03.05.1982
Neðri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4496 í B-deild Alþingistíðinda. (4251)
178. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég efast ekki um að það frv., sem hér er til umræðu, sé góðra gjalda vert og í því felist einhver réttarbót fyrir þá sem fá frádrátt á þeim efnisatriðum sem þar eru tekin fram, eins og þeim er lýst í grg. og hæstv. ráðh. gat um í ræðustól rétt áðan. En það hlýtur að vera alveg rétt sem kom fram h já hv. 7. landsk. þm., að með því að samþykkja þetta frv. er farið gegn þeirri meginstefnu skattalaganna sem hv. formaður fjh.og viðskn. Nd. hefur haldið dauðahaldi í og fastar en nokkur annar þm., enda var hann á sínum tíma einn af höfundum þess ágæta frv. sem nú er gildandi skattalög.
En það er athyglisvert að þetta mál skuli fá afgreiðstu úr nefndinni á sama tíma og önnur ekki ómerkari mál liggja í nefndinni og bíða afgreiðslu, — mál sem snerta einmitt frádráttarliði ekki ósvipaða þessum, — mál sem hefði átt að afgreiða samliða málum sem sem hafa verið til umfjöllunar á Alþingi, eins og t.d. frv. um námslán og námsstyrki. Á ég þar við frv. sem ég ásamt hv. þm. Matthíasi Á. Mathiesen og Halldóri Blöndal flutti fyrr á þessu þingi. Í þeirri umr. tók hv. formaður fjh.- og viðskn. til máls og benti mér vinsamlegast á að þetta frv. færi gegn meginstefnu laganna og óeðlilegt væri að veita frádrátt frá skatti af greiðslum sem miðuðust m.a. við skattstofn fyrra árs. Taldi hv. formaður fjh.- og viðskn. eðlilegt að málið fengi umfjöllun í hv. menntmn. Gat ég ekki annað skilið — og lýsti því í ræðu sem ég flutti þá — en að hv. þm. mundi fylgjast með gangi málsins í hv. menntmn. Nd. Nú er frv. um námslán og námsstyrki orðið að lögum. Sú breyting var gerð á frv., að endurgreiðslutími var lengdur, sem þýðir enn hertari endurgreiðslureglur, miðað við þau lög sem gilt hafa fram að þessum tíma. Það er út af fyrir sig sjálfsagt og eðlilegt séð frá ríkissjóði sem standa þarf undir skuldbindingum námslánasjóðsins, og þess vegna hlýtur það, þegar fram líða stundir, að koma ríkissjóði vel. En ég hélt hins vegar að hv. nefnd mundi ekki síður hafa tækifæri til þess að líta með sínum fránu augum á það frv. en á það sem nú hefur fengið afgreiðslu úr nefnd.
Nú kemur hæstv. ráðh. hér í ræðustól og segir: Það hefur ekkert samráð verið haft við mig í þessu máli. — Hæstv. ráðh. gefur það fyllilega í skyn, heldur því fram, að í raun þurfi hv. þingnefnd og hv. formaður fjh.- og viðskn. Nd. að hafa fullt samráð við hæstv. ráðh. til þess að hv. nefnd fái leyfi til að afgreiða mál úr nefndinni. Ég spyr: Getur það verið rétt, að hv. þm. Halldór Ásgrímsson sé eins konar leiguliði á jörð hæstv. ráðh. og þurfi að leita til hans með hvað eina sem afgreiða á úr hv. fjh.- og viðskn.? Sé það rétt þá eru ummæli hæstv. ráðh. ofurskiljanleg. Ég æski þess þá, að hv. formaður fjh.- og viðskn. Nd. hafi samband við hæstv. ráðh. og spyrji hvort hann fái heimild til þess að afgreiða það mál, þannig að í ljós komi að það er hæstv. fjmrh. sem leggur stein í götu þess frv. Vegna ummæla hæstv. ráðh. held ég að eðlilegt sé að það komi skýrt fram, hvar mál stranda í þessari hv. deild. Er það hjá fjh.- og viðskn. eða er það hjá hæstv. ráðh., sem hefur lýst því yfir, að við hann þurfi að hafa samráð í slíkum málum? Eða getur kannske verið að hér sé að opinberast sá leikur sem menn hafa séð í þingsölum á undanförnum dögum, að um stórkostlegan skæruhernað er að ræða á mitti Alþb. og Framsfl. í hinum ýmsu málum og þetta sé framlag hv. framsóknarmanna hér í deildinni til þess að stríða Alþb.-ráðherrum, eins konar hálfleikur í þessum leikaraskap öllum sem nú á sér stað, þegar menn vega hverjir aðra á laun hér og hvar í nefndarstörfum, eins og lesa hefur mátt í dagblöðum og komið hefur rækilega fram í nefndarstörfum að undanförnu. Sé svo, þá er alveg óþarfi að svara þeim spurningum sem ég hef beint til hv. formanns nefndarinnar og hæstv. ráðh. Þá er hæstv. ráðh. aðeins að jafna leikinn. En ef það er rétt, að hæstv. ráðh. taki af skarið um það hvaða mál eigi að fá þinglega afgreiðslu, þá þætti mér vænt um að fá að vita í hvorum staðnum málið um frádrátt fyrir námsmenn, þegar þeir endurgreiða námslán, hafi strandað.