03.05.1982
Sameinað þing: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4535 í B-deild Alþingistíðinda. (4305)
164. mál, innlendur lífefnaiðnaður
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Eins og kemur fram í nál. undirrita ég það með fyrirvara. Ég tel mér skylt að geta þess, í hverju sá fyrirvari er fólginn. Það er ekki fyrir það, að ég sé ekki talsmaður þess að reyna að nýta sem best allt sem til fellur frá höfuðatvinnuvegum þjóðarinnar, landbúnaði og sjávarútvegi. Þar eigum víð örugglega talsvert mikla möguleika á að skapa verðmæti úr því sem nú er hent. Og ég er næstum því viss um að eitt af því, sem hægt er að gera við úrgang frá sláturhúsum og frá fiskvinnsluhúsum og innyflum úr fiski, er að vinna út því alls konar mikilvæg og dýrmæt efni. En fyrirvarinn er fólginn í því ósköp einfaldlega, að nefndinni gafst enginn tími til að kanna málið, það verður að segja sannleikann um það, og ég tel ákaflega vafasamt fyrir nm. — og aðallega þá nefndarformenn — að leggja metnað sinn í að afgreiða sem flest mál úr nefnd, hvort sem þau hafa fengið nægilega athugun eða ekki. Þetta mál hefur næstum enga athugun fengið, og þess vegna get ég ekki staðið að því að afgreiða það úr nefnd án aths.