03.05.1982
Sameinað þing: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4533 í B-deild Alþingistíðinda. (4300)

127. mál, hagnýting orkulinda

Frsm. meiri hl. (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Herra forseti. Allir þm. Sjálfstfl., nema þeir sem sæti eiga í hæstv. ríkisstj., fluttu nokkuð snemma á þessu þingi till. til þál. um hagnýtingu orkulinda landsins til stóriðju. Þessi till. er að efni til ítarleg stefnuskrá um hvernig orkulindir landsins skuli hagnýta og að hvaða markmiðum skuli stefna í því efni.

Í 1. tölul. þessarar till. segir að hagnýta skuli orkulindir landsins til stóriðju svo að auka megi atvinnu um land allt og bæta lífskjör þjóðarinnar. Í 2. tölul. segir að í því skyni verði stefnt að því að koma á fót a.m.k. 3-4 nýjum stóriðjuverum á næstu 15 árum á þeim stöðum á landinu þar sem þess er þörf og staðhættir og aðrar aðstæður henta, enda sé hægt að flytja þangað nægilega orku á hagkvæman og öruggan hátt. Auk þess skuli stefnt að því, að stóriðjuverin, sem fyrir eru í landinu, verði stækkuð sem fyrst.

Aðrir töluliðir þessarar till. fjalla nánar um hvernig unnið skuli að þessum málum. Er sú tillaga sett fram, að forgöngu um hagnýtingu orkulinda landsins til stóriðju skuli hafa sérstök nefnd, stóriðjunefnd, sem skipuð skuli sjö mönnum sem kjörnir séu hlutfallskosningu á Alþingi til fjögurra ára í senn og varamenn skuli kosnir á sama hátt.

Ég held að það blandist engum hugur um að í þeim miklu umræðum, sem orðið hafa á Alþingi á þessum vetri um orkumál og um nýtingu orkunnar, sé mjög nauðsynlegt að Alþingi marki ákveðna stefnu í þessum málum. Hvert málið á fætur öðru, sem tengist hagnýtingu orkulindanna, er lagt fram hér á hv. Alþingi af hæstv. ríkisstj., en allt er það án nokkurrar heildarstefnu og mjög tilviljunarkennt hvað lagt er hér fram af hæstv. ríkisstj., enda er meðferð þessara mála hér á hv. Alþingi slík, að yfirleitt stendur ekki steinn yfir steini eftir að Alþingi hefur fjallað um þessi mál hæstv. ríkisstj. Það er því að mati okkar, sem flytjum þessa till. til þál., mjög brýnt að mörkuð sé föst og ákveðin stefna í þessu máli. Sú stefna kemur í grundvallaratriðum fram í þessari þáltill., en síðan þarf að útfæra hana nánar, vinna hana í smærri atriðum. Við leggjum til að sérstök þingkjörin nefnd vinni það verkefni.

Allshn. Sþ. hefur fjallað um þessa tillögu. Niðurstaðan í nefndinni varð sú, að nefndin varð ekki sammála um afgreiðslu hennar. Meiri hl. n., þ.e. hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, Steinþór Gestsson, Halldór Blöndal og ég, mælir með að till. verði samþykkt með nokkrum breytingum, en brtt. koma fram á þskj. 729. Með því má segja að Sjálfstfl. og Alþfl. séu sammála í þessu mikilvæga máli, sammála þeirri meginstefnu, sem fram kemur í till., og sammála því, hvernig að því skuli staðið að útfæra þessa stefnu nánar. Minni hl. hefur hins vegar skilað sérstöku áliti.

Eins og ég sagði áðan hafa þessi mál komið til ítarlegrar umr. hér á hv. Alþingi í tilefni af ýmsum tillöguflutningi hæstv. ríkisstj., og ef að líkum lætur eiga þessi mál enn eftir að koma hér til umr. það sem eftir lifir þessa þings. Ég ætla því ekki að hafa mörg orð um þessa till. nú. Til þess hefur bæði gefist tækifæri þegar á þinginu og væntanlega á eftir að gefast tækifæri til þess þessa daga. Ég ætla því ekki að fjölyrða frekar um þetta mál, en það er tillaga okkar í meiri hl. n. að till. verði samþykkt með þeim breytingum sem fluttar hafa verið á sérstöku þskj.