04.05.1982
Sameinað þing: 87. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4566 í B-deild Alþingistíðinda. (4331)
378. mál, stöðuveiting stöðvarstjóra Pósts og síma á Ísafirði
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Það kom fram í orðum hv. fyrirspyrjanda að ekki hafi verið svarað síðara bréfi Jafnréttisráðs. Það er ekki rétt, því að bréf fór frá rn. 26. apríl s.l., og kemur mér á óvart ef Jafnréttisráð hefur ekki fengið það bréf. Ég ætla að lesa það bréf, með leyfi forseta, enda hygg ég að það svari a.m.k. að hluta fyrirspurnum hv. fyrirspyrjanda. Svarið er svohljóðandi:
„Með vísan til bréfs Jafnréttisráðs, dags. 22. f.m., varðandi veitingu í stöðu stöðvarstjóra Póst- og símamálastofnunar á Ísafirði vill rn. taka fram eftirfarandi:
Í aðalatriðum er spurst fyrir um tvennt: Annars vegar um það, hvernig atkvæði féllu í starfsmannaráði Póst- og símamálastofnunarinnar er ráðið fjallaði um umsóknir um téða stöðu. Hins vegar er óskað upplýsinga um það, hvaða hæfileika, starfsreynslu og menntun sá umsækjandi, sem veitt var starfið, hafi umfram aðra umsækjendur. Varðandi fyrra atriðið skal það upplýst að málið var afgreitt á fundi atarfsmannaráðs 29. des. 1981. Féllu atkvæði þannig, að með Lilju Jakobsdóttur einni mæltu fjórir, einn með Ingu Þ. Jónsdóttur og einn með Kristmanni Kristmannssyni. Tveir mæltu með umsækjendunum þremur í þessari röð: Lilju, Kristmanni og Ingu.
Vakin er athygli á að samkv. 10. gr. laga nr. 36/1977, um stjórn og starfsrækslu póst- og símamála, er starfsmannaráði aðallega ætlað að stuðla að góðu samstarfi og samheldni milli starfsfólks og stjórnenda stofnunarinnar. Ráðið hefur því engan endanlegan ákvörðunarrétt um veitingu á stöðum, heldur samgrh. samkv. sömu lögum. Skiptir því afl atkvæða í ráðinu engu máli.
Umdæmisstjórinn á Ísafirði, sem ekki á sæti í ráðinu, lagði til að Lilju yrði veitt staðan, en póst- og símamálastjóri mælti með Lilju, Kristmanni eða Ingu.
Varðandi síðara atriðið vill rn. taka eftirfarandi fram: Fyrirspurnin er orðuð í sama dúr og sagt er í 5. gr. laga nr. 75/1976, um jafnrétti kvenna og karla. Menntun umræddra þriggja umsækjenda er svipuð, þannig að á þeim grundvelli verður naumast gert upp á milli þeirra. Hins vegar er starfsreynsla umsækjenda nokkuð mismunandi, enda þótt öll hafi þau yfir 20 ára starfsaldur hjá hinu opinbera. Nærri 3/4 af starfsaldri sínum hefur Lilja unnið við talsímaafgreiðslu og almenn skrifstofustörf. Kristmann hefur starfað nær eingöngu við póstafgreiðslustörf og síðustu sex árin sem póstfulltrúi. Inga hefur starfað í rúm 20 ár sem stöðvarstjóri í Hnífsdal, en frá 1. sept. 1980 hefur hún gegnt starfi ritsímaritara á Ísafirði. Eins og úrslit málsins í starfsmannaráði bera með sér var hinn langi stöðvarstjóratími Ingu í hinni litlu stöð í Hnífsdal ekki talinn vega þungt hennar málstað til framdráttar.
Staða stöðvarstjóra á Ísafirði er allviðamikið stjórnunarstarf. Er alls ekki tryggt að langur starfsaldur á takmörkuðu sviði geri umsækjanda hæfan til slíkra starfa. Ráðh. taldi því nauðsynlegt að kanna það atriði betur. Að því loku var það mat hans að Kristmann væri hæfastur umsækjenda til að gegna umræddu stjórnunarstarfi.
Þess má geta, að vorið 1978 var auglýst staða fulltrúa á skrifstofu umdæmisstjóra á Ísafirði. Umsækjendur um stöðuna voru m.a. Lilja Jakobsdóttir, Kristmann Kristmannsson og Inga Þ. Jónsdóttir. Í starfsmannaráði mæltu sex af átta með Kristmanni Kristmannssyni og sömuleiðis umdæmisstjóri og póst- og símamálastjóri. Tveir starfsmannaráðsmenn mættu með Lilju. Engu að síður valdi þáv. samgrh. Lilju og veitti henni stöðuna. Þetta virðist hafa farið fram hjá þeim sem gæta eiga jafnréttis kvenna og karla og var þessi stöðuveiting ekki kærð.
Rn. telur að með bréfi þessi sé málinu lokið af þess hálfu.“
Til frekari skýringa eða sem svör við því, sem kemur fram í spurningum hv. fyrirspyrjanda, vil ég segja það, að vissulega harma ég að einn umsækjandi hefur ákveðið að segja upp störfum við stofnunina eftir 30 ára starfstíma. Hins vegar verð ég að segja að í því sambandi vakti það undrun mína, að umsækjandi skyldi ekki sækja um þá stöðu fulltrúa sem er laus og hefði, eftir því sem ég veit best, veitt sex flokka hækkun. Ég verð hins vegar að segja það um síðari hlutann, að ég get alls ekki séð að hér sé um skýlaust brot að ræða á lögum nr. 78/1976, um jafnan rétt kvenna og karta. A.m.k. er það ekki meira brot nú en það var 1978.