03.05.1982
Neðri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4499 í B-deild Alþingistíðinda. (4257)

220. mál, fóðurverksmiðjur

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa langt mál um þetta og hef raunar ekki miklu að bæta við orð hv.10. þm. Reykv., þó að mér hafi komið nokkuð á óvart hin hlýlegu ríkisafskiptaorð sem hann lét falla. En kjarni málsins er sá, að eins og fram kom hjá honum eru gersamlega ónógar upplýsingar sem fyrir liggja um rekstrargrundvöll þeirra fyrirtækja sem hér um ræðir. Hann vísaði þar í ítarlega álitsgerð frá Magnúsi Péturssyni hagsýslustjóra.

Í annan stað er vert að vekja athygli á því, að í þessu frv. eins og það kemur frá Ed., að vísu samþykkt með naumum meiri hl. þar, er verið að veita ríkisstj. nánast opna heimild til að taka þátt í rekstri slíkra verksmiðja og það takmarkalaust. Ég er ekki sammála hæstv. landbrh., eins og kom fram hjá honum, að í þessu fetist einhver stefnubreyting vegna þess að nú sé gert ráð fyrir að ríkið taki þátt í stofnun hlutafélaga. Það er ekkert sem segir til um í þessari lagagrein, í þessari opnu heimild, hver hlutur ríkisins skuli verða. Hann getur verið 99% þess vegna og í ótakmörkuðum fjölda verksmiðja. Ég held að það sé alveg fráleitt að Alþingi sendi frá sér frv. sem felur í sér jafnopnar heimildir um nær ótakmarkaðan fjölda slíkra verksmiðja.

Því má svo bæta við, að 1. gr., eins og hún kemur frá Ed., hljóðar svo: „Ríkisstjórninni er heimilt að taka þátt í stofnun hlutafélaga.“ Hér hlýtur að vera annaðhvort um prentvillu að ræða eða einhverja fljótfærni því að ríkisstj. tekur varla þátt í stofnun hlutafélaga. Það er væntanlega ríkissjóður sem það gerir.

En allt um það. Kjarni málsins er þessi: Í fyrsta lagi eru upplýsingar um allan rekstrargrundvölt slíkra fyrirtækja ónógar, og á grundvelli ófullkominna upplýsinga er ekki hægt að samþykkja frv. sem þetta. Auk þess, jafnvel þó að upplýsingar væru fyrir hendi, getur Alþingi ekki án takmarkana, eins og hér er lagt til, framselt það vald til ríkisstjórna að þær geti tekið þátt í stofnun hlutafélaga utan um — ja, guð veit hvað margar verksmiðjur og guð veit hvað hátt hlutfall hlutafjár þær muni eiga í slíkum verksmiðjum. Af þessum ástæðum einnig er þetta frv. að minni hyggju gersamlega ranglega úr garði gert að valdaafsali og valdaframsali af þessu tagi. Það hygg ég að nái ekki nokkurri átt, og mun ég, eins og sá ræðumaður sem talaði á undan mér, taka þátt í afgreiðslu sem miðar að því að vísa þessu máli til ríkisstj. til að skoða það allt frá rótum.