03.05.1982
Sameinað þing: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4542 í B-deild Alþingistíðinda. (4315)
164. mál, innlendur lífefnaiðnaður
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Mér finnst nauðsynlegt að leiðrétta hér misskilning sem kom fram í ræðu hv. þm. Friðriks Sophussonar.
Ég benti honum á, meðan hann flutti ræðu sína, að sú nefnd, sem kjörin var hér 1978 til að vinna að breytingum á þingsköpum, hefði ekki lengur umboð sitt, einfaldlega vegna þess að stór hluti nefndarinnar situr ekki lengur á Alþingi og forusta nefndarinnar var falin þáv. forseta sameinaðs þings vegna embættis hans. Nefndin mun hins vegar hafa skilað ákveðnum vinnutillögum og vinnugögnum til forseta þingsins og er hægt að fá aðgang að þeim gögnum þar.
Hins vegar er það misskilningur hjá hv. þm. Friðrik Sophussyni, að þessi nefnd hafi átt að fjalla um það vandamál, sem hér er í raun og veru til umr., eða að stjórnarskrárnefnd eigi að fjalla um það vandamál, sem hér er til umr. Þeir þættir, sem sú nefnd, sem falið var að endurskoða þingsköp, og stjórnarskrárnefnd hafa fjallað um, eru fyrst og fremst umræðutíminn og takmörkun á ræðutíma, hverjir eigi að hafa málfrelsi í umr. um þáltill., hvort það eigi að vera flm. einn og síðan eigi að vísa till. til nefndar, eins og gert er í sumum öðrum þjóðþingum, eða hvort áfram eigi að vera þær reglur, sem hingað til hafa gilt, að allir hafi frjálsan rétt til þátttöku í umr. um þáltill. Sumir hafa sett fram tillögur um að takmarka ræðutíma í umr. um þáltill. við 10 mínútur, 20 mínútur eða eitthvert annað slíkt mark. Það eru þessir þættir í umr. um þáltill. sem þessum tveimur nefndum var falið að fjalla um.
Það vandamál, sem við erum hér að ræða, er af allt öðru tagi. Það er sú aðferð sem nefndir þingsins beita í æ ríkara mæli við að afgreiða tillögurnar. Ég tel að það sé ekki í þingsköpum hægt að fara að setja fyrirmæli um hvernig nefndir skuli orða tillögur eða brtt. við till. Við getum sett í þingsköpin reglur um ræðutíma og rétt manna til að tala, hve oft og hverjir o.s.frv., en við getum varla í þingsköpum farið að mæla fyrir um með hvaða hætti nefndir skuli afgreiða eða orða tillögur. Það er tilhneigingin til almenns orðalags á hinum afgreiddu þáltill. sem ég var hér að vara við. Og ég vil vegna orða hv. þm. Friðriks Sophussonar taka það skýrt fram, að ég tel að hér sé ekki á ferðinni deilumál milli stjórnar og stjórnarandstöðu, en hann var að reyna að draga málið í dilk með þeim hætti. Ég vek í því sambandi athygli á því, að forustan í þeirri nefnd, sem hvað mest hefur fært afgreiðslu þáltill. inn á þetta form sem ég er að vara við, er í höndum stjórnarandstöðunnar. Ég segi það ekkert formanni eða meiri hl. þeirrar nefndar til lasts. Það er einfaldlega staðreynd, að stjórnarandstaðan hefur meiri hl. í þeirri nefnd og þar með formann nefndarinnar. Ég held að hér sé ekki á ferðinni nein deila um samskipti stjórnar og stjórnarandstöðu, heldur sé þetta þróun sem þingið í heild sinni eigi að hugleiða alvarlega hvort ekki sé rétt að snúa við og reyna á næstu árum að gera þáltill. að marktækara afgreiðsluformi en gert hefur verið til þessa, en ekki afgreiða tillögur í almennum búningi fyrst og fremst til að þóknast flm. eða einhverjum aðilum utan þings.
Ég ætla ekki að blanda mér í umr. á nýjan leik um umboð stjórnarskrárnefndar. Mér fannst það að vísu athyglisvert varðandi þann línudans, sem hv, þm. Friðrik Sophusson hefur stundað innan Sjálfstfl. milli núv. forsrh. og núv. formanns Sjálfstfl., að hann skyldi í þessum umr. nota tækifærið, algerlega að því er virtist án þess að nokkur annar maður gæfi tilefni til þess, að stíga hér í ræðustólnum á lána á hæstv. forsrh., sjálfsagt til að vega upp í eitthvað sem hann hefur gert innan flokksins gegn núv. formanni Sjálfstfl. Það er þáttur úr ræðunni sem flokkast einfaldlega undir línudans núverandi varaformanns Sjálfstfl. og ber greinilega að skilja sem slíkan. En við skutum ekki gera það að miklu atriði í þessu máli þó að það hafi óneitanlega verið skemmtilegt.
Ég notaði þessa umr. til að koma á framfæri þeim sjónarmiðum sem ég hef gert grein fyrir. Mér er hins vegar alveg ljóst að það verður engin lausn á þessu vandamáli fundin á þessu þingi. Ég held að það væri mjög gagnlegt ef þingflokkarnir fljótlega á næsta þingi ræddu sín á milli um ný vinnubrögð varðandi afgreiðslu þáltill. og á fundum forseta, formanna þingflokkanna og formanna nefnda væri síðan ákveðið að gera þáltill.formið að raunhæfu afgreiðsluformi.
Það er rétt, sem hér hefur komið fram, að þáttill. hefur fjölgað mjög. Það er líka rétt, sem kom fram hjá hv. þm. Friðrik Sophussyni, að það hefur færst í vöxt að þm. stjórnarliðsins flyttu þáltill. Á þessu eru að mínum dómi ofureinfaldar skýringar og eðlilegar. Ég held að við getum ekki breytt því, að þm. stjórnar eða stjórnarandstöðu flytji þáltill. í ríkum mæli í framtíðinni. Ástæðurnar eru tvíþættar, að mínum dómi.
Í fyrsta lagi er lagasetning og lagagerð svo flókin orðin í okkar þjóðfélagi að einstakir þm. hafa að eigin frumkvæði og í krafti eigin dugnaðar varla getu til að semja veigamikla lagabálka á ýmsum sviðum, enda þyrfti til þess meiri háttar sérfræðiaðstoð sem ekki er kostur á að sækja hér innan þings. Menn grípa þess vegna til þessa forms í því skyni að koma málum fram.
Hin ástæðan er sú, eins og við vitum allir hér á Alþingi, að við lifum í síauknum mæti í þjóðfélagi þar sem fjölmiðlaumræðurnar og fjölmiðlaathyglin setja mjög svip sinn á störf þingsins og þingmenn í miklu ríkara mæli en áður var, þegar þingmaður hafði í raun enga möguleika til að koma málum sínum á framfæri nema í gegnum eigið flokksblað. Þær breytingar, sem orðið hafa á fjölmiðlakerfinu í landinu á síðustu 10 árum, hafa óhjákvæmilega þýtt að þingmenn þurfa að kunna á fjölþætt fjölmiðlakerfi til að vekja athygli á þeim málum sem þeir eru að vinna að og berjast fyrir. Með tilkomu prófkjara og harðrar baráttu innan flokkanna, jafnt stjórnarflokka sem stjórnarandstöðuflokka, er þingmönnum nauðsynlegt á okkar tímum að vekja þannig athygli á verkum sínum hér á Alþingi, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Áður fyrr, þegar þröngir valdahópar ákváðu framboðin í öllum flokkum, var mönnum kannske kleift að sitja hér á þingi jafnvel árum og áratugum saman án þess að láta nokkuð að sér kveða með þessum hætti, heldur eingöngu sinna störfum í flokkunum inn á við. Þeir unnu margir mjög merk störf með þeim hætti. En sá tími er einfaldlega liðinn, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Prófkjarakerfið innan flokkanna og fjölmiðlabreytingin hefur gert það að verkum, að það verður nánast hver og einn að halda sér á floti hvað þetta snertir, bæði þm. stjórnar og stjórnarandstöðu. Það hefur einfaldlega í för með sér — og ég segi aftur: hvort sem mönnum líkar betur eða verr, að þm. stjórnarflokka, hverjir svo sem þeir flokkar eru, munu á næstu árum eins og á allra síðustu árum hafa ríka tilhneigingu til að flytja þingsályktunartillögur um ýmis málefni sem jafnvel heyra undir þeirra eigin ráðh., hvað þá ráðh. úr öðrum flokkum í þeirri ríkisstj. sem þeir styðja, einfaldlega til þess að koma sér áfram, ef má orða það svo, í fjölmiðlaumræðunni og flokkabaráttunni sem tengd er framboðum hverju sinni. Þessar breytingar, sem orðið hafa- og ég endurtek: hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, — eru bara hluti af okkar veruleika. Sá agi, sem ríkisstj. fyrri tíma, eins og t.d. viðreisnarstjórnin í 12 ár eða ríkisstjórnin sem var á undan henni, vinstri stjórnin, eða aðrar ríkisstjórnir þar á undan, gátu haft á þinginu, að halda sínum þm., sem studdu stjórnarliðið, með þeim hætti að þeir fluttu ekki mál, þeir töluðu jafnvel ekki, heldur höfðu það verkefni fyrst og fremst að rétta hér upp hendur í þingsölum, ræða mál í nefndum þingsins og innan þingflokkanna og stjórnarandstaðan notaði svo þál.-formið, er nú liðinn undir lok. Tími hans er einfaldlega liðinn. Enginn okkar breytir þessu kerfi, sem við búum nú við, í hið gamla form. Ég efast satt að segja um að meiri hl. þm. mundi óska eftir því. Þess vegna held ég að við munum óhjákvæmilega búa við það á næstu árum og um langa framtíð að þáltill. verði notaðar í mjög ríkum mæli af hálfu þm. til að kynna mál og koma málum á framfæri. Það, sem við þurfum hins vegar að ræða í sameiningu, hvort sem við tilheyrum stjórn eða stjórnarandstöðu og hvorum megin sem við stöndum við þá línu í dag eða á morgun, er að við förum ekki að taka upp þá hætti við afgreiðslu á þáltill. sem gera þetta form algerlega marklaust eða marklítið hvað snertir viljayfirlýsingar Alþingis.