástandið á litlu eyríki í Norður-Atlantshafi. Það eru þess vegna yfirgnæfandi líkur á að yfirlýsingar um slíkt neyðarástand mundu fyrst og fremst þjóna hagsmunum iðnríkjanna á meginlandi Evrópu og í Vesturheimi, en ekki okkar hagsmunum. En þegar að því Kæmi, að stjórnardeild Alþjóðaorkustofnunarinnar tæki ákvörðun um að lýsa yfir slíku neyðarástandi, þá værum við skuldbundnir með þessum samningi til að framselja þeim 10–15% eða einhvern annan hluta af þeim olíubirgðum sem í landinu væru. Við gætum ekki vikist undan því. Við værum búnir að gangast undir þær atþjóðlegu skuldbindingar.

Nú vill hins vegar svo til, að hingað til a.m.k. og e.t.v. um einhverja framtíð — hér skal ósagt látið hve lengi hafa íslendingar keypt meginhlutann af olíuvörum sínum-stundum allt upp undir 80–90%, þó að það sé að vísu aðeins minna nú á undanförnum árum — frá aðila sem setur það skilyrði fyrir olíukaupunum, að við megum ekki framselja þær olíuvörur til annarra ríkja nema með samþykki þess olíuseljanda. Þetta eru ákvæði sem ýmis önnur olíusöluríki hafa einnig sett fram. Segjum nú að eftir 2–3 ár væri lýst yfir neyðarástandi vegna olíu í aðildarríkjum Atþjóðaorkustofnunarinnar. Okkur bæri að framselja 10–15% af okkar olíubirgðum og við yrðum að gera það. Þá væri niðurstaðan sú að mínum dómi, að við værum eftir þetta enn háðari olíukaupum frá Sovétríkjunum en við vorum áður, vegna þess að við yrðum þá að framselja nánast allar þær olíuvörur sem við kaupum frá öðrum ríkjum en Sovétríkjunum. Neyðarástandið mundi því þýða það, að þar sem við vorum áður kannske 70% háð Sovétríkjunum værum við orðin 100% háð þeim. Þeir, sem eru að leggja þetta til og horfa á venjuna í olíuviðskiptum Íslendinga, verða þá um leið að horfast í augu við það, að verði þetta samþykkt getur átt sér stað að Íslendingar verði á tímum neyðarástands enn háðari olíuvörum frá Sovétríkjunum en þeir hafa verið áður.

Það er m.a. af þessum ástæðum sem ég hef haft efasemdir um að rétt væri að gera okkur háðan Sovétríkjunum en verið hefur til þessa. Það er rétt að hv. þm. Eiður Guðnason og ýmsir aðrir horfist í augu við það, að þetta gæti hæglega gerst. Það yrði nánast einfalt reikningsdæmi um það, hvernig slíkt getur gerst. Gerum ráð fyrir, eins og er í dag, að við kaupum 70% af okkar olíuvörum frá einum olíukaupanda, Sovétríkjunum. Síðan væri úrskurðað hjá Alþjóðaorkustofnuninni að nú væri neyðarástand með olíu. Ísland verður að framselja 15% af öllum sínum olíubirgðum í landinu. Þá eru það ekki 15% af þessum 30% sem eru framsetjanleg samkv. okkar olíukaupasamningum. Það eru 15% af heildinni. Við yrðum m.ö.o. að taka það allt af þessum 30% sem við kaupum frá aðilum sem eru ekki með þetta skilyrði í sínum viðskiptasamningum. Niðurstaðan væri sú, að þegar búið væri að framkvæma þessi ákvæði Alþjóðaorkustofnunarinnar værum við orðin enn háðari olíukaupum frá Sovétríkjunum eða einhverjum öðrum aðila sem við kaupum olíuna frá með þessum skilyrðum.

Ég hefði helst kosið — og gerði grein fyrir því í nefnd sem starfaði á vegum ríkisstj. að undirbúningi þessa máls — að það væri einnig sett sem skilyrði af hálfu Íslands, sem viðbót við fimmta atriðið sem talið er upp í þeim skilyrðum sem nefnd eru í grg. frv., að hlutfall okkar af framseljanlegri olíu væri eingöngu reiknað sem hlutfall af þeim grunni sem miðast við olíubirgðir í landinu sem keyptar eru án þess að sett séu skilyrði um það, hvort við megum framselja þær til annarra aðila eða ekki. Ég vildi þannig koma í veg fyrir að þessi aðild gerði okkur enn háðari Sovétríkjunum um olíu á neyðartímum. En það fékk ekki nægilegan stuðning í nefndinni. Kannske fær það nægilegan stuðning í þessari deild. Kannske fær það stuðning í þessari hv. deild að ganga þannig frá þessari aðild að tryggt sé að hún geri okkur ekki enn háðari Sovétríkjunum með olíubirgðir á neyðartímum. Með hliðsjón af viðhorfum ýmissa þeirra, sem jafnvel nú þegar hafa talað í þessu máli, til Sovétríkjanna vona ég að þeir taki jákvætt hugmyndum um þetta efni.

Enn fremur er rétt að vekja athygli á því, að Íslendingar hafa gert samning við Norðmenn um olíuboranir, olíuleit og olíuframleiðslu á sameiginlegu svæði milli Íslands og Jan Mayen. Vegna stöðu sinnar sem olíuframleiðsluríkis hefur Noregur talið nauðsynlegt að kveða skýrt á um að hagsmunir Noregs sem olíusöluríkis verði ekki skertir, vegna þess að megingrundvallarreglur Alþjóðaorkustofnunarinnar miðast hins vegar við hagsmuni olíukauparíkjanna.

Mér er engin launung á því, að ég hefði kosið aðeins skýrari og afdráttarlausari skilyrði þegar við gengjum í Alþjóðaorkustofnunina, til þess að tryggja framtíðarhagsmuni okkar ef að því kæmi að við yrðum — annaðhvort einir eða þá í samvinnu við Norðmenn — olíuframleiðendur á því svæði sem við höfum samið um á grundvelli Jan Mayen-samkomulagsins.

Í þriðja lagi finnst mér alveg rétt að það komi hér fram við afgreiðslu þingsins varðandi ákvæði stjórnarnefndar Alþjóðaorkustofnunarinnar um stefnu í orkumálum og orkunýtingu, sem ýmsir lögfræðingar stofnunarinnar telja lagalega bindandi, að Alþingi taki það skýrt fram, líkt og gerist í grg. frv. af hálfu ríkisstj., að Íslendingar telji þessi ákvæði ekki lagalega skuldbindandi.

Herra forseti. Það er ýmislegt fleira sem ég gæti nefnt í þessu sambandi. Ég ætla þó ekki að verja hér löngum tíma til viðbótar til að gera það, en gæti gert það ef frekari tilefni gefast. Aðalerindi mitt upp í ræðustólinn var að gera mönnum grein fyrir því, að það er víðs fjarri, eins og hefur komið fram bæði áður hér á Alþingi í málflutningi sumra þm. Alþfl. og mér fannst einnig koma fram í ræðu hv. þm. Lárusar Jónssonar, að aðild Íslands að Atþjóðaorkustofnuninni sé eitthvað einfalt og sjálfsagt mál. Það er mjög flókið mál. Og ef við tökum þá ákvörðun að gerast aðilar að Alþjóðaorkustofnuninni, sem ríkisstj. leggur til með því frv. sem hún flytur hér, þá er alveg nauðsynlegt vegna framtíðarhagsmuna að þau skilyrði, sem við setjum þegar við göngum í stofnunina, séu skýr og afdráttarlaus. Ella getur komið til þess, að við uppgötvum, þegar að því kæmi að farið yrði að grípa til ákvæða Alþjóðaorkustofnunarinnar um olíubirgðir og olíuútdeilingu á neyðartímum, að við yrðum verr settir hvað það snertir að hafa minni og fábrotnari möguleika til olíufanga og olíuútvegunar en við höfðum áður. Einnig væri verr farið af stað en heima setið ef í ljós kæmi að við þyrftum að standa í einhverjum deilum víð þessa stofnun innan tíðar um það, hvort samþykktir, sem þar eru gerðar um orkustefnu og orkunýtingu, séu lagalega bindandi eða ekki. Á sama hátt er nauðsynlegt að við tryggjum rækilega að ef að því kæmi, að Ísland gerðist olíuframleiðsluríki, þá væru ekki ákvæði í grundvallarsamþykktum Alþjóðaorkustofnunarinnar, sem fyrst og fremst eru samtök olíukaupendaríkja, sem brytu í bága víð hagsmuni okkar sem olíuframleiðsluríkis.

Ég er þeirrar skoðunar, að í þeim fyrirvörum, sem taldir eru upp í skýringum við 1. gr. þessa frv., sé þessara atriða allvel gætt. Ég leyni því þó ekki, að ég hefði kosið að kveða skýrar á um einstök atriði og til víðbótar taka það skýrt fram, að ef við yrðum að úthluta öðrum þjóðum olíu vegna neyðarástands í þeirra ríkjum, en ekki hjá okkur, væri það eingöngu gert á grundvelli þeirra olíubirgða sem við getum framsett samkv. samningum, en færum ekki að gera það með þeim hætti, að niðurstaðan yrði sú, að á tímum neyðarástands í olíuviðskiptum í veröldinni yrðum við enn háðari Sovétríkjunum en við erum í dag.